Til bakaPrenta
Menningar- og ferðamálanefnd - 480

Haldinn Sjá fundargerðarbók,
07.10.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður,
Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður,
Alexander Árnason aðalmaður,
Steinar Bragi Sigurjónsson áheyrnarfulltrúi,
Stefán Sveinn Gunnarsson varaáheyrnarfulltrúi,
Sunna Magnúsdóttir fundarritari, Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri.
Fundargerð ritaði: Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2608181 - Jólaþorpið 2026
Fjallað um Jólaþorpið 2026. Aðferðaráætlun Jólaþorpsins 2026-2028 lögð fram til samþykktar.
Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir aðgerðaáætlun Jólaþorpsins 2026?2028 og fagnar þeirri góðu vinnu sem þar liggur að baki. Nefndin er ánægð með þá skýru framtíðarsýn sem þar kemur fram og hlakkar til að sjá Jólabæinn Hafnarfjörð halda áfram að vaxa og þróast.
2. 2610150 - Hamingjudagar í Hafnarfirði, 2026
Verkefnastjóri fór yfir vel heppnaða dagskrá Hamingjudaga í Hafnarfirði.
Menningar- og ferðamálanefnd fagnar vel heppnuðum Hamingjudögum og fjölbreyttri dagskrá í september. Viðburðir voru vel sóttir og Hamingjudagar hafa fest sig í sessi og falla vel að Hafnarfirði sem heilsubæ.
Nefndin þakkar starfsfólki og öðrum sem komu að dagskránni fyrir góða vinnu og hlakkar til að sjá Hamingjudaga halda áfram að þróast.
3. 2512005 - Menningarstyrkir 2026
Afhending menningarstyrkja, seinni úthlutun 2026, fer fram fimmtudaginn 15.október í Friðrikssal á Bókasafni Hafnarfjarðar.
4. 2601508 - Kórsjóður Hafnarfjarðar
Undirritun samstarfssamninga úr Kórsjóði Hafnarfjarðar sem gerðir voru í vor fer fram fimmtudaginn 15.október í Friðrikssal á Bókasafni Hafnarfjarðar. Kórarnir þrír, Gaflarakórinn, Barbörukórinn og Karlakórinn Þresti fá 500.000 kr hver til þriggja ára.
5. 1410251 - Bæjarbíó, bíóráð, fundargerðir
Fundargerð Bíóráðs lögð fram.
6. 2608310 - Heimar og himingeimar, Bókasafn Hafnarfjarðar, 2026
Verkefnastjóri viðburða á bókasafni Hafnarfjarðar segir frá viðburðinum Heimum og Himingeimum sem haldinn var í september.
Menningar- og ferðamálanefnd fagnar því hversu vel tókst til með Heima og himingeima 2026, sem ríflega 12.000 gestir sóttu. Hátíðin hefur mikið menningarlegt gildi, skapar vettvang fyrir sköpun og jaðarmenningu og leiðir saman ólíka hópa sem fá þar aukinn sýnileika. Nefndin þakkar starfsfólki, sjálfboðaliðum og öðrum sem komu að hátíðinni fyrir góða vinnu.

7. 1912183 - Heimsókn menningar- og ferðamálanefndar í Bókasafn Hafnarfjarðar
Menningar- og ferðamálanefnd fundaði í Friðrikssal og fékk svo kynningu á nýjum húsakynnum í lok fundar.
Menningar- og ferðamálanefnd fagnar því að sjá Bókasafn Hafnarfjarðar eflast á nýjum stað. Það er ánægjulegt að sjá hversu vel starfsemin er farin í gang og nefndin hlakkar til að fylgjast með áframhaldandi þróun safnsins í nýju húsnæði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta