| |
| 1. 2512298 - Straumhella 11, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 17.12.2025 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindið Björns Guðbrandssonar f.h. Straumhellu 11 ehf. um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að innkeyrsla á lóð er færð fyrir miðja lóð. Erindið var grenndarkynnt frá 22.12.2025 til 27.01.2026. Ábending barst frá Veitum um að ný staðsetning innkeyrslu virðist liggja yfir dreifikerfi Veitna þar sem úrtök fyrir heimæðar liggja. Lóðarhafi hefur haft samráð við Veitur vegna lagna, aðilar hafa fallist á að tillagan verði óbreytt og að ef til komi færsla/endurnýjun lagna falla óþægindi og/eða kostnaður á lóðarhafa.
| | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög, þegar bætt hefur verið við tillöguna texta vegna lagna. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | Straumhella 11, ábending Veitur.pdf | | |
|
| |
| 2. 2602368 - Álfhella 9-11, fyrirspurn | | Smári Björnsson og Kvarnir ehf. leggja 16.02.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir heimild til að færa lóðarmörk milli lóða og stækka byggingarreit við Álfhellu 9. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17.02.2026. | | Álfhella 9-11, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 3. 2602308 - Arnarhraun 12, fyrirspurn | | Sigríður Ása Harðardóttir og Tomasz Ríkarður Tomczyk leggja 16.02.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir leyfi fyrir auka bílastæði á lóðinni. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17.02.2026. | | Arnarhraun 12, umsögn skipulags.pdf | | |
|