Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 486

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
18.02.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Fannar Freyr Guðmundsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Örn Geirsson aðalmaður,
Viktor Ragnar Þorvaldsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2505007 - Hvaleyrarskóli, endurnýjun á þaki
Lögð fram tilboð í 2. áfanga vegna endurnýjunar á þaki skólans.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að gengið verði til samninga við lægstbjóðandi, Haki verktakar ehf.
2. 2602208 - Skautasvellið í Hafnarfirði, tillaga
Lögð fram bókun menningar- og ferðamálanefndar. Óskað er umsagnar umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Samfylkingin leggur til að sviðið taki saman valkosti varðandi staðsetningu skautasvells í Hafnarfirði, sbr. fyrirliggjandi tillögu úr menningar- og ferðamálanefnd. Þar verði samhliða hugað að skautasvelli sambærilegt því sem boðið hefur verið uppá á aðventunni við ráðhúsið, en einnig svelli sem er náttúrulegt.

Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar tillögunni til skoðunar starfshóps um tómstundamiðstöðvar sem áætluð er í Hamranesi.
Menningar- og ferðamálanefnd - 468 (11.2.2026) - Skautasvellið í Hafnarfirði, tillaga.pdf
3. 2602238 - Sópun gatna og stíga 2026
Tekið til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og áréttar mikilvægi þess að auka götusópun við aðstæður eins og verið hafa síðustu daga og bendir á að mikilvægt sé að götusópun sé framkvæmd reglulega sem fyrirbyggjandi aðgerð við slíkar aðstæður, en ekki sem viðbragð þegar svifryksmengun hefur aukist. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar eru götur almennt sópaðar að jafnaði tvisvar á ári, en fulltrúi Viðreisnar telur mikilvægt að við aðstæður sem auka líkur á svifryki sé sópun aukin markvisst sem fyrirbyggjandi aðgerð. Með markvissri áætlun um sópun gatna og stíga má draga úr svifryksmyndun og bæta þannig nærumhverfi og lífsgæði íbúa í bænum.
https://hafnarfjordur.is/goturnar-sopadar-i-hafnarfirdi-2/
4. 2505128 - Elliðavatnsvegur, Flóttamannaleið (410-02)
Lögð fram bókun bæjarstjórnar. Eftirfarandi tillögu er vísað til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að ráðist verði í formlegar viðræður við Vegagerðina og innviðaráðuneytið um hönnun og endurbætur á Flóttamannavegi með það að markmiði að þeim verði flýtt eins og kostur er. Viðræðunefnd Hafnarfjarðarbæjar verði skipuð fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn sem bæjarráð skipar og setur erindisbréf á næsta fundi bæjarráð."
Þessa dagana stendur yfir vinna við 5 ára aðgerðaraáætlun samgönguáætlunar. Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að tillagan verði tekið fyrir að nýju að þegar áætlunin liggur fyrir.
Bæjarstjórn - 1970 (11.2.2026) - Elliðavatnsvegur, Flóttamannaleið (410-02).pdf
Fundargerðir
5. 1510061 - Ásvellir, uppbygging
Lögð fram fundargerð 13. fundar framkvæmdanefndar um uppbyggingu knatthúss á Ásvöllum.
13. fundur framkvæmdanefndar um uppbyggingu knatthúss á Ásvöllum 5. febrúar 2026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:10 

Til bakaPrenta