| |
| 1. 2511329 - Hringhamar 43, breyting | | Hjúkrunarheimilið Hamranesi ehf. sækir 17.11.2025 um breytingu á áður samþykktu byggingarleyfi. Nýjar teikningar bárust 16.03.2026. Um er að ræða breytingu á fjölda hjúkrunarrýma, sem er nú 96 í stað 88 áður. Að öðru leyti er umsóknin lítið breytt en teikningar uppfærðar miðað við stöðuna. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 2. 2602338 - Tinnuskarð 1, breyting | | Mardís Malla Andersen f.h. lóðarhafa sækir 16.02.2026 um breytingar á áður samþykktum uppdráttum. Breytingar fela í sér að texti í byggingarlýsingu er lagfærður varðandi loftræsingu og lóð. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 3. 2511350 - Markarás 2h, dreifistöð | | Ingiþór Björnsson f.h. HS Veitna hf. sækir 18.11.2025 um færanlega dreifistöð sem þjónar háspennukerfi HS Veitna og dreifir raforku til viðskiptavina í gegnum lágspennustofnlagnir. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 4. 2603198 - Hjallabraut 33, lyfta, breyting | | STH teiknistofa ehf. f.h. Hafnarfjarðarbæjar sækir 09.03.2026 um að setja upp nýja lyftu (pallalyftu) í sameign hússins. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 5. 2603481 - Baughamar 21-23-25, breyting | | Hjalti Brynjarsson f.h. lóðarhafa sækir 20.03.2026 um breytingar: breyttur texti á byggingarlýsingu, staðsetning á rafmagnstöflum í húsum 23 og 25 bætt við, breyting á þaksvölum í húsum 23 og 25. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 6. 2603609 - Völuskarð 4, reyndarteikningar | | Friðrik Friðriksson f.h. lóðarhafa leggur 26.03.2026 inn reyndarteikningu fyrir lokaúttekt. Eldstæði, reykháfur og tröppur í lóð vestan megin tekið burtu. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|