Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 553

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
28.04.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Margrét Vala Marteinsdóttir formaður,
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir aðalmaður,
Helga Ingólfsdóttir varaformaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson áheyrnarfulltrúi,
Óskar Steinn Ómarsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Erna Aradóttir, ritari fjölskylduráðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
Guðmundur Sverrisson, rekstrarstjóri í hagdeild og Reynir Páll Helgason, sérfræðingur í hagdeild mæta á fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.

Fjölskylduráð þakkar Ólafi Heimi Guðmundssyni og Reyni Páli Helgasyni fyrir kynninguna.
2. 2602377 - Fyrirspurn Samfylkingar, Hreiðrið ungmennahús
Lagt fram.
Fjölskylduráð þakkar fyrir veittar upplýsingar.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör og fagna þeirri vinnu sem er farin af stað vegna virkniúrræða fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára með innflytjendabakgrunn þó við bendum á að þessi vinna hefði átt að vera komin mun lengra. Við tökum einnig undir það sem kemur fram í gögnum með málinu að aðgengi að íslenskunámi er gríðarlega mikilvægt en er í dag bundið ýmsum hindrunum eins og til dæmis fjarlægð frá heimili. Samfylkingin hefur áður lagt til í bæjarstjórn að boðið verði upp á íslenskunám í Hafnarfirði í auknum mæli en meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur hingað til ekki viljað skoða það.

Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á því að búið sé að skerða opnunartíma Hreiðursins frá því sem var í upphafi og spyrja hvaða skilaboð það séu til hafnfirskra ungmenna að ungmennahús bæjarins sé lokað á föstudögum. Það er heldur ekki í nokkru samræmi við þau loforð sem gefin voru þegar ungmennahúsinu Hamrinum var lokað í maí 2024 en þá var það gert undir þeim formerkjum að verið væri að “efla og útvíkka frístundastarf fyrir ungmenni í bæjarfélaginu til mikilla muna," eins og meirihlutinn orðaði það í bókun á sínum tíma.

Einnig er það í mótsögn við þá umræðu sem á sér stað í samfélaginu um líðan og velferð ungmenna og áhyggjur af vaxandi ofbeldismenningu og áfengisneyslu. Í því sambandi telja fulltrúar Samfylkingarinnar það senda kolröng skilaboð út í samfélagið að skella ungmennahúsi bæjarins í lás á föstudögum.

Fulltrúar meirihlutans leggja fram eftirfarandi bókun:

Minnisblaðið sem hér er lagt fram sýnir skýrt að unnið er markvisst að nýjum og aðgengilegum lausnum fyrir ungt fólk í Hafnarfirði. Sérstaklega er fagnað því að verið sé að setja af stað tilraunaverkefni í Hreiðrinu fyrir ungt fólk með innflytjendabakgrunn þar sem lögð er áhersla á íslensku, félagslega tengingu og virkni.

Um er að ræða mikilvægt lágþröskulda úrræði sem er gjaldfrjálst og aðgengilegt án tilvísunar og byggir á öflugu samstarfi. Slík nálgun eykur líkur á þátttöku og styður við virkni og tengslamyndun sem skiptir sköpum fyrir þennan hóp.

Þetta er jákvætt og mikilvægt skref í áframhaldandi þróun á þjónustu við ungt fólk þar sem þarfir þeirra og þátttaka eru höfð að leiðarljósi.
Minnisblað - 2602377 tilraunaverkefni í Hreiðrinu.pdf
3. 2512706 - Sveitarstjórnarkosningar 2026
Lagt fram svar við fyrirspurn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlagðar upplýsingar við fyrirspurn okkar um málið. Ljóst er að hér er sannarlega verk að vinna, þ.e. að upplýsa alla Hafnfirðinga um rétt þeirra til lýðræðislegrar þátttöku í samfélaginu. Kosningaþátttaka meðal innflytjenda er verulega lægri en hjá öðrum hópum og því verður markvisst að vinna að því að auka hana meðal innflytjenda. Mikilvægur liður í því er gott samstarf og samráð bæjarins við þennan hóp. 
Svar við fyrirspurn frá fjölskylduráði - Sveitarstjórnarkosningar.pdf
4. 2601658 - Reglur um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarkaupstað
Lagt fram til afgreiðslu.
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um fjárhagsaðstoð að undanskilinni breytingu á fyrstu setningu 3. mgr. 8. gr. reglnanna sem verður óbreytt.
Fjölskylduráð vísar uppfærðum reglum til samþykktar í Bæjarstjórn.
5. 2404013 - Janus heilsuefling - samningur
Lagt fram til afgreiðslu.
Fjölskylduráð samþykkir að framlengja samning við Janus heilsueflingu út árið líkt og gert hefur verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun og vísar málinu til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
6. 2603459 - Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu
Sviðsstjóri leggur fram minnisblað.
Fjölskylduráð fagnar því að virkt samtal sé í gangi vegna samþættingar heimahjúkrunar og félagslegar heimaþjónustu og leggur áherslu á mikilvægi þess að áfram verði unnið að samþættri þjónustu í Hafnarfirði.

Fjölskylduráð óskar eftir minnisblaði á næsta fundi ráðsins.
7. 2603523 - Leiðbeiningar um sérstakan húsnæðisstuðning
Lagt fram.
Upplýsingar lagðar fram.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að hámarks stuðningur vegna húsnæðisbóta hækki. Þær hækkuðu síðast árið 2024 og á þeim tíma hefur leiguverð hækkað og nauðsynlegt að stuðningur við leigjendur fylgi með. Í Reykjavík hefur hámarksstuðningur vegna húsnæðisbóta verið hækkaður í 110 þús. en hann er 100 þús. kr. í Hafnarfirði.

Fundarhlé kl. 8:52 til kl. 8:57

Meirihlutinn leggur fram eftirfarandi tillögu:

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar settu þetta mál á dagskrá og hafa látið vinna á sviðinu framlagt minnisblað þar sem fram kemur tillaga um hækkun á húsnæðisstuðningi  í kr. 110.000.  Í ljósi þess að allir fulltrúar ráðsins eru sammála um mikilvægi þess að hækka sérstakan húsnæðisstuðning er það tillaga meirihlutans að afgreiða málið á fundinum í dag. Sviðstjóra er jafnframt falið að skoða hvort svigrúm er innan fjárhagsáætlunar að mæta þessum viðbótarkostnaði eða hvort þörf er á viðauka.

Fjölskylduráð samþykkir tillögu meirihlutans samhljóða.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja framlagða tillögu meirihlutans, sem varð til í fundarhléi í kjölfar fyrri bókunar Samfylkingarinnar um málið. Enda er hún í samræmi við þá bókun fulltrúa Samfylkingarinnar.
8. 2501358 - Húsnæði fyrir fatlað fólk - uppbygging
Lögð fram umsögn samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.

Lagt fram til afgreiðslu.
Lagt fram til afgreiðslu.

Fjölskylduráð samþykkir framlagða húsnæðisáætlun og vísar henni til frekari staðfestingar í bæjarstjórn.



Meirihlutinn fagnar samþykkt fjölskylduráðs á heildstæðri og metnaðarfullri húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk til ársins 2038. Slík áætlun er lykilforsenda þess að hægt sé að tryggja fötluðu fólki öruggt og viðeigandi húsnæði til framtíðar með auknum fyrirsjáanleika bæði fyrir notendur og sveitarfélagið í heild.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að lögð er áhersla á fjölbreytt búsetuform sem taka mið af ólíkum þörfum og aðstæðum fatlaðs fólks sem eru í samræmi við þær ábendingar sem fram komu frá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Meirihlutinn hefur lagt ríka áherslu á að unnið sé markvisst að slíkri uppbyggingaráætlun og er ánægjulegt að sjá þann góða árangur sem hér birtist. Áætlunin sýnir skýra stefnu um uppbyggingu húsnæðis til næstu ára og er mikilvægt skref í áframhaldandi þróun þjónustu við fatlað fólk í Hafnarfirði.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að nú liggi fyrir húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk enda nauðsynlegt að heildstæð og raunhæf uppbyggingaráætlun í búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk sé til staðar hjá bæjarfélaginu. Hér er um grundvallar verkefni sveitarfélaga að ræða og mikilvægt að það sé ávallt sett í forgang. Fatlað fólk á ekki að þurfa að vera á biðlista eftir húsnæði í lengri tíma því hér um mannréttindamál að ræða. Brýnt er að ávallt sé boðið upp á fjölbreytt húsnæði á forsendum notenda enda eru þarfir fatlaðs fólks þegar kemur að húsnæði misjafnar eins og hjá öðrum.
Samráðshópur um málefni fatlaðra - 16.pdf
Húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk 28.4.26.pdf
9. 2512234 - Þjónustusamningur um heimsendan mat og mat í mötuneyti
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Óskað er eftir upplýsingum um þá vinnu sem fram hefur farið vegna þess frá því það var lagt fram í fjölskylduráði 7. apríl sl.
Lagt fram til umræðu.
10. 2412667 - Aðgengi fólks með fötlun að almennum vinnumarkaði
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og ítreka að tekið verði saman minnisblað um atvinnuþátttöku fólks með fötlun sbr. bókun fjölskylduráðs þann 17. febrúar sl.
Fulltrúar Samfylkingarinnar ítreka beiðni sína um að minnisblað um atvinnuþátttöku fólks með fötlun verði tekið saman og lagt fram í fjölskylduráði, sbr. bókun ráðsins þann 17. febrúar sl.

11. 2504679 - Þjónustukannanir á fjölskyldu- og barnamálasviði
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðu málsins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir framlagðar upplýsingar.
Fundargerðir
12. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði
Lagðar fram fundargerðir:
1) Fjölmenningarráðs frá 19. mars sl.
2) Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 21. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð fjölmenningarráð 19.3.2026.pdf
Samráðshópur um málefni fatlaðra - 16.pdf
13. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 14-16/2026.
Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta