| |
| 1. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038 | | Farið yfir stöðu vinnu við aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038. Skipulagsráðgjafar mæta til fundarins. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar yfirferðina og felur skipulagsráðgjöfum áframhaldandi vinnu í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
| 2. 2603640 - Vatnshlíð lífsgæðakjarni deiliskipulag | | Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 6. maí sl. að auglýsa lýsingu vegna nýs deiliskipulags fyrir lífsgæðakjarna í Vatnshlíð. Á skipulagssvæðinu er fyrirhuguð uppbygging lífsgæðakjarna þar sem samþætt er búseta og þjónusta fyrir eldra fólk. Gert er ráð fyrir hjúkrunarheimili Vigdísarholts, þjónustumiðju/heilsukjarna, þjónustuíbúðum, hjúkrunaríbúðum og 55 íbúðum fyrir sjálfstæða búsetu. Uppbyggingin myndar heildstæða byggð þar sem tryggð er samfella í þjónustu, búsetu og félagslegum tengslum. Skipulagslýsingin var í kynningu 2.6.-30.6.2026. Umsagnir sem bárust á kynningartíma lagðar fram. | | Lagt fram. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 3. 2603502 - Hraun Vestur Hjallar, reitur 3.3, breyting á deiliskipulagi | Á fundi bæjarstjórnar þ. 22. apríl 2026 var samþykkt að auglýsa tillögu breytingu á deiliskipulagi Iðnaðarhverfis austan Reykjavíkurvegar vegna Reits 3.3, Hjallar. Tillaga að breyttu deiliskipulagi var kynnt á kynningarfundi þriðjudaginn 19. maí. Breytingin felst í uppbyggingu fjölbýlishúsa á 4-5 hæðum auk kjallara, samtals um 240 íbúða og 600 m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarnar munu umlykja inngarða sem opnast til austurs og tengjast þannig grænum útivistarás. Að mestu leyti er um íbúðarhús að ræða innan svæðisins. Lögð er áhersla á fjölbreytt framboð íbúða hvað varðar stærð og gerð. Tillagan var í auglýsingu 7.5.-24.6.2026. Lögð fram svör við athugasemdum ásamt uppfærðum uppdrætti og greinargerð. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hrauns vestur vegna Hjallar, reitur 3.3. Framkvæmdatími skal ekki vera lengri en 5 ár sbr. 6. mgr. 37. greinar skipulagslaga. | | Hraun vestur reitur 3.3 slóð á skipulagsgátt.pdf | | Hraun Vestur, Reitur 3.3, samantekt athugasemda og svör.pdf | | 1910-deiliskipulag-02-1.pdf | | 1910-deiliskipulag-01-2.pdf | | 1910-Greinargerð-útg.02(002).pdf | | |
|
| 4. 2604387 - Lónsbraut, breyting á deiliskipulagi | | Á fundi bæjarráðs þann 11. júní sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lónsbrautar. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri lóð fyrir smáhýsi. Tillagan var í auglýsingu 25.6-9.8.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma lagðar fram. | | Lagt fram og vísað til skipulagsdeildar að svara athugasemdum. | | Lónsbraut slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 5. 2602638 - Hólshraun 5, breyting á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar | | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 20.05.2026 var samþykkt að grenndarkynna, með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar. Tillagan var grenndarkynnt frá 22.05.2026 til 23.06.2026. Lögð fram samantekt athugasemda og svör ásamt uppfærðri tillögu. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hólshrauns iðnaðar og þjónustusvæði vegna Hólshrauns 5. | | Hólshraun 5 slóð á skipulagsgátt.pdf | | Hólshraun 5 - samantekt ábendinga/athugasemda.pdf | | Hólshraun 5, uppfærð dsk. tillaga.pdf | | |
|
| 6. 2605480 - Ísallínur 3 og 4, framkvæmdaleyfi | | Daníel Scheving Hallgrímsson f.h. Landsnets sækir 22.05.2026 um framkvæmdaleyfi vegna byggingar á Ísallínum 3 og 4 og niðurrif á núverandi Ísallínum 1 og 2. | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að grenndarkynna umsókn Landsnets ásamt fylgigögnum um framkvæmdaleyfi skv. heimild 44. gr. skipulagslaga. Ný gögn um áhrifamat á vatnshlot hafa ekki hlotið kynningu almennings. Auk þess verður leitað umsagnar Náttúruverndarstofnunar á framkvæmdum vegna náttúruminja sem njóta sérstakrar verndar.
Skipulags- og byggingarráð fagnar því að nú sé komið að framkvæmdum við færslu Ísallína í nýtt línubelti og að með þeim breytingum muni háspennulínur á stórum hluta færast fjær íbúðabyggð.
Jafnframt vill ráðið árétta mikilvægi þess að sú lausn sem nú er unnið að verði áfangi á leið að varanlegri framtíðarlausn. Í samkomulagi Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets er gert ráð fyrir að loftlínur frá Hamranesi að Hraunhellu séu tímabundin lausn. Í aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir að háspennulínur verði lagðar í jörðu og að nýtt tengivirki verði staðsett í Hraunhellu.
Þá er í gildandi svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins lögð áhersla á að fjölgun háspennulína innan svæðisins verði takmörkuð og að horft verði til þess að leggja háspennustrengi í jörðu. Í því samhengi er mikilvægt að hafa í huga að hvergi á höfuðborgarsvæðinu liggja háspennu loftlínur jafn nærri íbúðabyggð og við Vellina.
Ráðið ítrekar jafnframt bókun skipulags- og byggingaráðs frá 28. nóvember 2024 um Ísallínur og þá afstöðu að mikilvægt sé að Landsnet standi við fyrirliggjandi samkomulag um að loftlínur verði fjarlægðar úr sjónlínu byggðar þegar aðstæður leyfa.
Með hagsmuni íbúa, umhverfis og framtíðarþróunar svæðisins að leiðarljósi telur ráðið mikilvægt að sett verði skýr tímasett áætlun um næstu skref. Ráðið óskar eftir því að unnið verði að því markmiði að innan tíu ára verði komin varanleg lausn án loftlína frá Hamranestengistöð, í samræmi við stefnu skipulagsáætlana Hafnarfjarðarbæjar og höfuðborgarsvæðisins | | Greinargerð_Ísallínur_3og4.pdf | | 2 Greinargerð með framkvæmdaleyfisumsókn.pdf | | 3 Yfirlitskort og afstöðumyndir.pdf | | 4 Möstur-teikningar.pdf | | 5_sjaldgæfar plöntutegundir.pdf | | 6 Minnisblað_plöntuathugun.pdf | | 7 Áhrifamat vatnshlota cowi.pdf | | 8 Umhverfismatsskýrsla.pdf | | 9 Álit Skipulagsstofnunar.pdf | | |
|
| 7. 2608022 - Hæðarkótar á lágsvæðum | | Lögð fram umsögn Vegagerðarinnar um hækkandi sjávarstöðu á lágsvæðum. Lagt er til að hæðarkóti óbyggðra lóða á hafnarsvæði verði hækkaður í samræmi við viðmiðunarreglur Vegagerðarinnar. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hækka hæðarkóta óbyggðra lóða á hafnarsvæði í samræmi við viðmiðunarreglur Vegagerðarinnar. | | 2025-06-03 Hafnarfjörður - Tækniskóli - Umsögn Land- og gólfhæð á lágsvæðum.pdf | | |
|
| 8. 2608097 - Samgöngur og skipulag | | Lagt fram erindi Vegagerðarinnar. Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga vill Vegagerðin minna á mikilvægi samráðs í tengslum við endurskoðun aðalskipulags og aðra skipulagsvinnu sem og lagalegar skyldur þar að lútandi. | | Lagt fram. | | 2026 Í kjölfar kosninga.pdf | | |
|
| |
| 9. 2606406 - Axlarás 7, fyrirspurn | | Fyrirspurn Andra Ingólfssonar f.h. lóðarhafa vegna breytingu á texta í greinargerð varðandi útbyggingar og skyggni/skjólvegg við anddyri í Áslandi 4 var vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 24.6.2026. | | Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina. | | Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 112 (24.6.2026) - Axlarás 7, fyrirspurn.pdf | | breyting á greinargerð - Axlarás 7 20260614.pdf | | Axlarás 7, umsögn vegna fyrirspurnar.pdf | | |
|
| |
| 10. 2606016F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 107 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=mQ8facEtukazCq2Wbyh6w1
| |
|
| 11. 2607002F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 108 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=bzDg74lJMkylr2WQdoOmQ1
| |
|
| 12. 2607007F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 109 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=mCEeojeVk62upyrmEV5ZQ1
| |
|
| 13. 2606013F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 112 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=DBAR76mCxkahrVHEqZug1
| |
|
| 14. 2607001F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 113 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=EbVP7QUYu0mrIxGfsFOCg1
| |
|
| 15. 2607003F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 114 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=DIdtIUGQpUWIp8bujSzQ1
| |
|
| 16. 2607004F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 115 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=sFyJu0YAzUw1oSvZeENGA1
| |
|