| Bæjarstjórn - 1985 |
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
18.11.2026 og hófst hann kl. 14:00 | | Fundinn sátu: Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Viktor Pétur Finnsson aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Óli Örn Eiríksson varamaður,
Elín Anna Baldursdóttir varamaður,
Ívar Bragason bæjarlögmaður, Sigurður Nordal sviðsstjóri, Auður Þorkelsdóttir starfsmaður, Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri, Þórður Þórarinsson bæjarstjóri. | | Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður | | Í upphafi fundar lagði forseti til að tvö mál yrðu tekinn á inn dagskrá fundarins, 1. Hellubraut 9, deiliskipulag og Tækniskólinn, erindi þar sem fulltrúi Miðflokksins leggur fram tillögu. Er það samþykkt samhljóða. | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2610668 - Hvaleyrarbraut 22, breyting á deiliskipulagi | 1. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 11.nóvember sl. Guðmundur Gunnlaugsson f.h. Dverghamra ehf. sækir 27.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Skipulagshöfundur mætir til fundarins og kynnir. Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa deiliskipulag Hvaleyrarbrautar 22. | Orri Björnsson tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | 26-1027 - Hvaleyrarbraut 22.pdf | | Hvaleyrarbraut 22.pdf | | 26-1027 - Hvaleyrarbraut 22-samsett.pdf | | |
| | 2. 2604031 - Undirhlíðar breyting á deiliskipulag | 4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 11.nóvember sl. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 9. september 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu við Leiðarendaveg en svæðið er skilgreint sem efnistökusvæði í aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Tillagan var í kynningu 17.9-29.10.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma lagðar fram ásamt viðbrögðum bæjarins. Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu til staðfestingar í bæjarstjórn. | Orri Björnsson tekur til máls.
Valdimar Víðisson tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
| | 3. 2607215 - Hellubraut 9, breyting á deiliskipulagi | Tekið fyrir að nýju.
4. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 2. september sl.
Lögð fram umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Óskað er eftir að rífa núverandi hús og reisa nýtt hús. Ný bygging verður ein hæð ásamt kjallara sem verður að hluta til niðurgrafinn.
Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa og kynna fyrir nágrönnum tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hellubrautar 9. | Kristín Thoroddsen tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | Deiliskipulagsuppdráttur.pdf | | |
| | 4. 2611230 - Reglur um nýjar fjárfestingar | 3.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 12. nóvember sl. Lögð fram drög að reglum um takmörkun nýrra fjárfestinga sveitarfélagsins til næstu tveggja ára Fulltrúi Miðflokksins leggur til eftirfarandi breytingar á fyrirliggjandi drögum að reglum um fjárfestingarverkefni Hafnarfjarðarbæjar árið 2027:
1. Forgangsröðun óhafinna framkvæmda Við 2. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi: ?Nýframkvæmdir sem hvorki eru hafnar né bundnar samningi við þriðja aðila skulu sæta sérstakri forgangsröðun bæjarráðs áður en til útboðs eða annarrar bindandi skuldbindingar kemur, þótt þær séu þegar á samþykktri fjárfestingaráætlun.?
2. Framlög samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins Við 1. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi: ?Reglur þessar taka einnig til fjárfestingaframlaga og fjárskuldbindinga Hafnarfjarðarbæjar samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Áður en stofnað er til nýrra eða aukinna fjárskuldbindinga umfram gildandi samninga skal leggja fyrir bæjarstjórn sérstakt mat á fjárhagslegum áhrifum þeirra og fjármögnun. Fjármálasvið skal ársfjórðungslega leggja fyrir bæjarráð yfirlit yfir greiðslur bæjarins samkvæmt sáttmálanum og áætlaðar eftirstöðvar skuldbindinga.?
Bæjarráð vísar reglunum til staðfestingar í bæjarstjórn og felur bæjarstjóra um leið að vinna reglurnar fyrir fund bæjarstjórnar í samræmi við umræður. | Þórður Þórarinsson tekur til máls.
Valdimar Víðisson tekur til máls. Einnig Óli Örn Eiríksson sem flytur sína fyrstu ræðu í bæjarstjórn.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls.
Orri Björnsson tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi reglur.
Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:
Bæjarfulltrúar Framsóknar styðja fyrirliggjandi reglur um fjárfestingarverkefni á árinu 2027. Ábyrg fjármálastjórn, ráðdeild og skynsamleg forgangsröðun eiga ávallt að vera leiðarljós í rekstri sveitarfélagsins.
Mikilvægt er að fjárfestingarákvarðanir byggi á faglegu mati og skýrum fjárhagslegum forsendum. Jafnframt þarf að gæta þess að aðhald til skemmri tíma verði ekki á kostnað langtímahagsmuna sveitarfélagsins og hamli ekki nauðsynlegri og tekjuskapandi uppbyggingu.
Framsókn er reiðubúin til samstarfs um ábyrga fjármálastjórn og þær aðgerðir sem miða að því að styrkja fjárhag sveitarfélagsins til framtíðar.
| | Reglur vegna fjárfestingaverkefna á árinu 2027_UPPFÆRT.pdf | | |
| | 5. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi | 9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 12.nóvember sl. Fulltrúi Framsóknarflokksins og Miðflokksins óska eftir málinu á dagskrá. Til umræðu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram með forsvarsmönnum Skólastræti ehf. og málið verði lagt fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar. | Þórður Þórarinsson tekur til máls.
Valdimar Víðisson tekur til máls.
Elín Anna Baldursdóttir tekur til máls.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Orri kemur til andsvars. Einar Geir svarar andsvari. Orri kemur að andsvari öðru sinni.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með 10 atkvæðum. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá.
Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:
Framsókn styður fyrirliggjandi samning sem felur í sér fullnaðaruppgjör og eyðir frekari fjárhagslegri og lagalegri óvissu vegna verkefnisins. Mikilvægt er að horfa til heildarmyndarinnar og þeirra verðmæta sem Hafnarfjarðarbær hefur tryggt sér með kaupum á lóðum á svæðinu. Þar felast mikil tækifæri til framtíðar fyrir bæjarfélagið. Mikilvægt er að horfa fram á veginn með skýra framtíðarsýn um uppbyggingu svæðisins og nýtingu þeirra verðmæta sem þar liggja.
Einar Geir Þorsteinsson kemur að svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn situr hjá vegna afgreiðslu samnings um lok þátttöku Hafnarfjarðarbæjar í verkefninu og viðauka 7. Með þeim greiðir bærinn Skólastræti 248 milljónir króna, sem nemur þremur fjórðu af árlegum sparnaði af fækkun stöðugilda sem meirihlutinn kynnti í október. Bæjarstjóri fékk málið í hendurnar og samdi um lok þess, en samningsstaðan réðst af ákvörðunum áranna 2021 til 2024. Miðflokkurinn átti engan fulltrúa í bæjarstjórn þegar bærinn tók á sig þær skuldbindingar sem nú er verið að gera upp. | | Samkomulag um Tækniskólann_Lagt fram í bæjarstjórn 18 nóvember 2026_LOKA.pdf | | |
| | 6. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029 | Til afgreiðslu. Lagður fram viðauki 7 vegna samnings um lok þátttöku Hafnarfjarðarbæjar í verkefninu um byggingu nýrra höfuðstöðva fyrir Tækniskólann. | Þórður Þórarinsson tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðauka með 10 atkvæðum. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá. | | Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026 - Öll skjölin.pdf | | |
| | 7. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi | Tillaga Miðflokksins um óháða úttekt á aðkomu Hafnarfjarðarbæjar að verkefninu um nýbyggingu Tækniskólans.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkir að fela óháðum, sérfróðum aðila að gera úttekt á aðkomu Hafnarfjarðarbæjar að verkefninu um nýbyggingu Tækniskólans frá árinu 2021 til nóvember 2026. Úttektin skiptist í tvo hluta.
1. Heildarkostnaður bæjarins Teknir verði saman allir kostnaðarliðir bæjarins vegna verkefnisins, þar á meðal: a. sáttagreiðsla til Skólastrætis Tækniskólans ehf.; b. greiðslur til ráðgjafa, lögmanna og matsaðila, sundurliðaðar eftir aðilum, ásamt greinargerð um hvaða þjónusta var keypt, á hvaða grundvelli og hverju hún skilaði; c. vinna starfsmanna bæjarins við verkefnið, metin í vinnustundum og krónum eftir því sem unnt er; d. kaup á fasteignum og lóðaréttindum og annar kostnaður, að teknu tilliti til verðmætis þeirra eigna sem bærinn heldur eftir. Jafnframt verði metið hvort bærinn eigi rétt á endurgreiðslu eða endurkröfu vegna einhverra þessara kostnaðarliða.
2. Atburðarás og ákvarðanir Gerð verði grein fyrir því: a. hvenær mátti vera ljóst að bærinn gæti ekki afhent lóðina innan þeirra tímamarka sem verkefnið gerði ráð fyrir, og hvenær og hvernig bæjarráð, bæjarstjórn og íbúar Hafnarfjarðarbæjar voru upplýst um það; b. hvort bærinn hefði getað brugðist fyrr eða með öðrum hætti við og þannig takmarkað fjárhagslegt tjón sitt; c. hvort aðdragandi sveitarstjórnarkosninga í maí 2026 hafi haft áhrif á tímasetningu ákvarðana eða upplýsingagjafar í málinu; d. hvort ákvarðanir um skuldbindingar bæjarins hafi verið teknar í samræmi við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarbæjar og lög nr. 120/2016 um opinber innkaup. Úttektaraðili fái aðgang að öllum gögnum málsins, þar á meðal trúnaðargögnum. Bæjarráð leggi val á úttektaraðila, á grundvelli verðkönnunar, ásamt kostnaðaráætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. febrúar 2027. Úttektaraðili skal hvorki hafa komið að verkefninu né hafa tengsl sem dregið geta óhlutdrægni hans í efa. Niðurstöður verði gerðar opinberar í heild og kynntar íbúum opinberlega eigi síðar en 1. apríl 2027. Einungis verði haldið eftir upplýsingum sem leynt skulu fara samkvæmt lögum, og skal þá tilgreint hverju var haldið eftir og á hvaða grundvelli. | Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls.
Orri Björnsson tekur til máls og leggur jafnframt fram tillögu um að vísa málinu til bæjarráðs.
Einar Geir kemur að andsvari.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa málinu til bæjarráðs.
| | |
| | 8. 2005180 - Samgöngusáttmáli | Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir málinu á dagskrá bæjarstjórnar: Til afgreiðslu. Tillaga um þátttöku Hafnarfjarðar í endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir: 1. Að fela bæjarstjóra að taka þátt í viðræðum við ríkið og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fjármögnun hans, sbr. og endurskoðunarákvæði 7. gr. sáttmálans. Tryggt verði að endurskoðun tefji ekki nauðsynlegar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu. 2. Að í viðræðunum leggi Hafnarfjörður áherslu á: a. að Reykjanesbraut milli Álftanesvegar og Lækjargötu og bætt umferðarstýring verði færð framar í framkvæmdaröð; b. að gerð verði sérstök kostnaðar- og ábatagreining á lotu 4 Borgarlínu, Fjörður?Miklabraut, þar sem hún er borin saman við hraðvagnakerfi á forgangsakreinum sem getur þjónað Hafnfirðingum fyrr og þrengir ekki að almennri umferð; greiningin liggi fyrir eigi síðar en í árslok 2027 og áður en bærinn tekur á sig frekari skuldbindingar vegna lotunnar; c. að leggjast gegn því að sáttmálinn verði fjármagnaður með aukinni skattheimtu, hvort sem skattheimtan nefnist flýti- og umferðargjöld eða annað. 3. Að fela bæjarstjóra að fylgja eftir á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu tímabundinni lækkun á framlagi ríkisins til Betri samgangna ohf. árið 2027, og óska eftir að framlag Hafnarfjarðar það ár frestist hlutfallslega til jafns við framlag ríkisins. 4. Að skuldbinding bæjarins samkvæmt sáttmálanum verði sýnd sérstaklega í fjárhagsáætlun 2027?2030.
Bæjarstjóri upplýsi bæjarstjórn um framvindu viðræðna eigi síðar en 1. mars 2027. | Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls og leggur til að greidd verði atkvæði um hvern lið tillögurnar fyrir sig.
Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til máls. Einar Geir kemur til andsvars. Hildur Rós svarar andsvari. Einar Geir kemur að andsvari öðru sinni. Hildur Rós svarar andvsari öðru sinni. Einar Geir kemur að stuttri athugasemd. Viktor Pétur Finnsson kemur til andsvars við ræðu Hildar Rósar.
Valdimar Víðisson tekur til máls og leggur jafnframt fram tillögu um að málinu verði vísað í bæjarráð.
Forseti ber næst upp framkomna tillögu um að vísa málinu til bæjarráðs. Er sú tillaga felld þar sem fulltrúar framsóknarflokks og Miðflokks greiða atkvæði með tillögunni en fulltrúar meirihluta greiða atkvæði gegn tillögunni.
Næst ber forseti upp til atkvæða framkomna tillögu Einar Geirs um að greitt sé atkvæði um hvern lið tillögurnar. Er hún felld þar sem fulltrúi Miðflokks greiðir atkvæði með tillögunni. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar greiða atkvæði á móti tillögunni. Fulltrúar Framsóknar sitja hjá.
Næst ber forseti upp til atkvæða tillöguna eins og hún lá fyrir í fundarboði. Er tillagan felld þar sem fulltrúi Miðflokks greiðir atkvæði með tillögunni. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar greiða atkvæði á móti tillögunni. Fulltrúar Framsóknar sitja hjá.
Hildur Rós kemur að svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingar og Viðreisnar leggst gegn tillögu Miðflokksins þar sem hún byggir á forsendum sem ekki liggja nægilega skýrt fyrir á þessum tímapunkti.
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar er enn til umfjöllunar í nefndum Alþingis og því liggur ekki fyrir hver endanleg niðurstaða verður þegar frumvarpið kemur til annarrar umræðu í desember. Það er því ótímabært að taka ákvarðanir eða setja fram kröfur um breytingar á fjármögnun samgöngusáttmálans á grundvelli frumvarps sem enn er í vinnslu. Við teljum því ekki rétt að byggja ályktanir um skerðingu ríkisins eða óska eftir samsvarandi frestun á framlagi Hafnarfjarðarbæjar á þessum forsendum. Slík afstaða gæti sent röng skilaboð um stöðu samgöngusáttmálans og skapað óvissu um framgang mikilvægra samgönguframkvæmda.
Við erum sammála því að mikilvægt sé að tryggja ábyrga meðferð fjármuna, gagnsæi í fjármögnun og að samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu skili sem mestum ávinningi fyrir íbúa. Það verður hins vegar að byggja ákvarðanir á heildarmyndinni og endanlegum upplýsingum um fjármögnunina en ekki draga ályktanir út frá tímabundinni breytingu á skiptingu fjárheimilda milli ára.
Að mati meirihlutans er því rétt að bíða eftir endanlegri afgreiðslu fjárlaga og skýrari mynd af fjármögnun samgöngusáttmálans.
Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar sitja hjá við afgreiðslu tillögunnar. Framsókn styður virka þátttöku Hafnarfjarðar í endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og leggur ríka áherslu á að nauðsynlegar framkvæmdir í Hafnarfirði verði færðar framar í framkvæmdaröðinni. Margt er jákvætt í tillögunni. Að mati fulltrúa Framsóknar þarfnast ákveðnir þættir hennar frekari umræðu, faglegrar greiningar og útfærslu. Því hefði verið eðlilegra að vísa tillögunni til bæjarráðs til frekari vinnslu.
Framsókn leggur áherslu á að við endurskoðun samgöngusáttmálans verði staðið vörð um þá hagsmuni sem Hafnarfjörður hefur þegar tryggt sér og að endurskoðunin verði til þess að flýta nauðsynlegum samgöngubótum en ekki tefja þær.
Einar Geir kemur að svohljóðandi bókun:
Meirihluti bæjarstjórnar hafnaði í dag tillögu Miðflokksins um að fela bæjarstjóra að mæta til viðræðna um endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með skýrar kröfur. Þetta eru skýr skilaboð til íbúa um að meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefur enga afstöðu til þess hvort endurskoða eigi sáttmálann, hvaða framkvæmdir eigi að hafa forgang eða hvort íbúar eigi að greiða veggjöld.
| | Greinargerð samgöngusáttmáli.pdf | | |
| | 9. 2611337 - Málnotkun Hafnarfjarðarbæjar, tillaga | Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir málinu á dagskrá bæjarstjórnar. Til afgreiðslu.
Tillaga um málnotkun Hafnarfjarðarbæjar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að Hafnarfjarðarbær noti vandað og hefðbundið íslenskt mál í öllu efni sem gefið er út í nafni bæjarins og stofnana hans, svo sem í tilkynningum, auglýsingum, á vef og á samfélagsmiðlum. Í samræmi við þetta verði fylgt opinberum ritreglum og viðtekinni málvenju um málfræðilegt kyn. Þegar vísað er til fólks almennt eða hóps af óákveðnu kyni verði notað sjálfgefið málfræðilegt kyn, sem er hin hefðbundna málnotkun í íslensku, til dæmis ?allir velkomnir? en ekki ?öll velkomin?.
Bæjarstjórn felur forsetanefnd að móta bænum málstefnu á þessum grunni, sbr. 130. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og leggja hana fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. mars 2027. | Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Orri Björnsson kemur að andsvari. Einar Geir svarar andsvari. Orri kemur að andsvari öðru sinni sem Einar Geir svarar. Orri kemur að stuttri athugasemd.
Elín Anna Baldursdóttir tekur til máls. Einar Geir kemur að andsvari sem Elína Anna svarar. Einar Geir kemur að andsvari öðru sinni.
Kristín Thoroddsen tekur til máls.
Kolbrún Magnúsdóttir tekur til máls.
Valdimar Víðisson tekur til máls undir fundarstjórn forseta. Einnig Einar Geir. Valdimar tekur til máls á ný undir fundarstjórn forseta.
Einar Geir tekur til máls öðru sinni og leggur til breytingu á tillögunni þess efnis að fyrirliggjadi tillögu verði vísað til bæjarráðs í stað forsetanefndar.
Forseti ber næst upp til atkvæða framkomna tillögu með þeirri breytingu að henni verði vísað til bæjarráðs. Er tillagan felld þar sem 10 bæjarfulltrúar greiða atkvæði gegn tillögunni en fulltrúi Miðflokks greiðir atkvæði með tillögunni.
Kristín Thoroddsen kmeur að svohljóðandi bókun:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur þegar samþykkt að ráðast í mótun málstefnu fyrir Hafnarfjarðarbæ og getur því ekki samþykkt tillöguna. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar leggur áherslu á mikilvægi þess að sú vinna verði markviss og að niðurstaða liggi fyrir sem fyrst.
Málstefna er mikilvægt leiðarljós fyrir sveitarfélag eins og Hafnarfjörð. Hún á að stuðla að skýrum, vönduðum og aðgengilegum samskiptum bæjarins við íbúa, starfsfólk og aðra sem eiga samskipti við sveitarfélagið. Jafnframt þarf hún að taka mið af fjölbreyttu samfélagi, tungumáli þess og þeim ólíku aðstæðum sem fólk býr við.
Mikilvægt er að sú málstefna sem Hafnarfjarðarbær setur sér verði ekki útilokandi, heldur byggi á virðingu, víðsýni og jafnræði. Umræðan um málstefnu má ekki einskorðast við afstöðu til kynhlutlauss máls, heldur þarf hún að ná til málnotkunar í víðara samhengi, svo sem skýrleika, aðgengis, málfars, fjölbreytileika og virðingar fyrir ólíkum málvenjum og sjónarmiðum.
Meirihlutinn mun því hvetja áfram þá vinnu sem nú hefur verið samþykkt og leggja áherslu á að hún verði unnin af metnaði og í góðu samtali við samfélagið, þannig að Hafnarfjarðarbær fái skýra og aðgengilega málstefnu sem rúmar ólík sjónarmið og nýtist öllum.
Einar Geir kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins vekur athygli á því að meirihlutinn rökstyður málnotkun bæjarins m.a. með vísan til inngildingar. Þar með viðurkennir meirihlutinn að breytingin sé a.m.k. að einhverju leyti meðvituð stefna en ekki eðlileg málþróun. Sú stefna hefur aldrei verið borin undir bæjarstjórn. „Allir velkomnir“ hefur alla tíð náð til allra, óháð kyni. Það er ekki inngilding að gefa í skyn að það mál sem flestir íbúar tala útiloki suma þeirra. Ég tel að þessi stefna meirihlutans um að Hafnarfjarðarbær noti kynhlutlaust mál ætti að vera lögð fyrir bæjarstjórn og greidd um hana atkvæði.
Kolbrún Magnúsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar leggjast gegn tillögu fulltrúa Miðflokksins um málnotkun Hafnarfjarðarbæjar en taka undir mikilvægi þess að sveitarfélagið setji sér málstefnu. Í samskiptum bæjarins við íbúa á að nota vandaða og skýra íslensku. Til þess þarf starfsfólk að hafa svigrúm til að velja orðalag sem hæfir tilefninu og nær til fjölbreytts hóps íbúa. Jafnréttis- og mannréttindastefna Hafnarfjarðar á að endurspeglast í daglegum samskiptum bæjarins. Að þrengja svigrúm til að nota orðalag á borð við „öll velkomin“ í almennum boðum væri skref aftur á bak í jafnréttisbaráttunni. Bærinn á að hlusta á sjónarmið hinsegin fólks við mótun málstefnu og ávarpa íbúa með þeim hætti að þau finni að þau eigi jafnan samastað í samfélaginu.
| | Greinargerð málnotkun.pdf | | |
| | 10. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn | Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 11.nóvember sl. Fundargerð bæjarráðs frá 12.nóvember sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 28.október sl. b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 4.nóvember sl. c. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskrá sveitarfélaga frá 30.október sl. d. Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 16. október sl. e. Fundargerð stjórnar SSH frá 2. nóvember sl. f. Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 15.október og 5.nóvember sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 11.nóvember sl. a. Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefndar frá 6. og 20. október og 3. nóvember sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 11.nóvember sl. a. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 15.október sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 10.nóvember sl. Fundargerð forsetanefndar frá 16. nóvember sl. | | Elín Anna Baldursdóttir tekur til máls undir liðum 2 og 6 í fundargerð fræðsluráðs frá 11. nóvember sl. Einar Geir Þorsteinsson kemur til andsvars. Elín Anna svarar andsvari. | | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 |
|