| |
| 1. 2608418 - Álhella 7, breyting | | Gunnlaugur Björn Jónsson f.h. lóðarhafa leggur þann 31.08.2026 inn reyndarteikningar ásamt uppfærslu á brunahönnun. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 2. 2610447 - Virkisás 29, breyting | | Eyjólfur Valgarðsson f.h. lóðarhafa leggur þann 15.10.2026 fram reyndarteikningar af áður samþykktum teikningum þar sem lóðarfrágangur hefur verið uppfærður. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 3. 2611260 - Baughamar 5-7, breyting | | Gunnar Örn Egilsson f.h. lóðarhafa sækir 10.11.2026 um breytingu á íbúð 01 0603 og 01 0606 þar sem þakgluggar eru teknir út. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 4. 2610273 - Gjáhella 5, svalir | | Kristján Bjarnason f.h. húsfélagsins Gjáhellu 5 sækir 08.10.2026 um að setja svalir á allar eignir á efri hæð sem og reyndarteikningar af húsinu. | | Synjað, framkvæmdin samræmist ekki deiliskipulagi, ekki er heimilt að fara með svalir út fyrir byggingarreit. | | |
|
| |
| 5. 2611128 - Lækjarberg 36, fyrirspurn | | Birgir Kristmar Finnbogason leggur 04.11.2026 fram fyrirspurn er varðar byggingarreit vestan við hús nr. 36 við Lækjarberg. | Erindið var áður á dagskrá afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa nr. 102. Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulags dags. 18.11.2026. | | Lækjarberg 36, umsögn skipulags, 18.11.2026.pdf | | |
|
| 6. 2611307 - Hryggjarás 9, fyrirspurn | | Arnar Grétarsson leggur þann 12.11.2026 fram fyrirspurn varðandi tillögu að húsi við Hryggjarás 9. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulags dags. 18.11.2026. | | Hryggjarás 9, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| |
| 7. 2610461 - Brekkugata 12, MHL.03, salerni í geymsluskúr | | Eva Huld Friðriksdóttir f.h. lóðarhafa sækir 16.10.2026 um að koma fyrir salerni í geymsluskúr á lóð. | | Erindi er frestað, óskað er eftir fullnægjandi aðaluppdráttum og skráningartöflu. | | |
|
| |
| 8. 2610672 - Drangahraun 7, stöðuleyfi, gámar og tjald | | Fasteignafélag KK ehf. sækir 27.10.2026 um stöðuleyfi fyrir 11 gámum og einu tjaldi tímabilið 1.11.2026 til 31.10.2027. | Skipulags- og byggingarfulltrúi synjar umsókn um stöðuleyfi fyrir gáma og geymslutjald á lóðinni Drangahrauni 7 í fyrirliggjandi mynd, með vísan til 2. og 3. mgr. gr. 2.6.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012, sbr. 2. gr. og 9. tölul. 60. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, auk 3. og 4. gr. reglna Hafnarfjarðarbæjar um stöðuleyfi.
Með hliðsjón af fjölda gáma, þéttri niðurröðun þeirra, nálægð við lóðamörk og önnur mannvirki, ásamt umfangsmikilli geymslu lausafjármuna á lóðinni, hefur ekki verið sýnt fram á að fullnægjandi öryggi sé tryggt með tilliti til útbreiðslu elds og aðkomu slökkviliðs.
Fyrirliggjandi gögn sýna ekki fram á að skilyrðum um staðsetningu gáma við lóðamörk samkvæmt 3. gr. reglna Hafnarfjarðarbæjar sé fullnægt.
Jafnframt hefur ekki verið sýnt fram á að geymslutjaldið falli undir heimildir til útgáfu stöðuleyfis samkvæmt 1. mgr. gr. 2.6.1. byggingarreglugerðar. Um mögulega leyfisskyldu þess fer samkvæmt 9. gr., sbr. 13. tölul. 3. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Ákvörðun þessi er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála samkvæmt 59. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Kærufrestur er einn mánuður samkvæmt 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. | | |
|