| |
| 1. 2205659 - Ráð og nefndir 2022 - 2026, kosningar | Breyting á fulltrúa Samfylkingar í fræðsluráði: Aðalmaður í stað Gauta Skúlasonar verður Elín Anna Baldursdóttir, Blikaási 11, 221 Hafnarfjörður. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 2. 2507285 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, breyting á greinargerð vegna Flensborgarhafnar | 2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23.mars sl. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 17. desember 2025 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting felur í sér breytingu á greinargerðar vegna Flensborgarhafnar, þar sem heimilað verður að byggja 3 hæðir og ris á svæðinu, að fallið sé frá því að á öllum jarðhæðum svæðisins skuli vera verslun og þjónusta og að leitast skuli eftir fremsta megni að tryggja sjónræn tengsl milli hafnar og nærliggjandi byggðar með sjónlínum milli húsa. Tillagan var í kynningu frá 2. febrúar til 16. mars 2026. Athugasemdir bárust. Lögð fram samantekt athugasemda og svör.
Meirihluti skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsfulltrúa og samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna Flensborgarhafnar og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að afgreiðslu fyrirliggjandi breytingu á greinargerð aðalskipulags vegna Flensborgarhafnar verði frestað þar til raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu hafa verið tryggðar.
Samkvæmt samgöngugreiningu Eflu fyrir svæðið frá janúar 2026 er umferðarkerfið þegar komið að þolmörkum sínum. Nauðsynlegt er að taka á þeim áskorunum með heildstæðum hætti, með hliðsjón af skipulagi Suðurhafnar og fyrirhugaðri uppbyggingu við Óseyrarbraut. Um er að ræða allt að þrjú deiliskipulög sem hafa áhrif á sama samgöngukerfi og því óhjákvæmilegt að horfa á að leysa málið í heild og ekki komi til frekari tafa ef þarf að breyta skipulaginu síðar. | Orri Björnsson tekur til máls. Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls.
Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi dagskrártillögu fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Bæjarstjórn samþykkir að afgreiðslu fyrirliggjandi breytingu á greinargerð aðalskipulags vegna Flensborgarhafnar verði frestað þar til raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu hafa verið tryggðar og Vegagerðin hefur skilað tillögum sínum að lausn mála. Greinargerð: Samkvæmt samgöngugreiningu Eflu fyrir svæðið frá janúar 2026 er umferðarkerfið þegar komið að þolmörkum sínum. Nauðsynlegt er að taka á þeim áskorunum með heildstæðum hætti, með hliðsjón af skipulagi Suðurhafnar og fyrirhugaðri uppbyggingu við Óseyrarbraut. Um er að ræða allt að þrjú deiliskipulög sem hafa áhrif á sama samgöngukerfi og því óhjákvæmilegt að horfa á að leysa málið í heild og ekki komi til frekari tafa ef þarf að breyta skipulaginu síðar.
Stefán Már tekur til máls öðru sinni.
Forseti ber næst upp til atkvæða framkomna tillögu um að fresta afgreiðslu málsins. Er tillagan felld þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn frestun málsins. Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar greiða atkvæði með frestu málsins.
Forseti ber næst upp málið eins og það liggur fyrir fundinum og er það samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með samþykki málsins. Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar sitja hjá.
Stefán Már kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu verði tryggðar. Umferðarkerfi svæðisins er þegar komið að þolmörkum samkvæmt samgöngugreiningu Eflu fyrir umrætt svæði frá janúar á þessu ári. Við teljum nauðsynlegt að tekið verði á þeim áskorunum með heildstæðum hætti, með hliðsjón af skipulagi Suðurhafnar og fyrirhugaðri uppbyggingu við Óseyrarbraut. Hætt er við því að ef það verður ekki gert komi til frekari tafa ef þörf verður á að breyta skipulaginu siðar. Bæjarfulltrúar jafnaðarmanna hafa ítrekað á kjörtímabilinu bent á þessa staðreynd, en meirihlutinn skellt við skollaeyrum og vonar að umferðarmálin leysist einhvern veginn í tímans rás og af sjálfum sér. Það er ekki traust nálgun.
| | Athugasemdir og svör vegna breytingar á aðalskipulagi vegna breytinga á greinargerð Flensborgarhafnar.pdf | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | Aðalskipulags breyting vegna Flensborgarhafnar.pdf | | |
|
| 3. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag | 3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23. mars sl. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Þorlákstúns. Tillagan gerir ráð fyrir íbúðabyggð með 47 íbúðum á 46 lóðum, þar af 45 nýjum íbúðarhúsalóðum og einni lóð fyrir núverandi hús við Lyngbarð 18 sem gert er ráð fyrir að verði tvíbýli. Einnig er lagt fram minnisblað Eflu verkfræðisstofu dags. 17.03.2026 vegna hljóðvistar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að loksins sér fyrir endann á vinnu við deiliskipulag Þorlákstúns en það hefur staðið yfir í nær fjögur ár. Hér sem fyrr á kjörtímabilinu koma fram áherslur meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði sem er að fjölga sérbýlum og einkum einbýlum, en nær eingöngu hefur verið úthlutað sérbýlishúsalóðum á þessu kjörtímabili. Slíkt húsnæði hentar ekki fyrstu kaupendum, en skortur er á hagkvæmum íbúðum fyrir þann hóp. Fram að þessu hefur núverandi meirihluti einkum verið að breyta áður samþykktu deiliskipulagi með það í huga að fækka íbúðum og þá sér í lagi fjölbýlum. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að svæðið verði nýtt betur og einkum með fyrstu kaupendur í huga og ungar fjölskyldur. | Orri Björnsson tekur til máls. Einnig Stefán Már Gunnlaugsson, Jón Ingi Hákonarson og Guðmundur Árni Stefánsson.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls undir fundarstjórn forseta. Forseti tekur til máls. Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni undir fundarstjórn forseta.
Orri Björnsson tekur einnig til máls undir fundarstjórn. Árni Rúnar ber af sér sakir.
Stefán Már tekur til máls undir fundarstjórn forseta. Það sama gerir Orri. Stefán Már tekur til máls á ný.
Umræðum um fundarstjórn forseta er lokið.
Forseti ber næst upp málið eins og það liggur fyrir fundinum og er það samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar ásamt fulltrúa Viðreisnar greiða atkvæði með samþykki málsins. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.
Stefán Már kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Hér er um að ræða fyrsta nýja deiliskipulag núverandi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í bæjarlandi á kjörtímabilinu og í því koma fram áherslur meirihlutans í skipulagsmálum og uppbyggingu bæjarins. Á svæðinu er eingöngu gert ráð fyrir sérbýlishúsalóðum. Hvorki er verið að mæta þörfum markaðarins þar sem mest eftirspurn er eftir hagkvæmum íbúðum fyrir fyrstu kaupendur og ungar fjölskyldur eða nýta dýrmætt byggingarland sem best. Á þessu kjörtímabili hefur lóðum eingöngu verið úthlutað fyrir sérbýli og raunar hefur skipulagi víðs vegar um bæinn gjarnan verið breytt með þeim hætti að fjölbýli hafa verið tekin út á kostnað sérbýla. Það er ljóst að ef áfram heldur sem horfir þá mun verða samdráttur í uppbyggingu bæjarins með tilheyrandi fólksfækkun, en skemmst er að minnast að á síðasta kjörtímabili undir stjórn sama meirihluta fækkaði íbúum bæjarins í fyrsta skiptið síðan 1939. Hér þarf að koma stefnubreyting til með áherslu á hagkvæmt húsnæði fyrir alla.
| | Þorlákstún deiliskipulagstillaga.pdf | | Greinargerð_Þorlákstún.pdf | | 111130_MIN_V02_Suðurbrekkureitur_deiliskipulag_hljóðvist.pdf | | |
|
| 4. 2412631 - Almenningssamgöngur | 2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram til samþykktar drög að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. Lögð fram til samþykktar drög að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Páll Björgvin Guðmundsson og Hildigunnar Hafsteinsdóttir frá SSH mæta til fundarins Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | Valdimar Víðisson tekur til máls. Guðmundur Árni Stefánsson kemur til andsvars sem Valdimar svarar. Guðmundur Árni kemur að andsvari öðru sinni.
Guðmundur Árni tekur til máls.
Guðmundur Árni tekur til másl undir fundarstjórn forseta.
Orri Björnsson kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari. Orri kemur að andsvari öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | Fylgibréf HFJ- almenningssamgöngur_þjónustusamningur og samstarfssamningur.pdf | | a Minnisblað framkvæmdastjóra SSH um þjónustusamning og samstarfssamning vegna almenningssamgangna 020326.pdf | | b Lokadrög þjónustusamnings sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf..pdf | | c Lokadrög samstarfssamnings Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf og Strætó bs. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.pdf | | Kynning í byggðarráðum mars 2026.pdf | | |
|
| 5. 2504185 - Samþykkt um bílastæðasjóð | 3.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram tillaga um að lögð verði fram beiðni til innviðaráðherra um heimild til álagningar og innheimtu gjalda vegna stöðubrota í sveitarfélaginu. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um gjaldskrá Bílastæðasjóðs ásamt því að senda beiðni til innviðaráðherra. Vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. | Valdimar Víðisson tekur til máls. Einnig Guðmundur Árni Stefánsson. Valdimar kemur til andsvars.
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs. | | Kynning fyrir ráð apríl 2026.pdf | | Innviðaráðuneytið - beiðni.pdf | | Tillaga að gjaldskrá Bílastæðasjóðs vegna stöðvunarbrota.pdf | | |
|
| 6. 2602306 - Brunnás 29, umsókn um lóð | 11. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn Sigurgeirs Sigurgeirssonar um lóðina nr. 29 við Brunnás Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 7. 2603304 - Vörðuás 17, umsókn um lóð | 12.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20. mars sl. Lögð fram unsókn Jóns Rúnars Ariliussonar um lóðina nr. 17 við Vörðuás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 8. 2602619 - Vörðuás 1-3, umsókn um lóð | 13.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn OFG - Verk ehf um lóðina nr. 1-3 við Vörðuás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 9. 2603136 - Vörðuás 5-7, umsókn um lóð | 14.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn OFG - Verk ehf. um lóðina nr. 5-7 við Vörðuás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 10. 2601344 - Brunnás 20, umsókn um lóð | 15.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 20 við Brunnás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 11. 2601343 - Brunnás 22, umsókn um lóð | 16.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 22 við Brunnás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 12. 2601342 - Brunnás 24, umsókn um lóð | 17.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 24 við Brunnás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 13. 2601341 - Brunnás 26, umsókn um lóð | 18.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 26 við Brunnás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 14. 2601340 - Brunnás 28, umsókn um lóð | 19.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 28 við Brunnás Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 15. 2601339 - Brunnás 30, umsókn um lóð | 20.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20. mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 30 við Brunnás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 16. 2601338 - Brunnás 32, umsókn um lóð | 21.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 32 við Brunnás. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 17. 2603107 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð | 32.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn Aðalsteins Ingvasonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás. Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 18. 2512051 - Byrgisás 9-21,umsókn um lóð | 59.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn Þórs smíði sf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás. Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórs smíði sf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 19. 2512546 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð | 63. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás. Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 20. 2311460 - Ný heilsugæsla í Hafnarfirði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Tillaga lögð fram. | Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að skora á stjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisráðuneytið, að hið allra fyrsta verði opnuð ný heilsugæslustöð staðsett í Vallahverfi/Hamranesi í Hafnarfirði.
Greinargerð: Ljóst hefur verið um langt skeið, að þörf er fyrir bætta þjónustu heilsugæslu í Hafnarfirði og að ný heilsugæslustöð verði staðsett í ört stækkandi Vallahverfi, Hamranesi, Skarðshlið og Vatnshlíð. Skýr vilji bæjarstjórnar í þessum efnum skiptir máli um framgang málsins, þótt rekstur heilsugæslu séu á hendi ríkisvaldsins. Þess vegna er tillagan lögð fram.
Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari. Orri Björnsson kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari. Margrét Vala Marteinsdóttir kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari.
Orri Björnsson tekur til máls.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Margrét Vala Marteinsdóttir kemur að andsvari sem Guðmundur Árni svarar. Margrét Vala kemur að andsvari öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar.
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.
Árni Rúnar tekur til máls.
Helga Ingólfsdóttir tekur til máls og leggur til að bæjarstjórn taki undir bókun fjölskylduráðs. Árni Rúnar kemur að andsvari sem Helga svarar. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni. Helga svarar andsvari.
Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni.
Margrét Vala tekur til máls og leggur til að málinu verði vísað frá.
Guðmundur Árni kemur til andsvars. Margrét Vala svaarr andsvari. Guðmundur Árni kemur að andsvari öðru sinni sem Margrét Vala svarar.
Stefán Már kemur að andsvari við ræðu Margrétar Völu.
Forseti ber næst upp framkomna tillögu um frávísun málsins og er hún samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með frávísun málsins. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði gegn frávísun en fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Fundarhlé kl. 17:45. Fundi framhaldið kl. 18:00.
Hildur Rós Guðbjargardóttir leggur fram svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skilar auðu í þessu stóra hagsmunamáli bæjarbúa sem búa í nýjum hverfum bæjarins; Völlum, Hamranesi, Skarðshlíð og Áslandi. Fulltrúar Samfylkingarinnar harma það að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks treysti sér ekki til að samþykkja tillögu jafnaðarfólks um að bæjarstjórn skori á stjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisráðuneytið um að hið allra fyrsta verði opnuð ný heilsugæsla í Hafnarfirði sem verði staðsett í Vallahverfi/Hamranesi. Ástæðan virðist vera sú að tillagan kemur frá jafnaðarmönnum. Það er gamaldags pólitík af hálfu meirihlutans að taka afstöðu til tillagna á grundvelli uppruna þeirra. Hafnfirðingar, íbúar Valla og nýrra hverfa, eiga betra skilið - velferðarþjónustu í eigin hverfi.
Margrét Vala leggur fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti bæjarstjórnar bendir á að efni þeirrar tillögu sem hér liggur fyrir hafi þegar verið samþykkt samhljóða með bókun í fjölskylduráði Hafnarfjarðar. Meirihluti bæjarstjórnar tekur heilshugar undir bókun fjölskylduráðs enda ríkti sterk pólitísk samstaða allra flokka um hana. Í bókun fjölskylduráðs var sett fram skýr áskorun til heilbrigðisráðherra um eflingu heilsugæslu í bænum og bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir. Sú vinna er þegar hafin. Meirihlutinn leggur áherslu á að mikilvægt sé að standa vörð um þá samstöðu sem náðst hefur um málið og tryggja skýra og markvissa eftirfylgni fremur en að taka nýja ákvörðun um sama efni enda gæti slíkt skapað tvíverknað og óskýr skilaboð um það ferli sem þegar er hafið. Hér er því ekki verið að hafna efni tillögunnar,heldur benda á að málið hefur þegar verið samþykkt og er í vinnslu.
| | |
|
| 21. 2512706 - Sveitarstjórnarkosningar 2026 | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og leggja fram eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn samþykkir að fjölga kjörstöðum í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí nk. úr tveimur í þrjá. Víðistaðaskóli verði kjörstaður til viðbótar við þá tvo sem fyrir eru; Lækjarskóla og Ásvelli íþróttamiðstöð. Greinargerð: Gott aðgengi er að kjörstöðum er grundvallaratriði hvað kosningaþátttöku varðar. Í undanförnum kosningum hefur kosningaþátttak almennt minnkað, ekki síst í sveitarstjórnarkosningum. Þessu þurfa yfirvöld að bregðast við og fjölgun kjörstaða er liður í því. Í Reykjanesbæ, þar sem kjörsókn hefur dregist verulega saman á síðustu árum, á t.d. að fjölga kjörstöðum um tvo þannig að þeir verði þrír í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk. Rúmlega 22 þús. manns búa í Reykjanesbæ en rúmlega 33 þús. manns í Hafnarfirði. Mikilvægt er að bæjarstjórn sé vakandi fyrir því að auðvelda kjósendum lýðræðislega þátttöku og leiti leiða til þess að auka kosningaþátttöku meðal kjósenda í Hafnarfirði. Þess vegna leggur Samfylkingin það til að kjörstöðum í Hafnarfirði verði fjölgað í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk. úr tveimur í þrjá | Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Kristinn Adersen kemur til andsvars og um leið sest Árni Rúnar Þorvaldsson í sæti forseta. Kristinn leggur jafnframt til að fyrirliggjandi tillögu verði vísað frá. Guðmundur Árni svarar andvsvari. Kristinn kemur að andsvari öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar. Kristinn kemur að stuttri athugasemd. Sama gerir Guðmundur Árni.
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.
Forseti ber næst upp framkomna tillögu um frávísun málsins og er hún samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með frávísun málsins. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði gegn frávísun en fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Stefán Már kom að svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar undrast að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafi vísað frá tillögu okkar um fjölgun kjörstaða í bænum úr tveimur í þrjá. Kjörsókn hefur því miður á undanförnum árum almennt farið minnkandi í landinu og nauðsynlegt að bregðast við því. Í þeim efnum skiptir máli að bæjarstjórn Hafnarfjarðar sé vakandi yfir leiðum til þess að tryggja að kjósendur geti með einföldum hætti nýtt sér sinn lýðræðislega rétt, þ.e kosningaréttinn. Mikilvægt er að opinberir aðilar leiti leiða til þess að bregðast við minnkandi kosningaþátttöku. Framlagning þessarar tillögu jafnaðarfólks er liður í því. Nýr kjörstaður í Víðistaðaskóla hefði verið aukin þjónustu við Vesturbæ og Norðurbæ.
Kristinn sest aftur í sæti forseta. | | |
|
| |
| 22. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn | Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23.mars sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 18.mars sl. a. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13. febrúar sl. Fundargerð fræðsluráð frá 18.mars sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 10.mars sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 17.mars sl. Fundargerð bæjarráðs frá 20.mars sl. a. Fundargerðir hafnarstjórnar frá 4. og 18.mars sl. b. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 4. og 11. mars sl. c. Fundargerðir stjórnar SSH frá 2. og 16. mars sl. Fundargerð forsetanefndar frá 23. mars sl. | | |
|