Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3711

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
09.07.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir varaformaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Böðvar Ingi Guðbjartsson varamaður,
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
Lántökuheimild.
Bæjarráð samþykkir að veita sviðsstjóra fjármálasviðs heimild til að óska eftir tilboðum í þessa viðbótar lántöku. Tilboð og tillaga til lántöku verður lögð fyrir bæjarráð og fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Tillaga til bæjarráðs vegna hækkunar á lántökuheimild ársins.pdf
2. 2512460 - Lántaka 2026
Lagt fram erindi frá sviðsstjóra fjármálasviðs vegna lántöku.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir framlagða beiðni um lántöku.

Jafnframt er samþykkt að Þórði Þórarinssyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, kt. 081167-5759, og/eða Helgu Benediktsdóttur, sviðsstjóra fjármálasviðs, kt. 120468-3599, verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að undirrita fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar þá lánssamninga sem bæjarráð samþykkir, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Tilboð og tillaga til lántöku verður lögð fyrir bæjarráð og fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Bókun bæjarráðs:

Bæjarráð Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkti í dag, í umboði bæjarstjórnar, að hækka lántökuheimild A-hluta á árinu 2026 um 3.000 m.kr.Lántökuheimild A-hluta á árinu 2026 er 4.500 m.kr. skv. fjárhagsáætlun ársins en verður 7.500 m.kr. eftir hækkunina.Gert er ráð fyrir að lántaka yrði til allt að 7 ára til að mæta miklum framkvæmdum hjá bænum á sama tíma og hægst hefur á framkvæmdum hjá verktökum og öðrum húsbyggjendum. Bæjarráð hefur einnig samþykkt að veita sviðsstjóra fjármálasviðs heimild til að óska eftir tilboðum í þessa viðbótar lántöku. Tilboð og tillaga að lántöku verður lögð fyrir bæjarráð og fyrir bæjarstjórn til samþykkta.
Tilkynning - Hækkun á lántökuheimild ársins.pdf
3. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá.
Bæjarráð samþykkir að fella á brott ákvæði gjaldskrár um afslátt vegna Svansvottunar, BREEAM-vottunar eða sambærilegra vottunarkerfa.
Minnisblað um breytingar á gjaldskrá um umhverfisvottanir_Lagt fyrir bæjarráð 9 júlí 2026_.pdf
4. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar
Breytingar á varamanni Samfylkingarinnar í yfirkjörstjórn.
Kolbrún Lára Kjartansdóttir víkur sem varamaður og í hennar stað kemur Ófeigur Friðriksson.
Samþykkt.
5. 2001243 - Innkauparáð
Lagt fram endurskoðað erindisbréf innkauparáðs og skipað í ráðið.

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf fyrir Innkauparáð og eftirfarandi kosningu fulltrúa í ráðið:

Aðalmenn
Sigurjón Ingvason, Suðurgötu 70, Viðreisn, formaður.
Margrét Hildur Guðmundsdóttir, Hverfisgötu 61, Samfylkingin.
Ragnar Þór Reynisson, Engjavöllum 5, Framsóknarflokkurinn.
Kristín Þóra Lövdahl Reynisdóttir. Norðurvangur 5, Miðflokkurinn
Einar Páll Þorgilsson Mathiesen Breiðvangur 24, Sjálfstæðisflokkur.


Varmenn
Árni Freyr Ársælsson, Staðarhvammi 21, Samfylkingin.
Kolbrún Magnúsdóttir, Akurvöllum 2, Framsókn.
Ellert Þór Arason, Suðurgata 104, Viðreisn.
Guðjón Óskar Guðmundsson, Norðurbakka 21A, Sjálfstæðisflokkur.
Arnhildur Ásdís Kolbeins. Gauksási 57, Miðflokkur.

Erindisbréf fyrir innkauparáð drög 02.07.2026 TC.pdf
6. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar
Teknar fyrir kosningar til öldungaráðs til 4 ára og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til 4 ára.
Eftirfarandi kosnir í Öldungaráð:

Aðalfulltrúi Valgerður María Guðmundsdóttir, Norðurbakka 13B (S)
Aðalfulltrúi Elsa Dóra Grétarsdóttir, Herjólfsgötu 32 (D)
Aðalfulltrúi Þórarinn Þórhallsson, Smyrlahraun 6. (B)

Varamaður Auðbergur Magnússon, Hverfisgata 4 (C)
Varamaður: Guðmundur Fylkisson, Móabarð 20. (B)
Sigrid Foss, Arnarhraun, 40 (S)

Eftirfarandi kosnir í samráðshóp um málefni fatlaðsfólks:

Formaður Hermann Ingi Stefánsson, Drangsskarði 17C (S)
Varaformaður Ágústa Sigurjónsdóttir, Gauksási 11 ( C)
Aðalfulltrúi Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, Miðvangur 10 (B)








7. 2606149 - Erindisbréf ráða og nefnda
3.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 24.júní sl.
Lögð fram tillaga að breytingum á erindisbréfi umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir breytingar á 9. grein erindisbréfsins og vísar til staðfestingar í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf.
8. 2606605 - Atvinnustefna, starfshópur
Lagt fram erindisbréf starfshóps um atvinnustefnu og skipað í hópinn.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og skipar um leið eftirfarandi aðila í starfshópinn:

Vaka Ágústsdóttir, Stuðlabergi 80 Formaður (C)
Guðjón Óskar Guðmundsson, Norðurbakka 21A (D)
Kolbrún Magnúsdóttir, Akurvöllum 2 (B)

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir að setja á laggirnar starfshóp sem hafi það hlutverk að móta heildstæða atvinnustefnu fyrir Hafnarfjarðarbæ.
Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í að skapa skilyrði fyrir öflugt og fjölbreytt atvinnulíf innan sinna marka. Þrátt fyrir að beinn stuðningur við einstaka atvinnurekendur sé takmarkaður samkvæmt reglum um jafnræði, hafa sveitarfélög svigrúm til að styðja við atvinnuþróun með stefnumörkun, skipulagi og almennri uppbyggingu.
Erindisbréf starfshópur um atvinnustefnu júlí 2026.pdf
9. 2607056 - Ósk um lóðarvilyrði, Furuhella 7, 9, 12, 14 og Birkihella 8, 10
Lögð fram ósk um lóðarvilyrði.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi ósk um vilyrði og það verði veitt til 6 mánaða.
Bréf til Hafnarfjarðar - vilyrði I4.pdf
Bréf til bæjarráðs.pdf
10. 2604127 - Krýsuvík, lóðafyrirkomulag
Tekið fyrir að nýju.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að ræða við hlutaðeigandi aðila um framhaldið.
Krýsuvíkusamtökin bréf til Hafnarfjarðar - lóðamörk 13april2026.pdf
11. 2604461 - Norðurhella 1, beiðni um umsögn
Nýtt lyfsöluleyfi, umsagnarbeiðni
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi umsögn.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt lyfsöluleyfi.pdf
Norðurhella 1, umsögn.pdf
12. 2307094 - Hávaðakortlagning og aðgerðaáætlun sbr ákvæði í reglugerð nr. 1000 2005
5.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 24.júní sl.

Tekið fyrir að nýju. Áætlunin var í kynningu 12. maí - 15. júní 2026. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir aðgerðaráætlun gegn hávaða á árunum 2023 - 2028 og vísar til bæjarráðs, í umboði bæjarstjórnar, til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fyrirliggjandi aðgerðaráætlun.
111126-SKY-001_V01_Aðgerðaáætlun gegn hávaða.pdf
13. 2511483 - Krýsuvík, kynning
Lögð fram beiðni um framlengingu á viljayfirlýsingu.

Viljayfirlýsing var samþykkt í bæjarráði þann 30. april sl. þar sem gert var ráð fyrir niðurstaða um verkefnð lægi fyrir innan 90 daga.

Lagt fyrir bæjarráð að samþykkja að framlengja umrædda viljayfirlýsingu þannig að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 1. janúar 2027.
Samþykkt.
Viljayfirlýsing um samstarf á svæði Krýsuvíkur.pdf
14. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi
Fulltrúi Framsóknarflokksins óskar eftir upplýsingum um stöðu máls hvað varðar uppkaup og samskipti við Tækniskólann og Ríkið vegna þessa.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40 

Til bakaPrenta