| |
| 1. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029 | | Lagðir fram viðaukar 1 og 2. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins. | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026 til bæjarráðs - Öll skjölin.pdf | | Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026 til bæjarráðs - Öll skjölin.pdf | | |
|
| 2. 2601431 - Skuldabréfaútgáfa 2026 | | Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins. | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um sölu skuldabréfa úr skuldabréfaflokknum HFJ 50 1 að fjárhæð 900m.kr.að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,65%. | | Tillaga til bæjarráðs vegna sölu skuldabréfa - Mars 2026.pdf | | |
|
| 3. 2602466 - Afskriftanefnd | | Lagt fram minnisblað. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins. | | Minnisblað til bæjarráðs varðandi endanlega afskrift krafna hjá Húsnæðisskrifstofu.pdf | | |
|
| 4. 2602567 - Samningur um leigu fyrir starfsemi Félag eldri borgara í Hafnarfirði | | Lagður fram til kynningar nýundirritaður samningur um leigu fyrir starfsemi FEBH | | Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að samningar við Verkalýðsfélagið Hlíf um leigu fyrir starfsemi Félags eldri borgara í Hafnarfirði á Flatahrauni 3 hafi loksins náðst í kjölfar þess að Hlíf keypti bókasafnsreitinn af bænum. Þegar Samfylkingin fór fram á umræðu um uppsögn leigusamningsins í bæjarstjórn 10. september sl. þá var ár liðið síðan leigusali hafði upplýst fulltrúa bæjarins um uppsögn húsaleigusamnings sem var svo áréttað á fundum með bæjarstjóra í janúar og maí 2025. Samráðsleysið við stjórn FEBH var algjört og það var stjórn félagsins sem óskaði eftir upplýsingum frá bænum í júlí sl. og það liðu rúmir tveir mánuðir þar til bréf stjórnar FEBH var lagt fram í bæjarráði. Þetta samráðsleysi setti starfsemi FEBH í uppnám og framkoma meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks við stjórn FEBH og félagið í heild var fyrir neðan allar hellur í þessu máli. Frá því Samfylkingin setti málið fyrst á dagskrá í sept. sl. hafa fulltrúar jafnaðarfólks verið lausnamiðaðir og lagt fram fjölda tillagna til þess að höggva á hnútinn og það er ánægjuleg að barátta jafnaðarmanna og eftirfylgni varðandi söluna á Strandgötu 1 hafi á endanum orðið til þess að úr þessu erfiða máli leystist á endanum. Samfylkingin er gerandinn í þessu stóra máli sem varðar eflingu miðbæjar og tryggir líka stöðugleika og varanleika í mikilvægri starfsemi Félags eldri borgara í Hafnarfirði. | | Samningur um leigu fyrir starfsemi Félag eldri borgara í Hafnarfirði.pdf | | |
|
| 5. 2603081 - Krýsuvíkursamtökin, stofnun 2.stigs meðferðarheimilis | | Lagt fram erindi frá Krýsuvíkursamtökunum. | | Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að taka samtalið við forsvarsfólk Krýsuvíkursamtakanna. | | Formlegt erindi til Hafnarfjarðarbæjar_meðferðarheimili Okt 2025.pdf | | |
|
| 6. 2504736 - Bæjar- og tónlistarhátíð, Hjarta Hafnarfjarðar 2025 | | Lögð fram drög að samningi um Hjarta Hafnarfjarðar. | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning. | | 2504736HjartaHafnarfjardarSamningur.pdf | | |
|
| 7. 2602575 - Gaflaraleikhúsið, samstarfssamningur 2026-2028 | 6.liður úr fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 25.febrúar sl. Drög að samning við Gaflaraleikhúsið lögð fram. Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og fagnar því að tryggt sé áframhaldandi öflugt samstarf við Gaflaraleikhúsið. Nefndin lýsir yfir ánægju með það frábæra leiklistarstarf sem leikhúsið hefur haldið úti til að auðga menningarlíf bæjarins undanfarin 13 ár, ekki síst með ríkri áherslu á börn og ungmenni. Nefndin tekur jafnframt mjög jákvætt í þær skapandi lausnir sem leikhúsið hyggst nýta sér á meðan unnið er að framtíðarlausn í húsnæðismálum. Það sýnir metnað og þrautseigju að setja upp sýningar í samstarfi við Bæjarbíó, Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið og jafnvel með útisýningu í Hellisgerði. Nefndin mælir eindregið með staðfestingu samningsins til að styðja áfram við þennan mikilvæga máttarstólpa í menningarlífi Hafnarfjarðar. Samningi vísað til samþykktar í bæjarráði. | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram: Um leið og fulltrúar Samfylkingarinnar fagna samningi við Gaflaraleikhúsið þá minnum við á að aðstaða fyrir leikhús og leikhússýningar er lítil sem engin í Hafnarfirði og mikilvægt er að unnið verði að lausn þeim málum. Fulltrúar Samfylkingarinnar vekja athygli á að þrátt fyrir margítrekuð fyrirheit um menningarhús, sem Samfylkingin hefur ítrekað flutt tillögur um, þá hefur ekkert markvisst gerst í þeim efnum á kjörtímabilinu - að undanskildu því að skipaður var starfshópur að tillögu Samfylkingarinnar sem er enn að störfum. Niðurstöður og tillögur starfshópsins áttu að liggja fyrir eigi síðar en í september 2025 skv. erindisbréfi hópsins og fulltrúar Samfylkingarinnar hvetja til þess að þessari vinnu verði hraðað og niðurstöður og tillögur starfshópsins verði kynntar í bæjarráði sem fyrst.
| | Gaflaraleikhúsið-samningur2026-2028-drög.pdf | | |
|
| 8. 1801249 - Strandgata 6, Bæjarbíó, erindi | Lögð fram drög að breytingum á samningi um rekstur Bæjarbíós.
Á fundi bæjarráðs 19. febrúar var endurnýjun rekstrarsamnings við Bæjarbíó á dagskrá. Óskað var eftir umsögn menningar- og ferðamálanefndar.
Á fundi menningar- og ferðmálanefndar þ. 25.febrúar sl. var eftirfarandi bókað: Menningar- og ferðamálanefnd fagnar erindinu og lýsir yfir mikilli ánægju með hversu vel hefur tekist til með rekstur Bæjarbíós undanfarin ár. Rekstraraðilum hefur tekist að byggja upp öfluga og lifandi menningarstarfsemi í hjarta Hafnarfjarðar, sem hefur eflt menningarlíf bæjarins til muna. Bæjarbíó hefur sannarlega fest sig í sessi sem framúrskarandi tónlistar- og menningarhús þar sem markmiðum um fjölbreytta starfsemi árið um kring hefur verið náð. Nefndin leggur mikla áherslu á að þessu farsæla samstarfi verði haldið áfram og mælir eindregið með því við bæjarráð að rekstrarsamningurinn við Bæjarbíó slf. verði endurnýjaður.
| | Bæjarráðs samþykkir fyrirliggjandi breytingar á samningi við Bæjarbíó. | | 1801249BaejarbioFramlenging.pdf | | |
|
| 9. 2011571 - Samþykkt um gatnagerðargjald í Hafnarfjarðarkaupstað | | Breytingar á samþykkt um gatnagerðargjald til umræðu. | | Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- o gskipulagssviðs að vinna málið áfram milli funda. | | |
|
| 10. 2511201 - Vigdísarholt ehf, viljayfirlýsing, samstarf, nýtt hjúkrunarheimili, Vatnshlíð | | Til umræðu. Sigurður Haraldsson mætir til fundarins. | Bæjarráð samþykkir að undirbúa úthlutun á afmörkuðu svæði í Vatnshlíð, samkvæmt tillögu VSB, til uppbyggingar lífsgæðakjarna. Svæðinu verður úthlutað til Lífsgæði þróunarfélags sem er í samstarfi við Vigdísarholt í samræmi við samkomulag milli aðila og verða aðal- og deiliskipulagsbreytingar svæðisins unnar í nánu samstarfi milli aðila. Í ljósi umfangs verkefnisins er lagt til að skipaður verði samráðshópur um þá þjónustu sem fyrirhuguð er innan lífsgæðakjarnans. Lagt til að erindisbréf hópsins verði lagt fram á næsta bæjarráðsfundi.
| | 26120 Lífsgæðakjarni í Vatnshlíð_tillaga að staðsetningu_minnisblað_með viðaukum_2026_03_03 (2).pdf | | Bæjarráð_Hafnarfjarðar_LÞ290126.pdf | | |
|
| 11. 2603090 - Selhella 10, ósk um lóðarstækkun og breytingu á skráðum lóðarhafa | | Lagt fram erindi frá Selhellu 10 ehf. og Vallarbyggð ehf um breytingu á skráðum lóðarhafa og heimild til stækkun lóðar. | | Bæjarráð heimilar framsal lóðarinnar og tekur jafnframt jákvætt í beiðni um lóðarstækkun. Gatnagerðargjald verður innheimt við úthlutun á stækkaðri lóð. | | Selhella 10 - Breyting á lóðarhafa (1).pdf | | |
|
| 12. 2603066 - Lánasjóður sveitarfélaga, aðalfundur | | Lagt fram fundarboð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga sem fram fer á Grand Hótel 20.mars nk. | | Scan_Óttar Guðjónsson_202602271403.pdf | | |
|
| 13. 2603105 - Verkalýðsfélagið Hlíf, persónuuppbætur tímavinnufólks, dómsmál | | Til umræðu. | Bæjarráð samþykkir að dómurinn hafi fordæmisgildi gagnvart öðrum starfsmönnum í sömu stöðu og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að ganga frá uppgjöri við viðkomandi starfsmenn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Upplýst hefur verið í fjölmiðlum að hópur tímavinnu starfsmanna bæjarins, sem eru félagar í Verkamannafélaginu Hlíf, hafa ekki notið umsaminna kjara. Nýlegur úrskurður héraðsdóms í kjaradeilu starfsmanns og Hafnarfjarðarbæjar leiddi í ljós, að vinnuveitandi, Hafnarfjarðarbær, var dæmdur til greiðslu umtalsverðra upphæða. Mikilvægt er að rétt sé rétt og að ógreiddar kjarabætur verði inntar af hendi til starfsfólks bæjarins, skv. niðurstöðu dómsins. Þú deilir ekki við dómarann. Jafnaðarmenn fagna því að um málið sé samstaða í bæjarráði og að frá málinu verði gengið með sanngjörnum og réttmætum hætti.
| | |
|
| 14. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðuna á vinnslu þess innan stjórnar Strætó BS og SSH. | Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að frá því Samfylkingin lagði fram tillögu um frítt í Strætó fyrir 12-17 ára ungmenni þann 11. febrúar sl. hafa bæði Ungmennaráð og Foreldraráð Hafnarfjarðar lýst yfir eindregnum stuðningi við þá meginhugmynd að frítt verði í Strætó fyrir 12 - 17 ára á fundum fræðsluráðs. Það er ljóst að ekkert er því til fyrirstöðu fyrir Hafnarfjarðarbæ að taka þá ákvörðun að frítt verði í strætó fyrir 12-17 ára í Hafnarfirði og allar nauðsynlegar upplýsingar liggja fyrir til þess að taka ákvörðun í málinu. Eina sem skortir er pólitískur vilji af hálfu meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Samfylkingin mun áfram halda þessu mikilvæga máli á lofti og munum leggja tillöguna fram að nýju á næsta fundi bæjarstjórnar.
| | |
|
| 15. 2503513 - Straumhella 6, breyting | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Farið er fram á að öll samskipti við málsaðila verði lögð fram. | | Bæjarráðsmenn Samfylkingarinnar árétta mikilvægi þess að botn fáist í málið hið allra fyrsta og það til lykta leitt með farsælum hætti. | | |
|
| 16. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um útfærslu á þeirri tillögu meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem samþykkt var á síðasta bæjarstjórnarfundi m.a. um greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf vegna lífsgæðaíbúða. Óskað er eftir því að þeir þrír fulltrúar sem skipuðu starfshópi um málið mæti til fundarins. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram: Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafnaði á síðasta bæjarstjórnarfundi tillögu Samfylkingarinnar um að hefjast handa við uppbyggingu nýrra lífsgæðaíbúða á Sólvangssvæðinu. Það kom á óvart þar sem hann lagði til í upphafi kjörtímabilsins að sú vinna færi af stað. Þess í stað lagði meirihlutinn á flótta og lagði fram sjálfstæða tillögu um greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf vegna lífsgæðaíbúða og um gerð 10 ára uppbyggingaráætlunar. Langt er um liðið síðan þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk voru byggðar í Hafnarfirði að frumkvæði bæjaryfirvalda, eða árunum 1989 og 1992. Í þessu ljósi telja fulltrúar Samfylkingarinnar mikilvægt að fulltrúar starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk mæti á fund bæjarráðs sem fyrst til þess að fara yfir málið. Samfylkingin mun halda málinu til streitu og leggja málið fram að nýju á næsta bæjarstjórnarfundi. Ef núverandi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skortir hins vegar vilja til þess að taka ákvörðun um þessa eðlilegu uppbyggingu þá mun Samfylkingin einfaldlega tryggja það að byggðar verði lífsgæðaíbúðir í nýjum meirihluta á næsta kjörtímabili.
| | |
|
| 17. 2512324 - Álit umboðsmanns, fallið frá ráðningu | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Vísað er til svara við fyrirspurn Samfylkingarinnar sem lögð voru fram á síðasta fundi bæjarráðs. Óskað er eftir því að svörin verði sundurliðuð eftir sviðum. Einnig að gerð verði grein fyrir málavöxtum er varðar þau þrjú mál, þar sem hæstar starfslokagreiðslur voru inntar af hendi. | | |
|
| |
| 18. 2602011F - Hafnarstjórn - 1699 | | Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 18.febrúar sl. | | |
|
| 19. 2001243 - Innkauparáð | | Lögð fram fundargerð innkauparáðs frá 17.febrúar sl. | | |
|
| 20. 2602010F - Menningar- og ferðamálanefnd - 469 | | Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 25.febrúar sl. | | |
|
| 21. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.febrúar sl. | | |
|
| 22. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 16. febrúar sl. | | |
|
| 23. 2108583 - SSH, byggðasamlag, stefnuráð | | Lögð fram fundargerð stefnuráðs byggðasamlaganna frá 27.febrúar sl. | | |
|
| 24. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13.febrúar sl. | | |
|