Til bakaPrenta
Samráðshópur um málefni fatlaðra - 16

Haldinn Sólberg,
21.04.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Linda Hrönn Þórisdóttir formaður,
Alexander Harðarson aðalmaður,
Dalrós Líf Ólafsdóttir aðalmaður,
Egill Steinar Fjeldsted aðalmaður,
Eyrún Birta Þrastardóttir aðalmaður,
Kristjana Ósk Jónsdóttir aðalmaður,
Þórarinn Þórhallsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, deildarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2501358 - Húsnæði fyrir fatlað fólk - uppbygging
Á fundi fjölskylduráðs þann 14. apríl sl. var lögð fram til kynningar húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk fyrir árin 2026-2038. Eftirfarandi bókun var gerð:

Fjölskylduráð vísar húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk fyrir árin 2026-2028 til kynningar og umsagnar í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Áætlunin verði síðan lögð fram til afgreiðslu á næsta fundi fjölskylduráðs.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks fagnar því að Hafnarfjarðarbær hafi gert húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk fyrir árin 2026 ? 2038, að fötluðu fólki sé tryggt öruggt húsnæði og að fyrirsjáanleiki verði enn meiri en verið hefur. Samráðshópurinn vill að boðið verði ávallt upp á fjölbreytt úrræði/heimili sem eru á forsendum notenda enda sé fatlað fólk með ólíkar þarfir og væntingar eins og aðrir í samfélaginu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta