Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 488

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
18.03.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Fannar Freyr Guðmundsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Örn Geirsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
Berglind Guðmundsdóttir verkefnastjóri mætti til fundarins undir fyrsta dagskrárlið.
1. 2601564 - Reykjanesfólkvangur, endurskoðun friðlýsingar
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
Hafsteinn Viktorsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar mætti til fundarins undir öðrum dagskrárlið.
2. 2504185 - Samþykkt um bílastæðasjóð
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
Hafsteinn Viktorsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar mætti til fundarins undir þriðja dagskrárlið.
3. 2512357 - Lögreglusamþykkt Hafnarfjarðarkaupstaðar, breyting, bílastæðasjóður
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
4. 0703337 - Fráveitukerfi, tenging við Garðabæ
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
5. 2512293 - Strætó, breyting á akstursþjónustu Strætó á iðnaðarsvæði
Lagðar fram notkunartölur vegna tilraunarverkefnis með akstur strætisvagna inní iðnaðarhverfið í Hellnahrauni.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í umhverfis- og framkvæmdaráði hefur farið yfir notkunartölur tilraunaverkefnis með áætlunarakstur í Hellnahrauni. Gögnin sýna dræma nýtingu sem réttlætir ekki sérstakan vagn á leiðinni. Ráðið leggur því til að tilraunaverkefninu ljúki samkvæmt áætlun þann 1. apríl og verði ekki framlengt. Í kjölfarið verði aftur tekin upp hefðbundin pantþjónusta, líkt og var fyrir upphaf verkefnisins.

Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mjög varhugavert að taka afdrifaríka ákvörðun um að hætta með akstursþjónustu strætó á leið 26 um Hellnahraun frá og með 1.apríl. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að verkefnið þurfi meiri tíma til þess að sjá notkunartölur á vagninum en notkunartölur síðustu vikna sýna að fleiri hafa nýtt sér þessa leið strætó en nýttu sér pant þjónustu áður. Notkunartölur sýna jafnframt að nýting leiðarinnar hefur aukist og gæti aukist frekar eftir að notendur átta sig betur á að þjónustan er til staðar. Fulltrúar Samfylkingarinnar vilja lengri tíma til þess að taka ákvörðun um þjónustuna og jafnframt telja reynslutíman of stuttan til þess að taka ákvörðun um afdrif leiðarinnar til framtíðar.

Fulltrúi Viðreisnar óskar eftir heildstæðri endurskoðun á leiðakerfi Strætó fyrir innanbæjarvagna í Hafnarfirði með það að markmiði að bæta aðgengi íbúa, skilvirkni og tengingar við atvinnu- og þjónustusvæði.

26.3.4 Greining á leið P26 um Hellnahraun jan-feb 26.pdf
6. 2512726 - Umhverfis- og skipulagssvið, útboð og verksamningar 2026
Kynntar niðurstöður útboða á slætti stofnana, beðahreinsun og vegmerkingum.
Lagt fram til kynningar.
7. 2603062 - Lækjarkinn, bekkur í bæjarlandi
Lagt fram erindi Friðriks E Yngvasonar fh. afkomenda Yngva Rafns Baldvinssonar varðand bekk í bæjarlandi til minningar um hann.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið. Staðsetning og nánari útfærsla skal unnin í samráði við sviðið.
8. 2603120 - Mygludalir, vatnafarsrannsókn
Tekin til umræðu vatnafarsrannsókn í Mygludölum.
Tekið til umræðu.
9. 2410019 - Kaplakriki, frjálsíþróttasvæði, ástand, hvatning um viðhald
Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Viðreisnar í fræðsluráði sem vísað var til umhverfis- og skipulagssviðs þann 4. mars sl. ásamt drögum að svari.
Lagt fram.
Fræðsluráð - 572 (4.3.2026) - Kaplakriki, frjálsíþróttasvæði, ástand, hvatning um viðhald.pdf
10. 1510061 - Ásvellir, uppbygging
Lögð fram til kynningar útboðslýsing 2. áfanga Knatthúss Hauka.
Lagt fram.
11. 2603180 - Ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands
Lögð fram ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands sem samþykkt var einróma á nýafstöðnu Siglingaþingi Siglingasambands Íslands.
Lagt fram og lagt til að ályktunin verði einnig lögð fram í skipulags- og byggingarráði og Hafnarstjórn.
Askorun til sveitastjórna.pdf
Fundargerðir
12. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð 421. fundar stjórnar Strætó bs.
Fundargerð stjórnarfundar nr 421 13022026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:48 

Til bakaPrenta