Til bakaPrenta
Fræðsluráð - 572

Haldinn í Krosseyri, Linnetsstíg 3,
04.03.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
María Jonný Sæmundsdóttir varaformaður,
Kolbrún Lára Kjartansdóttir aðalmaður,
Hilmar Ingimundarson aðalmaður,
Karólína Helga Símonardóttir áheyrnarfulltrúi,
Margrét Hildur Guðmundsdóttir varamaður,
Fundargerð ritaði: Hugrún Valtýsdóttir, 
Auk ofantalinna sátu fundinn:
Fanney D. Halldórsdóttir sviðsstjóri, Tinna Rós Steinsdóttir rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamál, Eiríkur Stephensen skólastjóri tónlistarskóla, Erla Karlsdóttir þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir þróunarfulltrúi leikskóla, Margrét Sverrisdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Inga Fríða Tryggvadóttir fulltrúi leikskólastjóra, Margrét Össurardóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Lóa Björk Hallsdóttir áheyrnafulltrúi starfsfólks leikskóla, Unnar Ómar Viggósson fulltrúi ungmennaráðs, Svanhildur Ýr Sigurþórsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna, Margrét T. L. Hallgrímsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2603072 - Dvalartími barna í leikskólum
Minnisblað lagt fram.
Fræðsluráð fagnar þeim jákvæðu viðbrögðum sem þegar hafa komið fram við innleiðingu sex tíma gjaldfrjáls leikskóla í Hafnarfirði. Fyrstu merki benda til þess að breytingin hafi haft góð áhrif fyrir fjölskyldur í sveitarfélaginu og að foreldrar hafi tekið vel í aukið val um dvalartíma barna sinna. Margir hafa þegar kosið að stytta viðveru barna í leikskóla, sem endurspeglar vilja foreldra til að nýta sér það svigrúm sem breytingin veitir. Með sex tíma gjaldfrjálsum leikskóla var stigið mikilvægt skref til að styðja við heimili í bænum og auka sveigjanleika fyrir fjölskyldur. Foreldrar sem þurfa lengri vistunartíma geta áfram nýtt sér það fyrirkomulag líkt og áður.

Fræðsluráð fagnar því að breytingarnar hafi verið vel teknar af foreldrum og lítur á það sem skýrt merki um að aðgerðin sé að skila jákvæðum samfélagslegum ávinningi.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar minna á tillögu okkar í bæjarstjórn sem lögð var fram við síðari umræðu um fjárhagsáætlun um að fram fari mat að 6 mánuðum liðnum þar sem áhrif breytinga á gjaldskrá verða metin. Matið skyldi ná til eftirfarandi ólíkra hópa eins og leikskólabarna, starfsfólks, tekjulægri hópa og það átti líka að fara yfir hvort breytingarnar hefðu áhrif á nýtingu sem fjárhagsleg áhrif á sveitarfélagið. Tillögunni var vísað til fræðsluráðs og fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að hún verði tekin til efnislegrar umfjöllunar við fyrsta tækifæri í fræðsluráði.

Dvalartími barna í leikskólum_030326.pdf
2. 1701311 - Hjalli, þjónustusamningur
Þjónustusamningur um rekstrarframlag lagður fram.
Fræðsluráð samþykkir fyrir sitt leiti hækkun á samning við Hjalla og vísar til umræðu meðal stjórnenda leikskólans og vísar hækkuninni til viðaukagerðar.
3. 2412860 - Þjónustusamningur um rekstur Áshamars leikskóla
Þjónustusamningur um rekstrarframlag lagður fram.
Fræðsluráð samþykkir fyrir sitt leiti hækkun á samning við Áshamar og vísar til umræðu meðal stjórnenda leikskólans og vísar hækkuninni til viðaukagerðar.
4. 2512311 - Dagforeldrar
Fundargerð dagforeldra lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
5. 2603072 - Dvalartími barna í leikskólum
Skráningadagar.
Fræðsluráð samþykkir tillögu um gjald uppá kr. 2.762,- fyrir hvern skráningardag þeirra sem eru með 6 tíma vistun í leikskólum.
Skráningardagar_040326.pdf
6. 2602644 - Í-mat
Kynning frá Í-mat.
Fræðsluráð þakkar fulltrúum I-mat fyrir góða kynningu á þeim áskorunum og tækifærum sem hafa komið upp eftir að fyrirtækið tók að veita börnum og starfsfólki í leik- og grunnskólum fæði.
Aðdáunarvert er að heyra hvernig starfsemin hefur verið byggð upp með samtölum og heimsóknum. Sérstaklega er jákvætt að sjá áherslu á það unnið sé að því að búa til mat sem öll börn geta borðað og þá miklu vinnu sem lögð er í að elda bragðgóðan og hollan mat.
Ljóst er að metnaður einkennir starfið, meðal annars í samstarfi við hafnfirsk fyrirtæki. Einnig er ánægjulegt að heyra hvernig starfsfólk er þjálfað til að þjónusta breiðan hóp og finna leiðir til að sem flestir séu ánægðir
7. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Lagt fram.
Lagt fram.
8. 2512353 - Íþróttahús við grunnskóla
Minnisblað lagt fram.
Minnisblað lagt fram.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að þetta mál sé komið á dagskrá en minna jafnframt á tillögu okkar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar um að hafin verði vinna við gerð áætlunar til næstu ára um uppbyggingu íþróttaaðstöðu við skóla sem ekki eru með íþróttahús í dag. Í tillögunni er gert ráð fyrir því að greindur yrði kostnaður við keyrslu í íþróttahús í dag og að samhliða fyrir færi fram kostnaðarmat á byggingu íþróttahúsa og rekstri þeirra. Tillagan var ekki samþykkt í bæjarstjórn en samþykkt var að vísa henni til umræðu í fræðsluráði.
9. 2602399 - Efling starfssemi félagsmiðstöðva - tillaga fulltrúa Viðreisnar
Tillaga til umræðu.

Tillaga fulltrúa Viðreisnar um eflingu starfssemi félagsmiðstöðva: Fulltrúi Viðreisnar leggur til að félagsmiðstöðvum Hafnarfjarðar verði tryggt aukið svigrúm til að rýmka opnunartíma sinn í þágu barna og ungmenna í bænum. Jafnframt verði lögð rík áhersla á að efla markvisst hópastarf innan félagsmiðstöðvanna, með sérstakri áherslu á stuðning við og inngildingu jaðarsettra hópa barna. Greinargerð: Félagsmiðstöðvar gegna lykilhlutverki í forvarnarstarfi sveitarfélagsins og eru mikilvægur griðastaður fyrir börn og ungmenni. Til að tryggja að þjónustan nýtist sem flestum er nauðsynlegt að opnunartími endurspegli þarfir ungmenna og bjóði upp á meiri sveigjanleika en nú er. Lengri opnunartími eykur aðgengi og tryggir börnum öruggt umhverfi undir leiðsögn fagfólks. Þá er ljóst að hefðbundið ?opið starf? hentar ekki öllum. Rannsóknir og reynsla sýna að börn í viðkvæmri stöðu eða jaðarsettum hópum blómstra oft betur í smærri hópum. Með því að stórauka framboð á skipulögðu hópastarfi getum við mætt þessum einstaklingum þar sem þeir eru, eflt félagsfærni þeirra og dregið úr félagslegri einangrun. Með þessari tillögu vill Viðreisn tryggja að félagsmiðstöðvar Hafnarfjarðar séu vettvangur fyrir öll börn, í samræmi við menntastefnu bæjarins um fjölbreytni, samvinnu og vellíðan.
Fræðsluráð kallar eftir upplýsingu um opnunartímum félagsmiðstöðva og hópastarf í hverjum skóla fyrir sig eftir skólastigum. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um fjölda barna sem nú þegar nýta félagsmiðstöðvarnar að jafnaði í hverjum skóla fyrir sig, eftir skólastigum.
10. 2603113 - Vinna og virkni fyrir ungt fólk
Minnisblað um vinnu og virkni lagt fram.
Fræðsluráð fagnar ráðningu nýs starfsmanns sem hefur það hlutverk að byggja upp markviss úrræði fyrir ungmenni sem standa utan vinnu, náms og eða annarrar virkni í Menntasetrinu við Lækinn. Með ráðningunni er stigið mikilvægt skref í átt að aukinni samvinnu skóla og skólastiga, félagsstarfs og atvinnulífs með það að markmiði að efla félagsfærni, sjálfstraust og tækifæri ungmenna til náms og atvinnu.

Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar þakka fyrir framlagt minnisblað um þetta mikilvæga mál og fögnum við ráðningu vinnu- og virknifulltrúa. Hér er um að ræða brýnt mál sem fræðsluráð þarf að fylgja eftir í þágu ungs fólks sem ekki er í vinnu, námi eða starfsþjálfun

Vinna og virkni_040326.pdf
11. 2512314 - Forvarnarstarf
Fyrirspurn frá Viðreisn.

Forvarnarstefna
Fulltrúi Viðreisnar óskar eftir upplýsingum um stöðu og niðurstöður þeirrar endurskoðunar sem unnin hefur verið á forvarnastefnu Hafnarfjarðarbæjar. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvenær ráðgert er að kynna fulltrúum fræðsluráðs drög að uppfærðri forvarnarstefnu.
Greinargerð:
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 3. desember 2025 var samþykkt að fela fræðsluráði að hafa forgöngu um endurskoðun forvarnastefnu Hafnarfjarðarbæjar. Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar var gert ráð fyrir að þeirri vinnu lyki fyrir lok marsmánaðar 2026 og að niðurstöður endurskoðunar yrðu lagðar fyrir bæjarstjórn í apríl sama ár.
Forvarnarstefna sveitarfélagsins gegnir mikilvægu hlutverki við að móta heildstæða sýn og aðgerðir í málefnum barna og ungmenna, meðal annars hvað varðar lýðheilsu, félagslega velferð og forvarnir gegn áhættuhegðun. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar og viðeigandi nefndir fái reglulega upplýsingar um framgang slíkrar stefnumótunarvinnu.
Fyrirspurn lögð fram.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að málið sé á dagskrá fræðsluráðs. Samfylkingin lagði til við afgreiðslu fjárhagsáætlunar að farið yrði í endurskoðun á forvarnarstefnu sveitarfélagsins sem var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. Forvarnastefna sveitarfélagsins er komin til ára sinna og nauðsynlegt að hún verði endurskoðuð. Við hvetjum því til þess að þessari vinnu verði hraðað eins og kostur er í samræmi við tillögu Samfylkingarinnar sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 3. des.sl.
12. 2410019 - Kaplakriki, frjálsíþróttasvæði, ástand, hvatning um viðhald
Fyrirspurn frá Viðreisn.
Viðhald á frjálsíþróttavelli Hafnarfjarðar
Fulltrúi Viðreisnar óskar eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi viðhald og endurnýjun frjálsíþróttavelli FH, með sérstakri áherslu á hlaupabraut vallarins.
Óskað er eftir svörum við eftirfarandi:
1. Hefur verið tryggt fjármagn til endurnýjunar eða viðhalds hlaupabrautarinnar og annarra nauðsynlegra viðhaldsverkefna á frjálsíþróttavellinum?
2. Hefur verið unnin aðgerðaáætlun vegna endurbóta á vellinum?
3. Hvenær er áætlað að hefja framkvæmdir við endurnýjun hlaupabrautarinnar og hvenær er áætlað að þeim ljúki?
Greinargerð
Ítrekað hefur verið bent á slæmt ástand hlaupabrautar á frjálsíþróttavelli FH. Í október 2025 var erindi vegna málsins lagt fyrir bæjarráð og því vísað til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Sambærilegt erindi barst einnig frá Frjálsíþróttasambandi Íslands í október 2024.
Samkvæmt þeim úttektum sem kynntar hafa verið er hlaupabrautin ekki í ásættanlegu ástandi. Hún uppfyllir ekki kröfur til keppnishalds og hefur það veruleg áhrif á æfinga- og keppnisaðstöðu frjálsíþróttafólks í Hafnarfirði. Þá hefur jafnframt komið fram að ástand brautarinnar geti skapað hættu fyrir iðkendur.
Í ljósi þess að málið hefur verið til umfjöllunar um nokkurt skeið er mikilvægt að skýrt liggi fyrir hvort fjármunir hafi verið tryggðir til úrbóta og hvenær raunverulega er gert ráð fyrir að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir.
Fræðsluráð vísar fyrirspurn Viðreisnar til umhverfis- og framkvæmdasviðs. Óskað er eftir því að svör við fyrirspurn verði lögð fram í fræðsluráði.
13. 2602352 - Frítt í strætó
Bókun frá foreldraráði lögð fram.
Foreldraráð Hafnarfjarðar lýsir yfir eindregnum stuðningi við þá meginhugmynd að hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs fái gjaldfrjálsan aðgang að Strætó.

Foreldraráð hefur ítrekað lagt fram tillögur og bókanir þess efnis að börn og ungmenni í Hafnarfirði fái frítt í strætó. Málið hefur verið rætt á vettvangi bæjarins ítrekað og naut einnig skýrs stuðnings Ungmennaráðs Hafnarfjarðar. Við teljum því mikilvægt að nú verði stigið skref til fullrar framkvæmdar.

Aðgengi að almenningssamgöngum er mikilvægt jöfnuðarmál. Gjaldfrjálsar ferðir í Strætó styðja við fjölskyldur, sérstaklega þær sem búa við takmarkað fjármagn, og tryggja jafnt aðgengi barna og ungmenna að skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi. Slík aðgerð eykur sjálfstæði ungmenna, dregur úr bílaumferð og stuðlar að umhverfisvænni ferðavenjum til framtíðar.

Aukin notkun almenningssamgangna getur jafnframt stuðlað að auknu öryggi. Fleiri farþegar auka sýnileika og félagslegt öryggi í bæði vögnum og á biðstöðvum. Þá getur minni bílaumferð í kringum skóla og íþróttasvæði dregið úr slysahættu.

Foreldraráð er meðvitað um að málið hefur fjárhagsleg áhrif og að samræming á höfuðborgarsvæðinu og samstarf við stjórn Strætó og önnur sveitarfélög skiptir máli. Hins vegar teljum við mikilvægt að málið tefjist ekki enn frekar. Hér er um að ræða réttlætis- og velferðarmál sem snýr að jöfnum tækifærum barna og ungmenna í Hafnarfirði.

Foreldraráð hvetur Fræðsluráð og bæjarstjórn til að beita sér af festu fyrir því að gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir ungmenni verði að veruleika hið fyrsta.

Samfylkingin tekur undir bókun frá foreldraráði grunnskólabarna.

Fulltrúi Viðreisnar tekur undir bókun foreldraráðs Hafnarfjarðar.

15. 2501360 - Rekstrar og þjónustusamningar íþróttafélaga
Þjónustusamnningur til umræðu.
Hilmar Ingimundarson víkur af fundi.

Lagt fram til umræðu.
Leikskólamál
14. 2602005F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 419
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
14.1. 2601501 - Skólahreysti - beiðni um styrk
Beiðni Hreystismiðjunar fyrir styrk vegna afmælis Skólahreystis tekin fyrir.
Samþykkt að veita Hreysti smiðjunni styrk að upphæð 150.000 krónur í tilefni af 20 ára afmæli Skólahreystis.
14.2. 1908442 - Frisbígolf, Viðistaðatúni
Tillaga að breyttum frisbígolfvelli á Víðistaðatúni send ÍTH frá Umhverfis- og framkvæmdaráði, til umsagnar.
Lagt fram.
14.3. 2511341 - Fyrirspurn um búningaaðstöðu barna í íþróttahúsum bæjarins
Framkvæmdastjóri ÍBH fer yfir svör íþróttafélaga við spurningum um búningaaðstöðu.
ÍTH hvetur þau félög sem þess þurfa til að bæta úr aðstöðu til munageymslu/töskugeymslu og aðgengi að búningsklefum.
14.4. 2501360 - Rekstrar og þjónustusamningar íþróttafélaga
Drög að nýjum þjónustusamningum við íþróttafélög lögð fram til umræðu.
ÍTH þakkar fyrir kynninguna á nýjum þjónustusamningum og lýsir ánægju með að verið sé að fara yfir þá og lagfæra.

Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Leggjum hér með til eftirfarandi breytingu á 3.mgr í kafla III Framlög og greiðslur: Þegar um fjölgreinafélag er að ræða skal gerður samningur við aðalstjórn félagsins þess efnis að 35% hluti fjárframlagsins skuli renna til yfirstjórnar félagsins en 65% skuli skiptast milli deilda félagsins í hlutfalli við iðkendafjölda skv. tölum úr Abler skráningarkerfinu.

Greinagerð:
Þjónustusamningurinn var upphaflega hugsaður sem eins konar kennslustyrkur til íþróttafélaga. Það eru einstaka deildir innan félaga sem skipuleggja og sjá um þjálfun iðkenda og þjónustuna við þá að mestu leyti. Það eru því sterk rök fyrir því að meginhluti fjárfrmalags bæjarins renni til viðkomandi deilda.
14.5. 2602208 - Skautasvellið í Hafnarfirði, tillaga
Tillaga Samfylkingarinnar um varanlegt skautasvell í bænum. Menningar- og ferðamálanefnd vísar málinu til umsagnar hjá íþrótta- og tómstundanefnd.
Íþrótta- og tómstundanefnd vísar tillögunni til skoðunar starfshóps um tómstundamiðstöðvar sem áætluð er í Hamranesi.
14.6. 2401611 - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, fundargerðir
Fundargerð ÍBH frá 3.febrúar 2026 lögð fram.
Lagt fram.
14.7. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir
Fundargerð Skíðasvæðis höfuðborgarsvæðisins nr.434 lögð fram.
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta