Til bakaPrenta
Fræðsluráð - 579

Haldinn í Krosseyri, Linnetsstíg 3,
02.09.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
Árni Stefán Guðjónsson varaformaður,
Elín Anna Baldursdóttir aðalmaður,
Eva Rún Helgadóttir aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Hugrún Valtýsdóttir, 
Auk ofantalinna sátu fundinn:
Árný Steindóra Steindórsdóttir sviðsstjóri, Erla Karlsdóttir þróunarfulltrúi grunnskóla, Eiríkur Stephensen skólastjóri tónlistarskóla, Stella Björg Kristinsdóttir tómstundafulltrúi, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Berglind Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Margrét Össurardóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Jóhanna Sigrún Jensdóttir áheyrnafulltrúi starfsfólks leikskóla, Svanhildur Ýr Sigurþórsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2406200 - Yfirlit á stöðu innritunar í leikskólum
Lagt fram.
Fræðsluráð fagnar því að nú í haust hefur börnum allt niður í 14 mánaða aldur verið boðið leikskólapláss í leikskólum Hafnarfjarðar.
Minnisblað_Yfirlit á stöðu innritunar í leikskólum haustið 2026.pdf
2. 2409024 - Opinn leikskóli
Minnisblað lagt fram.
Lagt fram til upplýsinga.
2409024_memmmplay_minnisblað_010926.pdf
3. 2608260 - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, 2026-2030, samvinna í þágu barna
Lagt fram til kynningar.
Fræðsluráð þakkar Hönnu Borg Jónsdóttur verkefnastjóra farsældaráðs HBSV fyrir kynninguna og tekur undir bókun bæjarráðs frá síðasta fundi ráðsins.

Fulltrúi grunnskólakennara hefur áhyggjur af þeim fáu og jafnvel engum úrræðum sem sveitarfélögin virðast ráða yfir, fyrir börn sem eru jaðarsett. Börn með hegðunarfrávik sem fylgir oft ADHD börnum, einhverfu og þroskaskerðingum er oft á tíðum ekki hjálpað fyrr en allt er komið í óefni. Í fyrrgreindum gögnum er hvergi að sjá nein úrræði sem starfsmenn skóla geta leita í, í forvarnarskyni. Fulltrúa grunnskólakennara finnst Aðgerðaráætlunin virkar vel á blaði, en það vantar úrræðin sem skólunum vantar. Hvar eru þau?
2502003-Aðgerðaáætlun farsældarráðs-Minnisblað.pdf
Aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 06072026.pdf
Fylgibréf aðgerðaáætlun - Hafnarfjörður.pdf
Samstarfssamningur sveitarfélaganna um stofnun farsældarráðs.pdf
4. 2608359 - Öryggismál í grunnskólum
Lagt fram til kynningar
Fræðsluráð þakkar kynninguna. Tillögum vísað til sviðsstjóra til frekari skoðunar og vinnslu.

Framsókn, miðflokkur og áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna fagnar þessari úttekt og þakkar fyrir mikilvæga og gagnlega kynningu á úttekt á aðgengi og öryggi í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Mikilvægt er að niðurstöðunum verði fylgt eftir með markvissum hætti og að hafin verði vinna við að forgangsraða úrbótum og gera skýra aðgerðaáætlun um framkvæmd þeirra.
Öryggi barna og starfsfólks í skólum þarf ávallt að vera í forgangi og mikilvægt að þessi úttekt leiði til raunverulegra og sýnilegra umbóta.

Fulltrúi grunnskólakennara fagnar þessari skýrslu þó hún hefði mátt koma mikið fyrr. Einnig ítrekar fulltrúi grunnskólakennara á upptöku símtala í skólum sem samþykkt var á s.l. ári hér í fræðsluráði, þar sem sönnunarbyrði á hótunum í garð starfsfólks gerist ítrekað. Það er von starfsmanna skóla að aðgerðir til að auka öryggi skólanna hefjist sem fyrst.
5. 2509043 - Fjöldi barna í frístund
Yfirlit yfir stöðu skráninga í frístundaheimilum lagt fram til kynningar.
Lagt fram.
Minnisblað Staða umsókna í frístundaheimilum ágúst 2026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30 

Til bakaPrenta