Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 958

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
28.10.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Viktor Sigurðsson byggingafulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir skipulagsfulltrúi,
Katrín Heiðar aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2605593 - Miðvangur 149, byggingarheimild
Stefán Már Víðisson sækir þann 28.05.2026 um leyfi til að byggja við núverandi íbúðarhús að Miðvangi 149 með viðbyggingu ofan á núverandi bílskúr.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2609005 - Byrgisás 1, byggingarleyfi
Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa sækir 01.09.2026 um að byggja tvílyft parhús með innbyggðum bílskúr.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2609006 - Byrgisás 3, byggingarleyfi
Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa sækir 01.09.2026 um að byggja tvílyft parhús með innbyggðum bílskúr.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2609102 - Fluguskeið 18, byggingarheimild
Davíð Karl Karlsson f.h. lóðarhafa sækir 07.09.2026 um leyfi til að byggja 8 hesta hesthús á einni hæð með millilofti.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2609103 - Fluguskeið 18a, byggingarheimild
Davíð Karl Karlsson f.h. lóðarhafa sækir 07.09.2026 um leyfi til að byggja 8 hesta hesthús á einni hæð með millilofti.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2609272 - Tinnuskarð 32a, reyndarteikningar
Andri Ingólfsson f.h. lóðarhafa leggur þann 17.09.2026 inn reyndarteikningar fyrir lokaúttekt.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2609350 - Straumhella 18, MHL.01, byggingarheimild
Jón Davíð Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir 22.09.2026 um leyfi til byggingar geymsluhúsnæðis. Á lóðinni eru tveir matshlutar, hér er verið að sækja um MHL.01 þar sem um er að ræða 12 geymslubil með millilofti í 10 bilum.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
8. 2609351 - Straumhella 18, MHL.02, byggingarheimild
Jón Davíð Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir 22.09.2026 um leyfi til byggingar geymsluhúsnæðis. Um er að ræða tvö hús á lóðinni, hér er verið að sækja um MHL.02, þar sem um er að ræða 22 geymslubil með milliloftum í 3 bilum.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
9. 2610671 - Öldugata 29, reyndarteikningar
Halldór Eiríksson f.h. Skarðsár hf. leggur 27.10.2026 inn reyndarteikningar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
10. 2610548 - Tinnuskarð 2, reyndarteikningar
Jóhann Einar Jónsson f.h. lóðarhafa leggur 21.10.2026 fram reyndarteikningar vegna málsnúmer: 2406440. Byggingarlýsing um lóðarfrágang og staðsetning sorps er uppfærð.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
11. 2608217 - Baughamar 5-7, breyting
Gunnar Örn Egilsson f.h. lóðarhafa leggur þann 17.08.2026 inn reyndarteikningar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
12. 2610487 - Ásbraut 6, MHL.02, byggingarheimild
Ingiþór Björnsson f.h. Veitna ohf. sækir 16.10.2026 um að skrá dreifistöðina, sem er þegar á staðnum, sem matshluta 02 á lóðinni.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
13. 2605074 - Hraunstígur 5, breyting
Jökull Constantin Jörgensen sækir 04.05.2026 um leyfi fyrir byggingu á suðurkvist.
Erindinu er synjað, samræmist ekki deiliskipulagi. Vakin er athygli á að hægt er að sækja um breytingu á deiliskipulagi.
B-hluti skipulagserindi
14. 2610637 - Jötnahella 3, breyting á deiliskipulagi
Valur Arnarson f.h. lóðarhafa sækir 23.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í tilfærslu á innkeyrslu um 12,6 m til vesturs.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Jötnahella 3, breyting á deiliskipulagi.pdf
15. 2610460 - Hringhella 2, breyting á deiliskipulagi
Ásgeir Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir 16.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingarnar verða á innkeyrslum austan við lóðina, þannig að innkeyrslur verða tvær þeim megin, í stað þriggja. Innkeyrsla sunnan megin Hringhellu 2 færist til austurs.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Hringhella 2, deiliskipulagstillaga.pdf
D-hluti fyrirspurnir
16. 2610305 - Kvistavellir 9, fyrirspurn
Viktor Ómarsson og Rakel Þorsteinsdóttir leggja þann 12.10.2026 fram fyrirspurn vegna stækkunar á bílskúr. Einnig er óskað eftir því að þak bílskúrs verði einhalla til austurs og að viðarklæðningu á eldhúsi verði breytt.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20.10.2026.
Kvistavellir 9, umsögn skipulags.pdf
17. 2610326 - Tinnuskarð 4, fyrirspurn
Valur Þór Sigurðsson f.h. lóðarhafa leggur þann 12.10.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir breytingu á gildandi deiliskipulagi. Breytingin felur í sér fækkun hæða úr þremur í tvær, breytingu á byggingarreitum og afmörkun sérstaks byggingarreits fyrir tæknirými neðanjarðar.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27.10.2026.
Tinnuskarð 4, umsögn skipulags.pdf
18. 2610518 - Herjólfsgata 22, fyrirspurn
Anna Stella Tryggvadóttir leggur þann 20.10.2026 fram fyrirspurn varðandi einkabílastæði inn á lóðina.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.10.2026.
Herjólfsgata 22, umsögn skipulags.pdf
19. 2609265 - Drangahraun 7, fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Stefáns Hallssonar frá 17.09.2026 þar sem óskað er eftir því að færa byggingarreit á lóðinni Drangahraun 7. Uppfærð gögn hafa borist þann 12.10.2026.
Tekið er neikvætt í erindið, sjá umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.10.2026.
Drangahraun 7, umsögn skipulags 28.10.2026.pdf
20. 2610547 - Trönuhraun 9, fyrirspurn, bf
Stefán Arnórsson leggur þann 21.10.2026 fram teikningar af innanhúss breytingum sem farið var í.
Sækja þarf um byggingarleyfi og leggja inn byggingarnefndarteikningar.
F-hluti önnur mál
21. 2608298 - Víðistaðatún, stöðuleyfi, viðburður
Hundaræktarfélag Íslands sækir 18.08.2026 um leyfi til sýningarhalds dagana 6.08.2027-8.08.2027.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar afnot af Víðistaðatúni umbeðið tímabil en bendir á að vegna afnota af salerni og tjaldsvæði þarf að hafa samráð við Hraunbúa þar sem þeir eru umsjónaraðilar þess. Það má búast við að gestir verði á tjaldsvæðinu þennan tíma og verður að taka tillit til þeirra sem og viðburða er kunna að vera í kirkjunni á sama tíma. Allt rusl skal fjarlægt og skal skila svæðinu í viðunandi ástandi.
22. 2608297 - Víðistaðatún, stöðuleyfi, viðburður
Hundaræktarfélag Íslands sækir 18.8.2026 um leyfi til sýningarhalds dagana 11.06.2027-13.06.2027.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar afnot af Víðistaðatúni umbeðið tímabil en bendir á að vegna afnota af salerni og tjaldsvæði þarf að hafa samráð við Hraunbúa þar sem þeir eru umsjónaraðilar þess. Það má búast við að gestir verði á tjaldsvæðinu þennan tíma og verður að taka tillit til þeirra sem og viðburða er kunna að vera í kirkjunni á sama tíma. Allt rusl skal fjarlægt og skal skila svæðinu í viðunandi ástandi.
23. 2610457 - Strandgata 6, tjald, stöðuleyfi
Rekstraraðilar Bæjarbíós slf. sækja 16.10.2026 um stöðuleyfi fyrir tjaldi á útisvæði Mathiesen torgs og salernisgámum á hluta bílastæða aftan við Bæjarbíó frá 2.11.2026 til og með 29.12.2026 vegna Jólahjarta Hafnarfjarðar.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi umbeðið tímabil.
24. 2610667 - Jólaþorpið í Hafnarfirði, matarvagn við Hafnarborg, stöðuleyfi
Sunna Magnúsdóttir f.h. Hafnarfjarðarbæjar sækir 27.10.2026 um stöðuleyfi fyrir matarvagn við Hafnarborg í tengslum við Jólaþorpið í Hafnarfirði 2026. Tímabil 13.11.2026-23.12.2026.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi umbeðið tímabil í tengslum við Jólaþorpið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta