Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 496

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
16.09.2026 og hófst hann kl. 08:45
Fundinn sátu: Hildur Rós Guðbjargardóttir formaður,
Arnhildur Ásdís Kolbeins aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Júlíus Freyr Bjarnason varamaður,
Björn Sighvatsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
Ishmael Roberto David verkefnastjóri við umhverfis- og auðlindastefnu
1. 2109683 - Sorphirða í Hafnarfirði - útboð 2022
Kynnt skipulag sorphirðu og magn móttöku efna.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna.
2. 2609168 - Lækurinn, hjólastígur
Kynntar hugmyndir að hjólastíg meðfram Læknum frá Reykjanesbraut að strandlengjunni. Hönnuðir mæta til fundarins.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna.
3. 2512663 - Reykdalsstífla, umhverfi
Kynntar tillögur að frágangi við stífluna.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna.
4. 2608409 - Umhverfis- og skipulagssvið, samræming stefnumörkunar á sviði umhverfismála
Lagt fram erindisbréf ásamt tilnefningum í starfshóp, 2 frá meirihluta og einn frá minnihluta til samþykktar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagt erindisbréf og tilnefnir í starfshópinn frá meirihluta Hildi Rós Guðbjargardóttur, Óla Örn Eiríksson og frá minnihluta Arnhildi Ásdísi Kolbeins.
Erindisbréf starfshópur um samræmingu stefnumörkunar á sviði umhverfismála september 2026.pdf
5. 0703337 - Fráveitukerfi, tenging við Garðabæ
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
Guðjón Steinar Sverrisson verkstjóri þjónustumiðstöðvar mætir til fundarins undir sjötta dagskrárlið.
6. 2408543 - Drangahraun, lagning bíla í götunni
Tekið fyrir að nýju stöðubann í götunni.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að aflétta stöðubanni bifreiða norðanmegin í götunni.
7. 2609056 - Hraun austur, umgengni utan lóða
Tekið til umræðu landvinningar og lausafjármunir utan lóða í Hraunum austur.
Tekið til umræðu.
Ingibjörg Sigurðardóttir garðyrkjustjóri mætir til fundarins undir níunda dagskrárlið.
9. 1407049 - Fegrunarnefnd - Snyrtileikinn
Farið yfir þær tilnefningar sem borist hafa.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur garðyrkjustjóra að undirbúa viðurkenningar.
10. 2109237 - Göngu- og hjólastígar
Merkingar göngu- og hjólastíga tekið til umræðu að beiðni fulltrúa Framsóknar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að yfirfara skiltamerkingar við strandstíginn.
Fundargerðir
8. 2601564 - Reykjanesfólkvangur, endurskoðun friðlýsingar
Kynnt staða vinnu við endurskoðun á fólkvangnum í Krýsuvík.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:26 

Til bakaPrenta