Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 112

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
24.06.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Lilja Grétarsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2606432 - Álfaskeið 16, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags Miðbær Hraun Vestur vegna Álfaskeiðs 16. Breytingin felst í hækkun byggingarmagns úr 300 m2 í 393 m2 og nýtingarhlutfals úr 0,23 í 0,31 í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti, dags. 14.09.2016.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skilmalabreyting Álfaskeið 16 í grenndarkynningu.pdf
2. 2606615 - Hringhella 2, Deiliskipulagsbreyting
Ásgeir Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir 17.06.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í stækkun byggingarreits.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Deiliskipulagstillaga - Hringhella 2_22062026_minni.pdf
D-hluti fyrirspurnir
3. 2606299 - Hringbraut 66, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn um að byggja 52 m2 hús á lóðinni með sér fastanúmeri. Um er að ræða tilbúið einingahús frá Húsasmiðjunni með mænisþaki.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16.6.2026.
Hringbraut 66, umsögn skipulagsfulltrúa.pdf
4. 2606401 - Fagrakinn 4, fyrirspurn
Kári Eiríksson f.h. lóðarhafa leggur þann 16.06.2026 inn fyrirspurn þar sem óskað er eftir leyfi fyrir smáhýsi sem stendur á lóðinni.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22.6.2026.
Fagrakinn 4, umsögn skipulagsfulltrúa.pdf
5. 2606416 - Hlíðarás 23, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa vegna staðsetningar á gufubaði innan lóðar.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18.6.2026.
Hlíðarás 23. staðseting á gufubaði umsögn skipulagsfulltrúa.pdf
6. 2606406 - Axlarás 7, fyrirspurn
Andri Ingólfsson f.h. lóðarhafa leggur þann 16.06.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir deiliskipulagsbreytingu. Breytingin gerir ráð fyrir breytingu á texta í greinargerð varðandi útbyggingar og skyggni/skjólvegg við anddyri.
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
7. 2606405 - Hellubraut 9, fyrirspurn
Sigríður Arngrímsdóttir f.h. Ketils Árna Ketilssonar leggur þann 16.06.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir að rífa núverandi hús og byggja nýtt einbýlishús á lóð. Núverandi hús er ónýtt.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.6.2026.
Hellubraut 9, umsögn skipulagsfulltrúa.pdf
F-hluti önnur mál
8. 2606100 - Snókalönd, framkvæmdarleyfi
Aurora Basecamp ehf. sækir 03.06.2026 um borun eftir köldu neysluvatni.
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa samþykkir að gefið verði út framkvæmdaleyfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta