| |
| 1. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar | Á fundi bæjarstjórnar þ. 3. júní sl. var eftirfarandi tekið fyrir: Teknar fyrir kosningar í ráð og nefndir.
Fræðsluráð Formaður Kristín Thoroddsen Burknabergi 4 (D) Varaformaður Árni Stefán Guðjónsson, Kvíholti 1 ( C) Aðalfulltrúi Elín Anna Baldursdóttir, Blikaási 11 (S) Aðalfulltrúi Kolbrún Magnúsdóttir Akurvöllum 2 (B) Aðalfulltrúi Eva Rún Helgadóttir, Suðurbraut 8 (M)
Varafulltrúi Aron Eydal Sigurðsson, Bæjarholti 1 ( C) Varafulltrúi Óskar Steinn Ómarsson, Kirkjuvegi 11B (S) Varafulltrúi Kristjana Ósk Jónsdóttir, Suðurhvammi 5 (D) Varafulltrúi Alexander Árnason, Birkihlíð 21a (B) Varafulltrúi Einar Geir Þorsteinsson, Norðurvangi 5 (M)
| | Lagt fram. | | |
|
| 2. 2605301 - Viljayfirlýsing vegna samstarfs um uppbyggingu sérskóla | | Lögð fram viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu. | Framsókn fagnar viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða mikilvægt framfaraskref í þjónustu við börn sem þurfa sérhæfð skólaúrræði og fjölskyldur þeirra. Framsókn leggur áherslu á að Hafnarfjörður verði metinn sérstaklega sem álitleg staðsetning fyrir nýjan sérskóla enda býr sveitarfélagið yfir sterkum innviðum og miklum metnaði í skóla- og velferðarmálum. Mikilvægt er að framhald vinnunnar verði markvisst, í góðu samstarfi sveitarfélaga, ríkis og fagfólks, með þarfir barna og fjölskyldna þeirra að leiðarljósi.
Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin, Viðreisn og Miðflokkur taka undir bókun Framsóknar
| | 1 Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu..pdf | | 2. Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu ? Fýsileikagreining á samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu sameiginlegs sérskóla.pdf | | HFJ Fylgibréf - sérskóli viljayfirlýsing.pdf | | |
|
| 3. 2605551 - Starfsumhverfi í grunnskólum - SSH | | Lagt fram til kynningar. | | Lagt fram. | | 1. Starfsumhverfi í grunnskólum álag ástæður og úrbætur. Skýrsla mars 2026_.pdf | | |
|
| 4. 2606201 - Símafrí í grunnskólum | Lagt fram til upplýsinga. Mennta- og barnamálaráðuneytisins leggur fram drög um að reglugerð um notkun síma- og snjalltækja í grunnskólum. Lagt fram til hvatningar. Markmiðið með reglugerðinni er að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina. Um leið er markmið hennar að styðja við faglegt skólastarf og að búa nemendum náms- og félagsumhverfi sem styður við farsælt nám þeirra og vellíðan.
Áformin fela m.a. í sér
að notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla sé óheimil á skólatíma og að símar og snjalltæki í eigu eða umsjá skóla skuli eingöngu nota í kennslufræðilegum tilgangi eða vegna stuðningsþarfa nemenda.
Mennta- og barnamálaráðherra hélt nýverið vinnustofu með börnum og ungmennum um símafrí í grunnskólum. Markmið hennar var að kalla eftir sjónarmiðum þeirra um notkun síma og snjalltækja í skóla- og frístundastarfi og móta með ráðherra reglugerð um notkunina. Með kynningarfundunum nú og birtingu í Samráðsgátt verður safnað endurgjöf frá skólasamfélaginu, sveitarfélögum og öllum þeim sem láta þetta mikilvægi málefni sig varða. | | Lagt fram. | | |
|
| 5. 1305252 - Læsisverkefni | | Bjartey Sigurðardóttir verkefnastjóri Lestur er lífsins leikur kynnir stöðu læsismála og næst skref. | Fræðsluráð þakkar verkefnastjóra Lestur er lífsins leikur fyrir kynninguna og fagnar þeim verkefnum sem nú eru í gangi og þeim spennandi verkefnum sem kynnt verða betur á næstunni.
| | |
|
| 6. 2606198 - Starfsaðstæður í grunnskólum | | Til umræðu. | Fræðsluráð felur sviðsstjóra að rýna tillögur og áhættuþætti sem nefndir eru í skýrslu SSH um starfsumhverfi í grunnskólum, með það að markmiði að kortleggja sem best þau atriði sem snúa að grunnskólum Hafnarfjarðar.
Fulltrúi grunnskólakennara lýsir yfir miklum áhyggjum um stöðu grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar. Það kom fulltrúa grunnskólakennara engan veginn á óvart þær niðurstöður sem birtust í skýrslu sem Ingvar Sigurgeirsson og Lilja M. Jónsdóttir framkvæmdu fyrir SSH. Að 60% kennara telji sig starfa undir miklu álagi og jafnvel þrúgandi álagi er grafalvarleg staða. Helsta álagið er, líkt og segir í skýrslunni „tengdir hegðunar- og samskiptavanda, kennslu barna með annað móðurmál en íslensku, krefjandi samskiptum við foreldra, neikvæðri umræðu um skólastarf, skriffinsku, manneklu og mikilli vinnu við námsefnisgerð. Þessir þættir voru gjarnan tengdir umfangsmiklum og tímafrekum störfum umsjónarkennara". Námsefni skólanna er löngu úrelt og er einn af stóru álagsþáttum skólastarfsins. Verið er að kenna 25-30 ára gamalt námsefni. Úrræði Hafnarfjarðarbæjar eru lítil sem engin fyrir börn sem eru jaðarsett, sem leiðir til þess að of seint er gripið inn í alvarlegustu málin loks þegar mál kemst að hjá Barnavernd og/eða annarra fagaðila innan heilbrigðiskerfisins. Vinna umsjónarkennara einkennist oft af „Survivor“ hugsun. Þeir reyna að synda við yfirborðið, en drukkna, sem leiðir til þess að kennarar brenna út í starfi og hætta kennslu áður en þeir ná miðjum aldri. Kennurum er gert að fara yfir ákveðið námsefni og uppfylla ákveðin námsmarkmið á hverju skólaári. Hins vegar er það óvinnandi vegur að vinna þá vinnu vegna þeirra ótal utanaðkomandi auka verkefna sem hent er í kennara sem taka allt of mikinn tíma af kennarastarfinu. Með öðrum orðum, það er lítil sem engin virðing borin fyrir starfi kennara, skipulagi hans og tíma. Fulltrúi Grunnskólakennara tekur undir hvert orð Ingvars og Lilju og leggur fram eftirfarandi: 1. Fjölga úrræðum fyrir börn sem kljást við alvarleg geðræn, hegðunar- eða félagsleg vandamál. 2. Samsetning og stærðir bekkja verði skoðað. 3. Setja foreldrum skýr mörk er kemur að leyfisveitingum. 4. Að fjölga sérfræðistörfum innan skólanna, eins og sálfræðingum, atferlisfræðingum, þroskaþjálfa. 5. Að unnið verði markvisst með trúnaðarmönnum skólanna að betra starfsumhverfi. 6. Tryggja öryggi barna og starfsmanna skólanna með aðgangs - stýringu. 7. Að upptökukerfi verði sett í símkerfi skólanna og verði innleitt skólárið 2026-2027. 8. Auka fræðslu fyrir foreldra (foreldrafærninámskeið). 9. Fyrir umsjónarkennara tekur það a.m.k. 3 - 4 klst. að skrifa 1 skýrslu barns. Það kemur undarlega fyrir sjónir af hverju sérkennarar koma ekki að gerð þessa skýrslna? Það getur verið allt upp í helmingur bekkjar sem þarf greiningu sem segir okkur að það geti farið allt í heila vinnuviku fyrir umsjónarkennara í þessa vinnu yfir skólaárið. Hafnarfjarðarbær getur beitt sér fyrir eftirfarandi innan Sambands Íslenskra sveitarfélaga: 10. Að sveitarfélög setji inn í þróunarsjóði sína næstu árin hvatningu til námsefnisgerðar og veiti kennurum svigrúm til námsefnisgerðar með möguleika á launuðum leyfum. 11. Fækkun kennsluskyldu á umsjónarkennara. 12. „Betri vinnutími“ sem átti að vera styttri vinnutími hjá kennurum þarf að skoða betur en þetta fyrirkomulag gerði það bara að verkum og allir hlaupa hraðar til að ná styttri vinnuviku. Þetta mátti nefnilega ekki „kosta neitt“! Þetta skapaði í raun meiri óánægju en ánægju. Það er von fulltrúa Grunnskólakennara að Hafnarfjarðarbær taki þessa skýrslu alvarlega og skoði leiðir til úrbóta, börnum og starfsmönnum grunnskóla til hagsbóta.
| | 1. Starfsumhverfi í grunnskólum, álag, ástæður og úrbætur. Skýrsla, mars 2026..pdf | | |
|
| 7. 2606199 - Styrkja þjónustu við jaðarsett og félagslega einangruð ungmenni 16-25 ára | | Til umræðu. | | Fræðsluráð felur sviðstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að taka saman minniblað um þá aðstoð og þau úrræði sem ungmenni á umræddum aldri hafa aðgang að í dag. | | |
|
| 8. 2606200 - Auka þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi | | Til umræðu | | Fræðsluráð felur sviðstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að taka saman minniblað um þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi og íþrótta og tómstundastarfi. | | |
|
| |
| 9. 2603378 - Barnvænt sveitarfélag, fundargerðir | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | | Barnvænt sveitarfélag_fundargerð_fundur3..pdf | | |
|
| 10. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs | | Fundargerðir lagðar fram. | | Fundargerðir lagðar fram. | | Ungmennaráð fundargerð_fundur 282_120526.pdf | | Ungmennaráð fundargerð_fundur 283-260526.pdf | | |
|