Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 99

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
08.04.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Viktor Sigurðsson aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2512459 - Straumhella 20, byggingarleyfi
Gunnar Páll Kristinsson f.h. lóðarhafa sækir 11.12.2025 um byggingu atvinnuhúsnæðis. Byggingin skiptist í tvo hluta, einnar hæðar byggingu ætlaðri fyrir geymslur og þriggja hæða byggingu ætlaðri fyrir skrifstofur/verslun og skylda starfsemi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2512208 - Öldugata 17, breyting, bílskúr, MHL.02
Eyjólfur Valgarðsson f.h. lóðarhafa sækir 04.12.2025 um leyfi fyrir bílgeymslu á tveimur hæðum. Neðri hluti verður steinsteyptur en efri hluti úr timbri.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2510372 - Tinnuskarð 30, breyting
Ívar Hauksson f.h. lóðarhafa sækir 17.10.2025 um breytingar. Vinnustofu er bætt við á 1. hæð, frágangur á lóðarmörkum í samráði við eigendur aðliggjandi lóða.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2604004 - Garðavegur 18, breyting
Margrét Pálína Cassaro f.h. lóðarhafa sækir 01.04.2026 um breytingu á fyrri samþykkt sem felst í breyttri útfærslu á útistiga við húsið.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2603560 - Furuvellir 3, reyndarteikning
Ægir Berg Elísson f.h. lóðarhafa leggur 24.03.2026 fram reyndarteikningu sem sýnir rétt skipulag inni í húsinu.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2510332 - Breiðhella 3, MHL.02, breyting
Sigríður Ólafsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 15.10.2025 um breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum, mál nr. 2502856.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2510333 - Breiðhella 3, MHL.03, breyting
Sigríður Ólafsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 15.10.2025 um breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum, mál nr. 2504488.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
8. 2602037 - Reykjavíkurvegur 60-62, breyting
Hjalti Brynjarsson f.h. lóðarhafa sækir 02.02.2026 um breytingar á áður samþykktum uppdráttum. Breytingar fela í sér meðal annars: bílakjallari minnkaður, súlum fækkað og bílastæðum fjölgað, ýmsar breytingar á skipulagi íbúða; breytingar á klæðningum og gluggasetningu; svalalokun tekin út.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
9. 2505600 - Hryggjarás 11, byggingarleyfi
Andri Ingólfsson f.h. lóðarhafa sækir 27.05.2025 um leyfi til að byggja einbýlishús á einni hæð.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
10. 2602236 - Dofrahella 10, rými 0108, breyting
Jón Gunnar Eysteinsson f.h. lóðarhafa sækir 11.02.2026 um breytingar á rými 0108 við Dofrahellu 10. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér breytta notkun rýmisins úr geymslu í sal fyrir matvælaframleiðslu.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
11. 2602157 - Völuskarð 16, byggingarleyfi
Bjarni Kristinsson f.h. lóðarhafa sækir 06.02.2026 um að byggja steinsteypt parhús á tveimur hæðum, með tveimur íbúðum.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
F-hluti önnur mál
12. 2602239 - Íshella 5, stöðuleyfi, tjöld
Blendi ehf. leggur 11.02.2026 inn umsókn um stöðuleyfi fyrir 2 tjöld frá 01.05.2026.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs. Umsækjanda er bent á að endurnýja þarf leyfið með nýrri umsókn að ári liðnu.

13. 2603166 - Álhella 1, stöðuleyfi, tjald
Hreinsitækni ehf. sækir 06.03.2026 um stöðuleyfi fyrir tjald sem ætlað er að hýsa afvötnunarbúnað fyrir fitu úr fitugildrum.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi umbeðið tímabil til eins árs. Umsækjanda er bent á að endurnýja þarf leyfið með nýrri umsókn að ári liðnu.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta