Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 83

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
15.10.2025 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
D-hluti fyrirspurnir
1. 2510079 - Rauðhella 13, breyting á aðkomu, fyrirspurn
Þorkell Magnússon f.h. lóðarhafa sækir 06.10.2025 um nýja aðkomu á suðausturhorni lóðarinnar frá Hringhellu. Sett verður upp stálgirðing á lóðarmörkum.
Tekið er jákvætt í að heimila viðbótarinnkeyrslu samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15.10.2025. Neikvætt er tekið í uppsetningu girðingu á lóðarmörkum við götu.
Rauðhella 13, umsögn skipulags.pdf
F-hluti önnur mál
2. 2510186 - Selhella, framkvæmdaleyfi
Guðmundur Elíasson, umhverfis- og veitustjóri Hafnarfjarðar, sækir 09.10.2025 um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu á nýju stofnræsi skolplagna frá Selhellu vestur undir Krýsuvíkurveg í átt að Hellnahrauni þar sem hún tengist inn á brunna norðan við lóðir í Steinhellu.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:40 

Til bakaPrenta