Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 93

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
11.02.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Viktor Sigurðsson aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2601354 - Álfhella 15, breyting
Ómar Pétursson f.h. lóðarhafa sækir 16.01.2026 um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum uppdráttum.
Öryggissturta komin á lager/verkstæði, að auki lagfærð stærð á því rými. Innkeyrsla færð, breyting á stæðum fyrir bíla, stærri tækja og gáma á lóð.
Byggingaráform samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2601650 - Dalshraun 8, breyting
Haraldur Ingvarsson f.h. lóðarhafa sækir 29.01.2026 um leyfi fyrir viðbyggingu fyrir bílaþvottastöð.
Byggingaráform samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2602107 - Suðurgata 44 MHL.01, 02 og 03, breyting
Gunnar Páll Kristinsson f.h. lóðarhafa sækir 04.02.2026 um minniháttar breytingar á þegar byggðu húsnæði, fyrir fjölbýlið og bæði einbýlin, s.s. skjólvegg, bílastæði, útitröppur, stiga snúið í öðru einbýli og staðföng húsa. Engar breytingar á stærðum.
Byggingaráform samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
C-hluti tilkynningarskyldar framkvæmdir
4. 2602047 - Hólshraun 1H, dreifistöð
Ingiþór Björnsson f.h. HS-veitna sækir 03.02.2026 um dreifistöð við Hólshraun 1H. Byggingin er tilbúin steypt eining sem keyrð er á staðinn.
Byggingaráform samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
F-hluti önnur mál
5. 2510626 - Fagrakinn 4, kæra 163/2025
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna framkvæmda á lóð Fögrukinn 4.
Framkvæmdir sem gerðar voru án samþykkis allra eigenda lóðarinnar hafa verið fjarlægðar af lóðinni. Embætti byggingarfulltrúa mun ekki aðhafast frekar í málinu.
Úrskurður í kæru 163_2025.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta