Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 850

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
23.06.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Karólína Helga Símonardóttir formaður,
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir varaformaður,
Stefán Már Víðisson aðalmaður,
Arnhildur Ásdís Kolbeins varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir, Anne Steinbrenner og Berglind Guðmundsdóttir verkefnastjórar, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Ívar Bragason bæjarlögmaður.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2606149 - Erindisbréf ráða og nefnda
Lögð fram tillaga að breytingum á erindisbréfi skipulags- og byggingarráðs.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingar á 9. grein erindisbréfsins og vísar til staðfestingar í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar.
2. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 22. apríl sl. var samþykkt uppfærð tillaga að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Tillagan var í auglýsingu 7.5.-18.6.2026. Kynningarfundur var haldinn að Ásvöllum 20. maí sl. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma lagðar fram. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins.
Skipulags- og byggingarráð þakkar yfirferðina og felur skipulagsráðgjafa að taka saman svör við framkomnum athugasemdum.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
3. 2604031 - Undirhlíðar breyting á deiliskipulag
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 24. apríl var samykkt að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags Undirhlíðanámu. Tillagan er kynnt samhliða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025 ? 2040 m.a. til að samnýta mikilvægt samráð við Vegagerðina, Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, HMS og heilbrigðiseftirlitið. Með gildistöku deiliskipulagsins mun deiliskipulag fyrir Undirhlíðar, sem var samþykkt 2006 m.s. br. falla úr gildi. Vinnslutillagan var í auglýsingu 7.5.-19.6.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma lagðar fram.
Lagt fram.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
4. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag
Á fundi bæjarstjórnar þ. 25. mars 2026 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns.
Þorlákstún er opið svæði norðan við Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir 46 nýjum lóðum undir 46 sérbýlishús með risþökum í anda gamla bæjarins í Hafnarfirði. Í deiliskipulagstillögunni er ekki leitast við að byggja sem þéttast, heldur að leggja byggðina vel í landið, taka tillit til umhverfisáhrifa og aðliggjandi byggðar, ásamt því að ráðstafa góðum hluta svæðisins til útivistar og sem leiksvæði ásamt sleða-/skíðabrekku fyrir nýju byggðina og aðliggjandi byggð.
Lögð er áhersla á góða tengingu við þjónustu og nálæg útivistarsvæði og að íbúum standi til boða fjölbreyttar leiðir til daglegrar hreyfingar innan svæðisins. Sveigjanleiki er í uppbyggingu þannig að heimilt verður að stækka hús innan byggingarreits. Húsin mega vera 1 hæð og ris eða 1 hæð og kjallari og raðast annars vegar meðfram nýrri aðalgötu um miðbik svæðisins, sem fylgir landhalla, og hins vegar á jaðar svæðisins meðfram Lyngbarði og Suðurbraut.
Tillagan var í auglýsingu 24.4-11.6.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma lagðar fram.
Skipulags- og byggingarráð þakkar yfirferðina og felur verkefnastjóra að taka saman svör við framkomnum athugasemdum.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
5. 2601436 - Merkurgata, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Merkurgötu. Breytingin felst í því að torgi hverfisins verði breytt í malbikað plan með almennum bílastæðum og gróðurbeðum.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa framkomna tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturbæjar vegna breytinga á opnu svæði að Merkurgötu og vísar erindinu til staðfestingar bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.
DSK_breyting_Merkurgata_A3.pdf
6. 2606494 - Skarðshlíð deiliskipulag endurskoðun
Lögð fram tillaga um að hafin verði vinna við endurskoðun deiliskipulags Skarðshlíðar.
Skipulags- og byggingarráð heimilar að hafin verði vinna við endurskoðun deiliskipulags Skarðshlíðar vegna djúpgámalóða.
7. 2606495 - Ásland 4, deiliskipulag endurskoðun
Lögð fram tillaga um að hafin verði vinna við endurskoðun deiliskipulags Áslands 4.
Skipulags- og byggingarráð heimilar að hafin verði vinna við endurskoðun deiliskipulags Áslands 4 vegna djúpgámalóða.
Fyrirspurnir
9. 2604110 - Bæjarhraun bílastæðamál fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju. Lögð fram umsögn skipulagsdeildar.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina sbr. umsögn skipulagsdeildar.
Bæjarhraun bílastæði umsögn.pdf
Fundargerðir
10. 2606004F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 105
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=qKgCexrqR0i_0SV37KiUPQ1
11. 2606010F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 106
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=tLVwJBbQbEWZehj1DpRTyg1
12. 2605011F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 111
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=Jp4ZQuR8CEqpu2ajK3yIhw1
Byggingarleyfi
8. 2606472 - Hjallahraun 2, byggingaráform kynning
Hönnuðir mæta til fundarins og kynna byggingaráform.
Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:34 

Til bakaPrenta