Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 498

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
14.10.2026 og hófst hann kl. 08:45
Fundinn sátu: Hildur Rós Guðbjargardóttir formaður,
Óli Örn Eiríksson varaformaður,
Arnhildur Ásdís Kolbeins aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Helga Björg Loftsdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2610123 - Hlíðarþúfur, bílastæði
Lagt fram erindi stjórnar Húsfélagsins að Hlíðarþúfum þar sem óskað er eftir að Hafnarfjarðarbær taki til skoðunar notkun bílastæða á landi bæjarins við hesthúsin í Hlíðarþúfum. Hafsteinn Viktorsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar mætir til fundarins.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til vinnu skipulagsdeildar við endurskoðun deiliskipulags athafnasvæðis Hestamannafélagsins Sörla. Bent er á að bílastæðin eru ekki ætluð til langtímageymslu bifreiða, eftirvagna og annarra lausamuna.
2. 1511193 - Hugtakið vistvangur, staðarval, ósk um samstarf
Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt mætir til fundarins og kynnir Vistvanginn í Krýsuvík.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar sviðinu að endurskoða samning við Gróður fyrir fólk um uppgræðslu og endurheimt vistkerfa í Krýsuvík.
3. 2608181 - Jólaþorpið 2026
Verkefnastjóri menningar- og ferðamála mætir til fundarins og kynnir skipulag Jólaþorpsins og lokanir vegna þess.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar Sunnu Magnúsdóttur fyrir kynninguna og samþykkir að veita leyfi fyrir lokun á Strandgötu þá daga sem Jólaþorpið er opið. Jafnframt lokun á Ráðhústorgi frá 18. október til áramóta.
Jólabærinn Hafnarfjörður_UMFRAM án video.pdf
Ishmael Roberto David verkefnastjóri mætir til fundarins undir fjórða dagskrárlið.
4. 1106043 - Gatnalýsing í Hafnarfirði
Tekið til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar hve LED væðing gatnalýsingar hefur gengið vel í Hafnarfirði og er henni nær lokið. Bilanir eru tíðari á haustin en sjálfvirk snjallstýring er komin á alla gatnalýsingu sem bætir alla umsjón og yfirsýn svo hægt er að bregðast við bilunum jafnóðum.
5. 2204136 - Reykjanesbraut frá Lækjargötu að Kaplakrika
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
6. 2609168 - Lækurinn, hjólastígur
Tekið fyrir að nýju.
Tekið til umræðu.
7. 0703337 - Fráveitukerfi, tenging við Garðabæ
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:25 

Til bakaPrenta