Til bakaPrenta
Íþrótta- og tómstundanefnd - 414

Haldinn Sólberg,
21.10.2025 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Kristjana Ósk Jónsdóttir aðalmaður,
Júlíus Andri Þórðarson áheyrnarfulltrúi,
Ómar Freyr Rafnsson varamaður,
Geir Bjarnason starfsmaður, Tinna Rós Steinsdóttir starfsmaður.
Fundargerð ritaði: Tinna Rós Steinsdóttir, Rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Bjarney Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldraráðs Hafnarfjarðar; Elísabet Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi ÍBH; og Sindri Dan Vignisson, áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs Hafnarfjarðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
2. 2510350 - Fyrirspurn Samfylkingar varðandi íþróttamál og tómstundaþjónustu
1) Fulltrúi samfylkingarinnar leggur fram eftirfarandi fyrirspurnir:
a) Er vinna hafin við endurskoðun rekstrar- og þjónustusamninga Hafnarfjarðarbæjar við íþrótta- og tómstundafélög?
b) Er bærinn búinn að skipa áheyrnarfulltrúa til að sitja stjórnarfundi aðalstjórnar FH?
c) Hver er staðan varðandi þjónustu og rekstur ungmennahússins á Selhellu?
d) Hvaða þjónusta er til staðar í Nýsköpunarsetrinu við Lækjargötu.
e) Hver er staðan varðandi áform um byggingu nýrrar sundlaugar við Ásvallarlaug?

2) Fulltrúi samfylkingarinnar óskar eftir því að starfsmenn ÍTH taki saman upplýsingar um æfingagjöld hjá íþróttafélögum og deildum í Hafnarfirði og beri þau saman við æfingagjöld hjá sambærilegum félögum og deildum í nágrannasveitarfélögunum.

3) Fulltrúi samfylkingarinnar óskar eftir því að skýrsla eftirlitsnefndar Hafnarfjarðarbæjar um fjármál íþróttafélaga í bænum verði kynnt nefndinni á næsta fundi.

Máli frestað fram á næsta fund.
Fundargerðir
4. 2401611 - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, fundargerðir
Fundargerð Íþróttabandalagsins nr.22 frá 1.október 2025 lögð fram.
Lagt fram.
Kynningar
1. 2510030 - Beiðni um aðstöðu
Kynning frá Elvari Ólafssyni, eiganda Berserkja, þar sem hann kynnir starfsemina og ræðir við ráðið um beiðni sína.
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Elvari fyrir kynninguna.
Beiðni um aðstöðu er hafnað.
3. 2510399 - Forvarnarfulltrúi - kynning
Jóna Rán Pétursdóttir, forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar mætir til fundar með kynningu á störfum sínum og tölulegum upplýsingum varðandi íþrótta- og tómstundamál.
Jónu Rán er þakkað fyrir kynninguna og góða yfirferð á gögnum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:45 

Til bakaPrenta