| |
| 1. 2601014 - Skóladagatal 2026 - 2027 leikskólar | | Lagt fram. | | Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi skóladagatal. | | Leikskóladagatal 2026-2027.pdf | | |
|
| 2. 2602351 - Gefum íslensku tíma | | Lagt fram. | | Lagt fram. | | |
|
| 3. 2602248 - Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna | | Lagt fram til kynningar. | Fræðsluráð samþykkir samstarfssamning um miðlægt bráða-og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. Fræðsluráð samþykkir jafnframt verklagsreglur bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
| | Fylgibréf HFJ - viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.pdf | | |
|
| 4. 2511508 - Fundargerðir mánaðarlegra samráðsfunda M&L með Í-mat | | Fundargerðir Matarstundar lagðar fram. | | Fundargerðir lagðar fram. | | Fundargerð_Matarstund_12.01.2026..pdf | | Fundargerð_Matarstund_09.02.2026..pdf | | |
|
|
| 6. 2205659 - Ráð og nefndir 2022 - 2026, kosningar | Lagt fram. Breytingar á fulltrúa Samfylkingar í fræðsluráði.
Aðalmaður í stað Kolbrúnar Magnúsdóttur verður Kolbrún Lára Kjartansdóttir, Arnarhrauni 21
Varamaður í stað Kolbrúnar Láru Kjartansdóttur verður Dagbjört Harðardóttir, Stuðlabergi 38 | | Lagt fram. | | |
|
| 7. 2601013 - Skóladagatal 2026 - 2027 grunnskólar | | Lagt fram. | | Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi skóladagatal. | | Grunnskóladagatal 2026-2027.pdf | | |
|
| 8. 2601346 - HARTS Fyrirlestraröð - Skóli fyrir öll. Aðgengi, inngilding, velferð og árangur. | | Lagt fram. | | Lagt fram. | | |
|
| 9. 2209095 - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, framtíðarhúsnæði | | Lagt fram. | Fræðsluráð tekur undir ákall stjórnenda og starfsfólks Tónlistarskólans um stækkun og lýsir yfir vilja til þess að unnið verði hratt og vel að stækkun. Fræðsluráð vísar greiningu um framtíðarhúsnæði Tónlistarskólans Hafnarfjarðar til skoðunar og umsagnar í umhverfis og skipulagssviði með það í huga að skoðað verði hvort tillaga að stækkun sé möguleg á umræddu svæði.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun. Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því vel og innilega að vinna við undirbúning að stækkun Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sé að fara af stað. Málið hefur verið í vinnslu frá því í byrjun kjörtímabils og mikilvægt að það fái fram að ganga sem allra fyrst.
| | Þarfagreining_Tónlistarskólinn_2026..pdf | | 4378-Tillaga stækkun-20230908-d..pdf | | |
|
| 10. 2602377 - Fyrirspurn Samfylkingar, Hreiðrið ungmennahús | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi fyrirspurnir:
Hversu mörg ungmenni hafa nýtt sér þjónustu Hreiðursins frá opnun? Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir í Hreiðrið? Hafa einhverjir starfsmenn í Hreiðrinu sagt upp störfum? Ef svo er þá hve margir starfsmenn? Hvernig hefur opnunartíma verið háttað frá því að Hreiðrið opnaði og hvernig er opnunartími ákveðinn? | | Fyrirspurnir lagðar fram. | | |
|
| 11. 2602399 - Efling starfssemi félagsmiðstöðva - tillaga fulltrúa Viðreisnar | Tillaga fulltrúa Viðreisnar um eflingu starfssemi félagsmiðstöðva:
Fulltrúi Viðreisnar leggur til að félagsmiðstöðvum Hafnarfjarðar verði tryggt aukið svigrúm til að rýmka opnunartíma sinn í þágu barna og ungmenna í bænum. Jafnframt verði lögð rík áhersla á að efla markvisst hópastarf innan félagsmiðstöðvanna, með sérstakri áherslu á stuðning við og inngildingu jaðarsettra hópa barna.
Greinargerð: Félagsmiðstöðvar gegna lykilhlutverki í forvarnarstarfi sveitarfélagsins og eru mikilvægur griðastaður fyrir börn og ungmenni. Til að tryggja að þjónustan nýtist sem flestum er nauðsynlegt að opnunartími endurspegli þarfir ungmenna og bjóði upp á meiri sveigjanleika en nú er. Lengri opnunartími eykur aðgengi og tryggir börnum öruggt umhverfi undir leiðsögn fagfólks.
Þá er ljóst að hefðbundið ?opið starf? hentar ekki öllum. Rannsóknir og reynsla sýna að börn í viðkvæmri stöðu eða jaðarsettum hópum blómstra oft betur í smærri hópum. Með því að stórauka framboð á skipulögðu hópastarfi getum við mætt þessum einstaklingum þar sem þeir eru, eflt félagsfærni þeirra og dregið úr félagslegri einangrun.
Með þessari tillögu vill Viðreisn tryggja að félagsmiðstöðvar Hafnarfjarðar séu vettvangur fyrir öll börn, í samræmi við menntastefnu bæjarins um fjölbreytni, samvinnu og vellíðan. | | Tillaga lögð fram. | | |
|
| 12. 2602349 - Samningar um afnot af eignum sem heyra undir mennta- og lýðheilsusvið | | Til umræðu. | | Fræðsluráð felur sviðsstjóra að vinna drög að samningum vegna afnota af eignum sem heyra undir mennta- og lýðheilsusvið. | | |
|
| 13. 2602352 - Frítt í strætó | | Ungmennaráð leggur fram bókun. | Ungmennaráð Hafnarfjarðar fagnar tillögunni frá bæjarráði um að hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs fái frítt í strætó. Einnig umræðu í bæjarstjórn í síðustu viku. Við vitum að aðgangur að strætó getur skipt sköpum fyrir fjölskyldur með takmarkað fjármagn, efli sjálfstæði ungmenna og að öll hafi jafnt aðgengi að skóla- og tómstundastarfi.
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn lýsa yfir stuðningi við þá meginhugmynd að hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs eigi kost á gjaldfrjálsri notkun Strætó. Slík útfærsla getur stuðlað að því að ungt fólk temji sér notkun almenningssamgangna, efli sjálfstæði sitt og hafi jafnt aðgengi að skóla- og tómstundastarfi. Á sama tíma telur meirihlutinn mikilvægt að málið sé skoðað heildstætt, með hliðsjón af fjárhagslegum áhrifum, samræmingu á höfuðborgarsvæðinu og þeim reglum og samstarfi sem gilda um almenningssamgöngur. Nauðsynlegt er að tryggja að slík ákvörðun sé tekin á traustum grunni og í samráði við þá aðila sem fara með málefni Strætó. Meirihlutinn leggur því áherslu á að tillagan verði rædd í stjórn Strætó og hjá hinu nýstofnaða félagi um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og vísar málinu til SSH og samstarfsnefndar Strætó til frekari umræðu áður en endanleg afstaða verður tekin.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun. Fulltrúar Samfylkingarinnar minna á tillögu jafnaðarfólks um að frítt verði í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni sem til umræðu var á síðasta bæjarstjórnarfundi. Tillögunni var vísað til umfjöllunar í stjórn Strætó bs., nýstofnuðu félagi um almannasamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og stjórn SSH. Samfylkingin hefur við afgreiðslu allra fjárhagsáætlana á yfirstandandi kjörtímabili lagt fram sambærilega tillögu. Ungmennaráð og Foreldraráð Hafnarfjarðar hafa sömuleiðis ítrekað lagt fram sambærilegar tillögur á síðustu árum. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu að frítt verði í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni.
Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi bókun: Fulltrúi Viðreisnar ítrekar mikilvægi þess að Hafnarfjarðarbær stígi skrefið og niðurgreiði strætókort barna og ungmenna. Slík aðgerð myndi auka jöfnuð, efla sjálfstæði barna og draga úr bílaumferð. Hættum að flækja augljóst réttlætismál með biðleikjum og göngum hreint til verks.
| | |
|