| Bæjarstjórn - 1978 |
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
12.08.2026 og hófst hann kl. 10:00 | | Fundinn sátu: Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Viktor Pétur Finnsson aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Hjördís Lára Hlíðberg varamaður,
Elín Anna Baldursdóttir varamaður,
| | Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður | | Árni Stefán Guðjónsson forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum. Í upphafi fundar minntist forseti Hálldórs Árna Sveinssonar. Halldór Árni var myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari. Halldór Árni var í lykilhlutverki í að varðveita menningararf okkar Hafnfirðinga. Hann tók meðal annars upp fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í fjóra áratugi, allt til ársins 2023 en hann streymdi sínum síðasta bæjarstjórnarfundi 20. desember það ár.
Halldór fæddist 22. febrúar 1955. Hann lést 15. júlí 2026. | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2512460 - Lántaka 2026 | 1. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.ágúst sl. Lagt fram minnisblað. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins. Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun:
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að heimila Hafnarfjarðarbæ, kt.590169-7579, að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að 8.200 m.kr.og Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar, kt. 570790-1029, að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að 150 m.kr. Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2026auk viðaukavið við fjárhagsáætlun ársinser heimild til lántöku A-hluta Hafnarfjarðarbæjar allt að kr. 8.200 m.kr. og hjá Húsnæðisskrifstofu 150 m.kr.
Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokknumsem Lánasjóður sveitarfélaga ohf. býður upp á þegar lántaka á sér staðog hefur sveitarstjórn kynnt sér skilmála skuldabréfaflokkanna eins og þeir koma fyrir í töflunni hér að ofan og finna má á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði, samþykkir bæjarstjórn að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr., 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlögúr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lántaka Hafnarfjarðarbæjar verður vegnafjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins á árinu 2026, s.s. eins og vegna gatnagerðar, nýs grunn-og leikskóla í Hamranesi, nýs bókasafns, búsetukjarna við Smyrlahraun, gatnagerðar í nýju hverfi sveitarfélagsins og nýjum félagslegum íbúðum en þessi verkefnifelaí sér að hafaalmenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Þórði Þórarinssyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, kt. 081167-5759, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarbæjarog Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
| Þórður Þórarinsson bæjarstjóri tekur til máls.
Valdimar Víðisson tekur til máls.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur til andsvars. Einar Geir svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni.
Orri Björnsson tekur til máls.
Árni Rúnar tekur til máls.
Samþykkt samhljóða.
Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:
Bæjarfulltrúar Framsóknar leggja fram eftirfarandi bókun: Bæjarfulltrúar Framsóknar styðja framlagða lántökuheimild. Í því krefjandi efnahagsumhverfi sem nú ríkir, með háum vöxtum, verðbólgu og óvissu, hefur lóðasala í Hafnarfirði gengið hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir og tekjur því skilað sér síðar en vænst var. Á sama tíma heldur mikil og nauðsynleg innviðauppbygging áfram.
Lántakan er meðal annars vegna fjárfestinga í gatnagerð, nýjum leik- og grunnskóla í Hamranesi, nýju bókasafni, félagslegum innviðum og búsetukjarna við Smyrlahraun. Um er að ræða mikilvægar fjárfestingar fyrir vaxandi samfélag.
Með samþykkt málsins verður lántökuheimild A-hluta allt að 8,2 milljarðar króna samkvæmt fjárhagsáætlun og samþykktum viðaukum. Bæjarfulltrúar Framsóknar leggja áherslu á að aukin lántaka kalli á aukinn aga í rekstri, skýra forgangsröðun og ráðdeild. Framsókn mun áfram styðja góð og ábyrg mál sem eru Hafnarfirði og Hafnfirðingum til heilla, óháð því hvort flokkurinn situr í meirihluta eða minnihluta. Jafnframt er lögð rík áhersla á að haldið verði þétt utan um fjármál bæjarins, rekstur og fjárfestingar fari saman við tekjustofna sveitarfélagsins og þess gætt að fjárhagslegur grunnur Hafnarfjarðarbæjar verði áfram traustur til framtíðar.
Einar Geir Þorsteinsson kemur að svohljóðandi bókun:
Lántökuheimild Hafnarfjarðarbæjar hefur aukist verulega á árinu og sú þróun er ekki sjálfbær. Fyrirhuguð rekstrar- og stjórnsýsluúttekt verður að leiða til raunverulegrar hagræðingar þar sem lyft verður upp hverjum steini og grunnþjónusta sett í forgang. Það er ekki hægt að reka Hafnarfjörð til framtíðar á sífellt meiri skuldsetningu.
| | |
| | 2. 2606048 - Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 | | Lagður fram listi yfir undirkjörstjórnir. | Elín Anna Baldursdóttir tekur til máls.
Samþykkt.
| | Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026.pdf | | |
| | | | 3. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn | Fundargerð bæjarráðs frá 6.ágúst sl. a. Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 8.júlí sl. | | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:42 |
|