| |
| 1. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029 | | Mánaðaryfirlit 2025 lagt fram. | | Lagt fram. | | |
|
| 2. 2603376 - Íbúaþróun | | Lagt fram til kynningar. | | Lagt fram. | | |
|
| 3. 2510238 - Samstarfsyfirlýsing vegna barna í viðkvæmri stöðu í Hafnarfirði | | Lagt fram til kynningar. | | Lagt fram. | | Farsæld barna í Hafnarfirði og verklag um samvinnu vegna barna í viðkvæmri stöðu.pdf | | |
|
|
| 5. 2603377 - Erindi frá foreldrum drengja í Barnaskóla Hjallastefnunnar | | Erindi lagt fram. | Sviðsstjóra falið að svara spurningum sem lagðar eru fram í bréfi frá foreldrum drengja í Barnaskóla Hjallastefnunnar. Fræðsluráð felur sviðsstjóra jafnframt að eiga samtal við Barnaskóla Hjallastefnunnar um samning milli skólans og Hafnarfjarðarbæjar. | | Erindi frá foreldrum drengja í Barnaskóla Hjallastefnunnar..pdf | | |
|
| 6. 2603379 - Skólastjóri Víðistaðaskóla | | Lagt fram. | Sviðsstjóra falið að hefja ferli við ráðningu skólastjóra Víðistaðaskóla. Sviðstjóra einnig falið að taka saman minnisblað við fyrirspurn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar í fræðsluráði leggja fram eftirfarandi bókun. Hluta yfirstandandi vetrar hafa birst fréttir í fjölmiðlum um óánægju innan Víðistaðaskóla. Fyrir nokkrum mánuðum var skólastjóri sendur í leyfi og nýr skólastjóri settur tímabundið í starfið. Samhliða var leitað til sérfræðinga á sviði mannauðsmála til að framkvæma úttekt á stöðunni og leggja fram tillögur til úrbóta. Samkvæmt fjölmiðlum felst niðurstaða þeirrar úttektar í tilfærslu ráðins skólastjóra og ákvörðun um að auglýsa starfið laust til umsóknar en að settur skólastjóri gegni starfinu út skólaárið.
Þetta mál hefur þróast áfram án þess að fræðsluráði hafi verið greint frá málinu. Fræðsluráði ber að hafa umsjón með gæðum skólastarfs og eftirlit með stærri ákvörðunum sem varða hag og velferð nemenda og starfsfólks. Í ljósi þessa óska fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar eftir minnisblaði frá sviðsstjóra Mennta- og lýðheilsusviðs um málið.
| | |
|
| 7. 2511508 - Fundargerðir mánaðarlegra samráðsfunda M&L með Í-mat | | Fundargerðir lagðar fram. | | Fundargerðir lagðar fram. | | Fundargerð frá Matarstund_090326.pdf | | Fundargerð matarstundar_090326.pdf | | |
|
| 8. 2603375 - Tónlistarskóladagatal 2026-2027 | | Lagt fram til afgreiðslu. | | Samþykkt. | | Tónlistarskóladagatal 2026-2027.pdf | | |
|
| 9. 2603380 - Fræðsla um svefn og næringu fyrir ungmenni | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sett verði á fót markviss og samræmd fræðsla um svefn og næringu fyrir öll ungmenni í Hafnarfirði, með það að markmiði að bæta líðan og styðja við heilbrigðan lífsstíl. | | Sviðsstjóra falið að afla upplýsinga frá skólastjórnendum hvernig fræðslu er háttað í skólum varðandi svefn og næringu. | | Fræðsla um svefn og næringu fyrir ungmenni_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 10. 2603381 - Aðgangur nemenda að fartölvum í grunnskóla | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að öllum nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum bæjarins verði tryggður aðgangur að fartölvum til reglubundinnar notkunar í námi. | | Fræðsluráð samþykkti í fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 að kaupa fartölvur fyrir 10.bekk og er sú innleiðing í gangi. Fræðsluráð vísar tillögu um fartölvur fyrir 9. bekk til umræðu í hópi skólastjórnenda grunnskóla og þeirra sem að slíkri breytingu koma innan stjórnsýslunnar áður en ákvörðun verður tekin í málinu. | | Aðgangur nemenda að fartölvum í grunnskóla_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 11. 2603382 - Gervigreindarstefna í hafnfirsku skólastarfi | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til tillögu um mótun gervigreindarstefnu fyrir skólastarf í Hafnarfirði. | | Fræðsluráð felur sviðsstjóra að vinna að tillögu að gervigreindarstefnu í takt við þá vinnu sem nú þegar er í gangi innan Hafnarfjarðar og í takti við þá vinnu sem er í gangi í nágrannasveitarfélögum. Hvatt er til þess að stefnan verði tilbúin fyrir næsta skólaár. | | Gervigreindarstefna í hafnfirsku skólastarfi_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 12. 2603383 - Seinkun á byrjun skóladags hjá ungmennum | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að grunnskólar í bænum samræmi upphaf skóladags og færi hann til seinna á morgnanna, með það að markmiði að bæta líðan, heilsu og námsárangur nemenda. | | Fræðsluráð hvetur skólaráð hvers skóla að eiga samtal um byrjun skóladags síns skóla. Heimild er til staðar hjá hverjum skóla fyrir sig til að haga byrjun skóladagsins eins og þeim þykir heppilegast. Fræðsluráð hvetur skólastjórnendur til að taka jákvætt í erindi Ungmennaráðs, enda margt sem bendir til þess að slík breyting geti haft góð áhrif á líðan nemenda. | | Seinkun á byrjun skóladags hjá ungmennum_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 13. 2603384 - Verklegt nám í kennslu | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að grunnskólar í bænum leggi aukna áherslu á verklegt nám í kennslu, með það að markmiði að efla fjölbreytileika náms. | Fræðsluráð vísar tillögu til umfjöllunar á vettvangi skólastjórnenda grunnskóla. Jafnframt er óskað eftir því að það samtal sé tekið áfram með ungmennaráði og betri skilgreining á því hvaða námsgreina vísað er til. Ljóst er að ólíkir nemendur læra á mismunandi hátt og því er mikilvægt að skólastarf taki mið af því. Fræðsluráð leggur áherslu á að halda áfram að efla kennslu sem byggir meira á verklegri kennslu, að læra með því að framkvæma, þar sem verklegt nám, sköpun og verkefnamiðuð nálgun fá aukið vægi samhliða bóklegu námi. Slík nálgun getur stutt betur við þarfir fjölbreytts nemendahóps og aukið þátttöku, áhuga og skilning nemenda í námi. Mikilvægt er að áfram verði unnið að þróun kennsluhátta í þessa átt, í góðu samstarfi við skólasamfélagið.
Fulltrúi grunnskólakennara fagnar tillögu Ungmennaráðs. Í skólum Hafnarfjarðar er það algengt að verkgreinar séu felldar niður á unglingastigi vegna annara bóklegra greina og valgreina, sem er miður. Verkgreinar mæta þörfum allra nemenda, eflir sköpun, samstarf, sjálfstæði, tengsl við atvinnulífið og hið raunverulega líf. Er það þekkt að þeir nemendur sem rekast illa í bóklegu námi, blómstra í verkgreinum. Kennarar með verklega reynslu og reglulega fagþróun skapa trúverðugan áhuga nemenda. Verkgreinar hvetja til frumleika, lausnaleitar og verkefna sem geta orðið að viðskiptum og/eða samfélagsverkefni. Fulltrúi grunnskólakennara hvetur skólasamfélagið og undirstrikar mikilvægi þess að koma á móts við óskir nemenda og mæta þörfum samfélagsins er kemur að verklegum greinum þar sem þörf er á fólki.
| | Verklegt nám í kennslu_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 14. 2603385 - Skólasund í grunnskólum | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að dregið verði úr skólasundi í grunnskólum og að sundkennsla verði kynjaskipt. | | Fræðsluráð kallar eftir upplýsingum um það hvernig þessu er háttað í dag í hverjum og einum grunnskóla. Óskað er eftir upplýsingum um það hvaða skólar kynjaskipta sundkennslu eftir árgöngum og hvaða skólar hafa tekið ákvörðun um að heimila þeim börnum sem náð hafa hæfniviðmiðum að stunda hreyfingu með öðrum leiðum en sundi. | | Skólasund í grunnskólum_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 15. 2603386 - Geðheilsa fyrir ungmenni | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sett verði á fót samræmd fræðsla um geðheilsu fyrir öll ungmenni í bænum með áherslu á forvarnir. | | Sviðsstjóra falið að leggja fram tillögu að útfærslu með fagaðilum, sem lögð verður fram í fræðsluráði og borin undir ungmennaráð. | | Geðheilsa fyrir ungmenni_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 16. 2603387 - Viðbragðsáætlanir vegna eineltis | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að viðbragðsáætlanir gegn einelti í grunnskólum bæjarins verði endurskoðaðar og samræmdar til að tryggja skýr og árangursrík úrræði fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði. | | Fræðsluráð felur sviðsstjóra að ganga úr skugga um að eineltisáætlanir séu uppfærðar og óskar eftir samantekt á þeim áætlunum sem unnið er með hjá hverjum grunnskóla fyrir sig áður en ákvörðun verði tekin um annað. | | Viðbragðsáætlanir vegna eineltis_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 17. 2603388 - Lýðræðisleg þátttaka ungmenna | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að nemendum verði tryggður formlegur atkvæðaréttur í ákvörðunum sem varða skólalíf, til að efla lýðræðislega þátttöku ungmenna. | | Fræðsluráð hvetur ungmennaráð til að eiga samtal við fulltrúa nemenda í skólaráðum um samráð innan hvers skóla og vísar tillögunni jafnframt til stýrihóps um barnvænt sveitarfélag. Jafnframt er sviðsstjóra falið að ræða við skólastjórnendur grunnskóla um ábyrgð þeirra gagnvart nemendum þegar kemur að samráði samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. | | Lýðræðisleg þátttaka ungmenna_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 18. 2603389 - Aðstaða og búnaður fyrir nemendur | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að fjárveitingar til grunnskóla verði auknar til að bæta aðstöðu og búnað fyrir nemendur. | | Fræðsluráð samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Jafnframt er minnt á að það fjármagn sem samþykkt var í fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 til að bæta aðbúnað í félagsmiðstöðvum verði nýtt í samráði við ungmennin sjálf eins og bókun fræðsluráðs fjallaði um. | | Aðstaða og búnaður fyrir nemendur_ungmennaráð.pdf | | |
|
| 19. 2603390 - Samræmt námsefni og námskrárvinna | | Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að námsefni og námskrárvinnu grunnskólanna verði samræmd í ríkari mæli til að tryggja jafnræði nemenda. | | Fræðsluráð þakkar ungmennaráði fyrir tillögu um aukna samræmingu á námsefni og námskrárvinnu innan grunnskóla sveitarfélagsins. Ráðið tekur undir mikilvægi þess að tryggja jafnræði og samræmda framkvæmd í skólastarfi, með það að markmiði að nemendur njóti sambærilegra tækifæra óháð skóla. Jafnframt áréttar fræðsluráð mikilvægi faglegs sjálfstæðis hvers skóla og kennara, enda nauðsynlegt til að mæta fjölbreyttum og ólíkum þörfum nemenda. Í því ljósi telur ráðið að samræming og sameiginleg þróun eigi að byggjast á markvissu samráði og faglegu samstarfi skóla og/eða kennara. Fræðsluráð tekur sérstaklega undir áherslu ungmennaráðs um að áfram verði hugað að samræmdum námsmatsgrunni og lýsir ánægju með að vinna að slíkri samræmingu sé þegar hafin. Ráðið hvetur til áframhaldandi vinnu á þessu sviði og reglulegs upplýsingaflæðis til ráðsins um framvindu faghóps sem vinnur að mögulegum leiðum. | | Samræmt námsefni og námskrárvinna_ungmennaráð.pdf | | |
|
| |
| 20. 2603378 - Barnvænt sveitarfélag, fundargerðir | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | | Barnvænt sveitarfélag_fundargerð_fundur1.pdf | | |
|
|
| 22. 2603007F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 420 | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | 22.1. 2603176 - Þjóðhátíðardagur 2026, 17.júní Íþrótta- og tómstundanefnd felur starfshópi um þjóðhátíðardaginn að hefja undirbúning á 17. júní hátíðarhöldunum 2026. Starfshópurinn skili inn drögum að hátíðarhöldunum og kynni á fundi ÍTH 21.apríl. | 22.2. 2603264 - Beiðni um styrk vegna Íslandsmóts Íþrótta og tómstundanefnd samþykkir að veita Sörla auka stöðugildi sumarstarfsfólks við ýmis fegrunarverk í gegnum Vinnuskólann sumarið 2026. | 22.3. 2501360 - Rekstrar og þjónustusamningar íþróttafélaga Lagt fram | | |
|