| |
| 1. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar | Lögð fram samþykkt bæjarstjórnar 3.6.2026 um skipan ráða og nefnda. Í umhverfis- og framkvæmdaráði til eins árs sitja:
Formaður Hildur Rós Guðbjargardóttir, Ölduslóð 5 (S) Varaformaður Óli Örn Eiríksson, Hverfisgötu 52B ( C) Aðalfulltrúi Helga Björg Loftsdóttir, Drekavöllum 45 (D) Aðalfulltrúi Árni Rúnar Árnason, Birkihlíð 2a (B) Aðalfulltrúi Arnhildur Ásdís Kolbeins, Gauksási 57 (M)
Varafulltrúi Björn Sighvatsson, Fögrukinn 15 (C) Varafulltrúi Margrét Lilja Pálsdóttir, Álfholti 34A (S) Varafulltrúi Júlíus Freyr Bjarnason Traðarbergi 27 (D) Varafulltrúi Ragnar Þór Reynisson, Engjavöllum 5a (B) Varafulltrúi Sig Stefán Sveinn Gunnarsson, Burknavöllum 19 (M) | | Lagt fram. | | |
|
| 2. 2606149 - Erindisbréf ráða og nefnda | | Lagt fram erindisbréf umhverfis- og framkvæmdaráðs. | | Lagt fram og vísað til endurskoðunar umhverfis- og skipulagssviðs. | | |
|
| 3. 2605590 - Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar | | Lögð fram bókun bæjarstjórnar frá 3.6.2026. Vísað var til umhverfis- og framkvæmdaráðs að markviss vinna við að fullgera hverfi verði sett af stað. Áhersla verði lögð á græn svæði, trjárækt og mannvænna umhverfi. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að vinna að áætlun um lok framkvæmda í nýjum hverfum. | | |
|
| 4. 2602442 - Kapelluhraun 2, gatnagerð Gullhellu | | Lögð fram tilboð í gatnagerð í Kapelluhrauni. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að tilboði Óskatak ehf. verði tekið og felur sviðinu að ganga frá samning í samræmi við lög um opinber innkaup. | | |
|
| 5. 2605097 - Kaplakriki, handboltahús, nýtt gólf | | Lögð fram tilboð í nýtt parketgólf á handboltahúsið. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að tilboði lægstbjóðandi, Leiktæki og Sport ehf., verði tekið og felur sviðinu að ganga frá samning í samræmi við lög um opinber innkaup. | | |
|
| 6. 2505128 - Elliðavatnsvegur, Flóttamannaleið (410-02) | | Tekið til umræðu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar að vinna við frumhönnun Flóttamannavegar sé hafin. Umhverfis- og framkvæmdaráð beinir því til bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar að fjármagn verði tryggt í verkefnið í samgönguáætlun. | | |
|
| 7. 2605363 - Klettahlíð, beiðni um uppsetningu öryggisgrindverks | | Karl Óli Lúðvíksson fh. íbúa Furuhlíðar 7-17 leggur 13. maí 2026 inn beiðni um bætt umferðaröryggi við veginn úr Klettahlíð inn í Setberg. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir tillögu sviðsins að lausn varðandi öryggisgrindverk í Klettahlíð meðfram gönguleið samhliða Furuhlíð 13-17. Einnig verði horft til umferðarúttektar sem gerð var árið 2023. Gerð verði úttekt á hljóðvist. | | Áskorun íbúa Furuhlíðar á Hafnarfjarðarbæ.pdf | | |
|
| 8. 2605177 - Klettahlíð, umferðaröryggi | | Tekið fyrir að nýju. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar í bókun undir máli 2605363. Jafnframt er bent á að lóðarhafar skuli ganga frá lóðum í samræmi við lóðablað. | | |
|
| 9. 2604459 - Klettahlíð, umferðaröryggi | | Tekið fyrir að nýju. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar í bókun undir máli 2605363. Jafnframt er bent á að lóðarhafar skuli ganga frá lóðum í samræmi við lóðablað. | | |
|
| 10. 2509825 - Staðarhvammur 21, lóð í fóstri | | Tekið fyrir að nýju. | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 11. 2601146 - Brekkugata, bílastæði | | Lögð fram umsögn bæjarminjavarðar dags. 2 júní 2026. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir umsagnir Minjastofnunar og Byggðasafns Hafnarfjarðar og hafnar beiðni um bílastæði í götu að sinni. | | |
|
| 12. 2204112 - Skólalóð Hraunvallaskóla | | Lögð fram beiðni foreldrafélags Hraunvallaskóla um að bráðabirgðahús á lóð Hraunvallaskóla verði fjarlægð. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagssviði að selja húsin til flutnings og þau verði fjarlægð af lóðinni fyrir 1. ágúst 2026. | | |
|
| 13. 2406548 - Lausar stofur og skólalóð Skarðshlíðarskóla | | Lagt fram erindi foreldrafélags Skarðshlíðarskóla sem óskar eftir að við skoðun á framtíðarnýtingu lóðarinnar, verði kannaður sá möguleiki að koma fyrir hoppubelg yst á svæðinu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að settur verði ærslabelgur á lóð Skarðshlíðarskóla. | | |
|
| 14. 2508537 - Miðstöðin - vinna og virkni fyrir fatlað fólk | | Tekið fyrir að nýju. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar til bókunar frá 13.5.2026 og leggur til að farið verði í viðauka. Erindinu vísað til bæjarráðs. | | |
|
| 15. 2604415 - Lyktarmengun á hafnarsvæði | | Tekið á dagskrá fundar. | Umhverfis- og framkvæmdaráð ítrekar bókun ráðsins frá 29.4.2026. "Umhverfis- og framkvæmdaráð telur mikilvægt að olíufnykurinn sem íbúar hafa orðið varir við fái skýra og heildstæða umfjöllun. Málið varðar loftgæði í bænum og hefur áhrif á lífsgæði íbúa. Samkvæmt loftslagsstefnu Hafnarfjarðar er lögð áhersla á að draga úr mengun og stuðla að heilnæmu umhverfi og því mikilvægt að brugðist sé við með markvissum aðgerðum. Nauðsynlegt er að skýra uppruna mengunarinnar og tryggja að unnið sé að lausnum sem skila raunverulegum úrbótum. Það er því með öllu óásættanlegt að mengunarvarnarbúnaður fyrirtækja í Hafnarfirði í mengandi starfsemi fylgi ekki ítrustu kröfum og gæðastefnu sem þau hafa sett sér og er forsenda starfsleyfis þeirra. Íbúar og lífríki eiga ekki að gjalda fyrir að fyrirtæki virði ekki þær reglur sem þeim eru sett. Colas hefur fengið fresti endurtekið, ár eftir ár vegna þessa vandamáls og eftirlitsaðilar hafa verið meðvitaðir um vandann. Umhverfis- og framkvæmdaráð vill að eftirlit sé sterkara. Auk þess mun sveitarfélagið ganga á eftir því að Umhverfisstofnun sinni skyldum sínum í þessu máli og veiti ekki endalausa fresti. Umhverfis- og framkvæmdaráð hvetur ríkisvaldið til þess að skerpa mengunarvarnarlöggjöfina til þess að koma í veg fyrir mengunarslys." | | |
|
| 16. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026 | | Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. nr. 424 og 425. | | Lagt fram. | | Fundargerð stjórnarfundar nr 424 170420262026.pdf | | Fundargerð stjórnarfundar nr 425 13052026.pdf | | |
|