Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 114

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
15.07.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2607186 - Breiðhella 14, breyting á deiliskipulagi
Kári Eiríksson f.h. lóðarhafa sækir 15.07.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Tillaga gerir ráð fyrir að annarri innkeyrslu er bætt við vestan megin á lóðinni, til að bæta aðkomu slökkviliðs og tryggja betra aðgengi að iðnaðarbilum á þeirri hlið byggingar.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Breiðhella 14, deiliskipulagsbreyting.pdf
D-hluti fyrirspurnir
2. 2606241 - Hverfisgata 13, breyting á deiliskipulagi, fyrirspurn
Haraldur Ingvarsson f.h. leggur þann 09.06.2026 fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi þar sem gildandi deiliskipulag heimilar ekki Hafnarfjarðarkvist.
Jákvætt er tekið í að breyta skilmálum m.a. fyrir kvisti, vinna þarf áfram með tillöguna samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.07.2026.
Hverfisgata 13, umsögn skipulags.pdf
3. 2607079 - Öldugata 31, fyrirspurn
Kristján Andrésson f.h. Systur ehf. leggur 06.07.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir leyfi til að byggja bílskúr, stækka anddyri og stækka verulega kvisti beggja megin við mænir.
Jákvætt er tekið í byggingu bílgeymslu en neikvætt í erindið að öðru leiti, samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 09.07.2026.
Öldugata 31, umsögn skipulags.pdf
4. 2607133 - Álhella 11, fyrirspurn
Valgeir Berg Steindórsson leggur 09.07.2026 fram fyrirspurn þess efnis að fjölga innkeyrslum úr tveim í fjórar.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.07.2026.
Álhella 11, umsögn skipulags.pdf
5. 2606751 - Straumhella 18, fyrirspurn
Oddafell ehf. leggur þann 30.06.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir færslu á innkeyrslu.
Vinna þarf áfram með tillöguna samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.07.2026.
Straumhella 18, umsögn skipulags.pdf
6. 2607141 - Títanhella 19, fyrirspurn
Þorleifur Eggertsson f.h. lóðarhafa leggur þann 13.07.2026 fram fyrirspurn um að flytja innkeyrslu inn á lóðina um 21 m.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.07.2026.
Títanhella 19, umsögn skipulags.pdf
F-hluti önnur mál
7. 2605480 - Ísallínur 3 og 4, framkvæmdaleyfi
Tekin er fyrir á ný umsókn Daníels Scheving Hallgrímssonar f.h. Landsnets um framkvæmdaleyfi vegna byggingar á Ísallínum 3 og 4 og niðurrifs núverandi Ísallína 1 og 2. Málið er tekið fyrir á ný og afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 27.05.2026 breytt.
Afgreiðslan á fundi 27.05.2026 var: Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi.
Afgreiðslan verður nú: Vísað til skipulags- og byggingarráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta