| |
| 1. 2602638 - Hólshraun 5, breyting á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar | | Sigurður Þorvarðarson f.h. lóðarhafa sækir 26.02.2026 um breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar. Lóðin er stækkuð um 1.070 fm til norðurs. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Hólshraun 5, breyting á deiliskipulagi amt.pdf | | |
|
| 2. 2601111 - Vitinn við Vitastíg - lóð og fasteign | Á fundi Bæjarstjórnar þann 25.02.2026 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar hrauns vesturs fyrir Vitastíg 12A. Breytingin felst í því að stofnuð verður ný lóð fyrir vitann, Vitastígur 12A, 243,2 fm að stærð. Tillagan var í auglýsingu frá 19.03.2026 til 10.05.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 3. 2603451 - Skólabraut 3, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 08.04.2026 var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Skólabraut 3. Breytingarnar snúa að því að bæta aðgengi og flóttaleiðir hússins til þess að bæta brunavarnir. Gert er ráð fyrir að koma fyrir lyftu á bakhlið hússins, á norðvesturhlið þess, ásamt nýjum flóttastiga. Frágangur utanhúss verður í samræmi við útveggi skólabyggingarinnar. Hámarksbyggingarmagn hækkar úr 2.704 í 2.754 m2. Minniháttar leiðrétting er gert á lóðarstærð.
Tillaga var grenndarkynnt frá 14.04.2026 til 15.05.2026. Engar athugasemdir bárust. Ábending barst frá íbúum Hverfisgötu 52b um mikilvægi þess að gönguleiðir að lyftu séu skýrar, greiðfærar og vel afmarkaðar. Jafnframt er mikilvægt að tryggja vel staðsett stæði fyrir fatlaða í beinu samhengi við inngang og lyftu. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 4. 2603458 - Reykjavíkurvegur 3, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 08.04.2026 var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Reykjavíkurveg 3. Breytingin felst í því að skilmálum er breytt þannig að heimilt verður að hafa 2 íbúðir í húsinu. Tillagan var grenndarkynnt frá 15.04.2026 til 19.05.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 5. 2605379 - Steinholt 1, breyting á deiliskipulagi | | Snorri Steinn Þórðarson f.h. lóðarhafa sækir þann 19.05.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit A1 um 5 m til suðurs. | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög, þegar uppdráttur hefur verið lagfærður. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. | | |
|
| |
| 6. 2605168 - Jötnahella 11, fyrirspurn | | Hamravellir atvinnuhús ehf. leggur þann 08.05.2025 fyrirspurn þar sem óskað er eftir nýrri inn- og útkeyrslu frá Straumhellu inn á lóð Jötnahellu 11. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18.05.2026. | | Jötnahella 11, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 7. 2605147 - Hraunbrún 2b, fyrirspurn | | Daníel Grétarsson og Arnar Grétarsson leggja þann 06.05.2026 fram fyrirspurn varðandi stækkun á húsi við Hraunbrún 2b. | | Vinna má áfram með tillöguna samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 07.05.2026. | | Hraunbrún 2b, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 8. 2605304 - Straumhella 12, fyrirspurn | | Jón Grétar Magnússon og Jón Friðgeir Þórisson leggja þann 15.05.2026 fram fyrirspurn þess efnis að færa innkeyrslu lóðarinnar til austurs þannig að hún verði í beinni stefnu við aksturssvæði vestan við húsið. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18.05.2026. | | Straumhella 12, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 9. 2605359 - Breiðhella 14, fyrirspurn | | Kári Eiríksson f.h. lóðarhafa leggur þann 18.05.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir leyfi til að bæta við innkeyrslu á lóðina. Í dag er ein innkeyrsla í austurenda lóðarinnar á mörkum Breiðhellu 12 og 14, en tillagan gerir ráð fyrir annarri innkeyrslu í vesturenda lóðar til að bæta aðkomu slökkviliðs og aðgengi að iðnaðarbilum á þeirri hlið hússins. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18.05.2026. | | Breiðhella 14, umsögn skipulags.pdf | | |
|