Til bakaPrenta
Bæjarstjórn - 1984

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
04.11.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Viktor Pétur Finnsson aðalmaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður
Í upphafi fundar leggur forseti til að tvö mál verði tekin inn með afbrigðum á dagskrá fundarins, það eru málin Lántaka og Hverfaráð. Er það samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
Lagður fram til samþykktar 6. viðkauki við fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2026.
Þórður Þórarinsson tekur til máls.

Samþykkt samhljóða.
Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2026 til bæjarráðs - Öll skjölin.pdf
2. 2512460 - Lántaka 2026
Sviðsstjóri fjármálasviðs óskar því eftir því að bæjarstjórn samþykki að hækka lántökuheimild ársins um 2.000 m.kr. eða í 10.200 m.kr.Lántaka mun fara fram, eftir þörfum, í nóvember og/eða desember. Gerist ekki þörf fyrir að fullnýta heimildina fellur hún niður í lok árs 2026. Gert er ráð fyrir að lántakan verði í formi sölu skuldabréfa úr skuldabréfaflokk HFJ 50 1, lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga og lántöku hjá bönkum allt eftir því hvað er hagkvæmast hverju sinni.Jafnframt er óskað eftir því að Þórði Þórarinssyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, kt. 081167-5759, og/eða Helgu Benediktsdóttur, sviðsstjóra fjármálasviðs, kt. 120468-3599, verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að undirrita fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar þá lánssamninga sem bæjarráð samþykkir, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.Tilboð og tillaga til lántöku verður lögð fyrir bæjarráð til samþykktar
Orri Björnsson tekur til máls.

Samþykkt samhljóða.
Minnisblað til bæjarstjórnar - Hækkun lántökuheimildar ársins 2026 - One 2512460.pdf
3. 2607018 - Fjárhagsrammi 2027
1. liður úr fundargerð hafnarstjórnar frá 14.október sl.
Farið yfir tillögu að rekstrar- og framkvæmdaáætlun Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2027 og langtímaáætlun fyrir 2028-2030.

Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjndi fjárhags- og rekstraráætlun fyrir Hafnarfjarðarhöfn og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hana með sama hætti.
Viktor Pétur Finnsson tekur til máls. Einnig Valdimar Víðisson. Viktor Pétur tekur til máls öðru sinni og leggur til að fjárhags- og rekstraráætlun fyrir Hafnarfjarðarhöfn verði vísað til síðari umræðu um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar. Er það samþykkt samhljóða.
Greinargerð fyrir 2027 - lokaskjal 14. okt 26.pdf
Höfnin2027-2030_13102026 áætlunin...14. okt.pdf
4. 2604387 - Lónsbraut, breyting á deiliskipulagi
7. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 28. október sl.

Á fundi bæjarráðs þann 11. júní sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lónsbrautar. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri lóð fyrir smáhýsi. Tillagan var í auglýsingu 25.6-9.8.2026. Lögð fram svör við athugasemdum.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls. Einnig Kolbrún Magnúsdóttir.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls og leggur fram tillögu um að fresta afgreiðslu málsins. Árni Rúnar kemur til andsvars. Karólína Helga kemur einnig til andsvars.

Forseti ber næst upp framkomna tillögu um frestun málsins og er hún felld þar sem 10 bæjarfulltrúar greiða atkvæði gegn tillögunni en fulltrúi Miðflokksins greiðir atkvæði með frestun málsins.

Næst ber þá forseti upp til atkvæða málið eins og það liggur fyrir fundinum og er það smaþykkt með 10 atkvæðum. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá.

Kolbrún Magnúsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

Framsókn fagnar því að stigið sé mikilvægt skref í að tryggja einstaklingum sem standa höllum fæti öruggt húsnæði og einstaklingsmiðaðan stuðning. Örugg búseta og viðeigandi þjónusta eru fjárfesting í fólki og skapa forsendur fyrir auknum stöðugleika og betri lífsgæðum.
Mikilvægt er að framkvæmd verkefnisins verði fylgt vel eftir með tilliti til þarfa væntanlegra íbúa og áhrifa á nærumhverfið. Framsókn leggur áherslu á að athugasemdir íbúa og rekstraraðila fái vandaða umfjöllun og fagnar því að þeim hafi verið svarað við meðferð málsins. Áframhaldandi samtal, gott upplýsingaflæði og eftirfylgni með fyrirhuguðum ráðstöfunum þurfa að vera hluti af framkvæmdinni.



málefni heimilislausra - stuðningur við íbúa smáhúsa28.9.2026.pdf
Vegagerðin- Lónsbraut.pdf
Björn Sigurðsson- Lónsbraut.pdf
Lónsbraut 44 - Lónsbraut.pdf
Náttúruverndarstofnun- Lónsbraut.pdf
Þorgeir Ólason- Lónsbraut.pdf
SHS- Lónsbraut.pdf
Lónsbraut-smáhýsi-amt2.pdf
Samantekt athugasemda og ábendinga, svör..pdf
Lónsbraut slóð á skipulagsgátt.pdf
5. 2607313 - Hellisgata 13 og 15, breyting á deiliskipulagi
6. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 28. október sl.

Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 19.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindið Einars Inga Reynissonar um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Hellisgötu 13 og 15. Breytingin felur í sér að fallið er frá skilmálum um viðbyggingu við núverandi íbúðarhús að Hellisgötu nr. 13 til að varðveita upprunalega formgerð þess. Í staðinn er skilgreindur nýr stakstæður byggingarreitur fyrir vinnustofu á einni hæð með risi á norðanverðri lóðinni fyrir sambærilega byggingarheimild. Með breytingunni er nýtingarhlutfall lóðarinnar aukið úr 0,25 í 0,34. Fallið er frá byggingarreit á framlóð að Hellisgötu 15. Heimilað byggingarmagn, 50 fm. er fært að núverandi byggingu og nýtt til viðbygginga í norðvesturhluta hennar. Nýtingarhlutfall helst óbreytt. Erindið var grenndarkynnt frá 24.08.2026 til 21.09.2026. Á meðan grenndarkynningu stóð barst ósk um frekari gögn frá lóðarhafa Vesturgötu 22. Viðbótargögn vöru send lóðarhafa Vesturgötu 22 og frestur til að gera athugasemdir lengdur til 13.10.2026. Lögð fram svör við athugasemdum.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls. Valdimar Víðisson kemur til andsvars sem Karólína Helga svarar. Valdimar kemur til andsvars öðru sinni.

Samþykkt samhljóða.
slóð á Skipulagsgátt.pdf
Hellisgata 13 og 15, samantekt athugasemda og svör.pdf
6. 2605480 - Ísallínur 3 og 4, framkvæmdaleyfi
2. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 28. október sl.

Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 19. ágúst sl. var samþykkt að grenndarkynna umsókn Landsnets ásamt fylgigögnum um framkvæmdaleyfi skv. heimild 44. gr. skipulagslaga. Ný gögn um áhrifamat á vatnshlot höfðu ekki hlotið kynningu almennings. Auk þess var leitað umsagnar Náttúruverndarstofnunar á framkvæmdum vegna náttúruminja sem njóta sérstakrar verndar. Gögnin voru í kynningu 14.9.- 12.10.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma voru lagðar fram ásamt viðbrögðum Landsnets við framkomnum athugasemdum á fundi ráðsins þann 14. október 2026. Lögð fram svör við athugasemdum.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og beinir því til bæjarstjórnar að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
Skipulags- og byggingarráð ítrekar bókun sína frá 19. ágúst 2026.

Skipulags- og byggingarráð fagnar því að nú sé komið að framkvæmdum við færslu Ísallína í nýtt línubelti og að með þeim breytingum muni háspennulínur á stórum hluta færast fjær íbúðabyggð.

Jafnframt vill ráðið árétta mikilvægi þess að sú lausn sem nú er unnið að verði áfangi á leið að varanlegri framtíðarlausn. Í samkomulagi Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets er gert ráð fyrir að loftlínur frá Hamranesi að Hrauntungum séu tímabundin lausn. Í aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir að háspennulínur verði lagðar í jörðu og að nýtt tengivirki verði staðsett í Hrauntungum.

Þá er í gildandi svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins lögð áhersla á að fjölgun háspennulína innan svæðisins verði takmörkuð og að horft verði til þess að leggja háspennustrengi í jörðu. Í því samhengi er mikilvægt að hafa í huga að hvergi á höfuðborgarsvæðinu liggja háspennu loftlínur jafn nærri íbúðabyggð og við Vellina.

Ráðið ítrekar jafnframt bókun skipulags- og byggingaráðs frá 28. nóvember 2024 um Ísallínur og þá afstöðu að mikilvægt sé að Landsnet standi við fyrirliggjandi samkomulag um að loftlínur verði fjarlægðar úr sjónlínu byggðar þegar aðstæður leyfa.

Með hagsmuni íbúa, umhverfis og framtíðarþróunar svæðisins að leiðarljósi telur ráðið mikilvægt að sett verði skýr tímasett áætlun um næstu skref. Ráðið óskar eftir því að unnið verði að því markmiði að innan tíu ára verði komin varanleg lausn án loftlína frá Hamranestengistöð, í samræmi við stefnu skipulagsáætlana Hafnarfjarðarbæjar og höfuðborgarsvæðisins.
Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að skipulagsfulltrúi gefi út fyrirliggjandi framkvæmdaleyfi.
Greinargerð_Ísallínur_3og4-261028.pdf
Isallinur_VSO.pdf
Framkvæmdaleyfi_Ísallínur-261028 drög.pdf
2 Greinargerð með framkvæmdaleyfisumsókn.pdf
3 Yfirlitskort og afstöðumyndir.pdf
4 Möstur-teikningar.pdf
5_sjaldgæfar plöntutegundir.pdf
7 Áhrifamat vatnshlota cowi.pdf
6 Minnisblað_plöntuathugun.pdf
8 Umhverfismatsskýrsla.pdf
9 Álit Skipulagsstofnunar.pdf
7. 2611141 - Hverfaráð, tillaga
Lagt fram.
Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu og að henni verði vísað til bæjarráðs til frekari úrvinnslu:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að Hafnarfjarðarbær styðji við stofnun og starfsemi sjálfsprottinna hverfaráða í bænum í þeim tilgangi að efla íbúalýðræði, auka þátttöku íbúa og skapa vettvang fyrir íbúa til að koma sjónarmiðum sínum, hugmyndum og ábendingum á framfæri um málefni hverfa sinna.

Einar Geir Þorsteinsson kemur til andsvars. Karólína svarar andsvari. Valdimar Víðisson kemur einnig til andsvars.

Forseti ber upp framkomna tillögu og er hún samþykkt samhljóða.

Fundargerðir
8. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn
Fundargerð forsætanefndar frá 2. nóvember sl.
Fundargerð bæjarráðs frá 29. október sl.
Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 28. október sl.
Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 28. október sl.
Fundargerð fjölskylduráðs frá 27. október sl.
Fundargerð fræðsluráðs frá 23. október sl.
Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls undir liðum 1 og 3 í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 28. október sl.

Valdimar Víðisson tekur til máls undir 6 lið í fundargerð fjölskylduráðs frá 27. október sl. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur til andsvars.

Árni Rúnar tekur þá næst til máls undir 9 lið i fundargerð bæjarráðs frá 28. október sl. Valdimar kemur til andsvars sem Árni Rúnar svarar. Valdimar kemur að stuttri athugasemd.
Áætlanir og ársreikningar
9. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
1. liður í fundargerð bæjarráðs frá 29. október sl.

Lögð fram fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans fyrir 2027 og langtímaáætlun 2028-2030. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs og Guðmundur Sverrisson rekstrarstjóri hagdeildar mæta til fundarins.

Lögð fram tillaga bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir innan stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar ásamt greinargerð.

Bæjarráð telur nauðsynlegt að ráðast í aðgerðir sem stuðla að hagkvæmari og skilvirkari rekstri sveitarfélagsins og bæta nýtingu fjármuna og mannafla.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og greinargerð.

Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjórum að fylgja samþykktinni eftir og annast framkvæmd þeirra aðgerða sem af henni leiða í samræmi við lög, samþykktir sveitarfélagsins og gildandi stjórnunarheimildir.“

Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og mannauðsstjóra að útfæra aðgerðir og ferla sem takmarka ráðningar hjá sveitarfélaginu, meðal annars með skipan ráðningarnefndar sem samþykkja þarf allar ráðninga í störf utan grunnþjónustu. Störf sem losna verði ekki sjálfkrafa endurmönnuð og ráðningar utan grunnþjónustu verða háðar samþykki ráðningarnefndar. Áfram verði heimilt að ráða vegna eðlilegrar starfsmannaveltu í leikskólum, grunnskólum og á heimilum fyrir fatlað fólk, að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og stjórnsýslusviðs að útfæra reglur og ferla sem takmarka og skilyrða nýjar fjárfestingar til næstu tveggja ára.

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra að laun bæjarstjóra og sviðsstjóra verði fryst til næstu tveggja ára.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2028-2030 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri tekur til máls. Einnig Orri Björnsson, Karólína Helga Símonardóttir og Hildur Rós Guðbjargardóttir.

Valdimar Víðisson tekur til máls. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur til andsvars. Valdimar svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni sem Valdimar svarar. Árni Rúnar kemur að stuttri athugasemd sem og Valdimar. Árni Rúnar ber af sér sakir sem Valdimar svarar.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls.

Kolbrún Magnúsdóttir tekur til máls og leggur fram svohljóðandi fyrirspurnir:

1. Þjónusta og verkefni: Hvaða verkefni falla niður eða breytast vegna hagræðingarinnar? Með hvaða mælikvörðum verður fylgst með afgreiðslutíma, þjónustugæðum og stuðningi við framlínuna, sérstaklega þegar kemur að forvörnum og farsæld barna?

2. Mannauður: Liggur fyrir mat á vinnuálagi eftir fækkun starfa og áhættu á auknum veikindafjarvistum og starfsmannaveltu? Hvaða mótvægisaðgerðir eru fyrirhugaðar og hvernig verða þær fjármagnaðar?

3. Langtímaáhrif: Hefur verið unnið heildstætt mat á langtímaáhrifum aðgerðanna á starfsfólk, þjónustu og kostnað bæjarins? Hefur sérstaklega verið skoðað hvort þessar aðgerðir hafa áhrif á snemmtækan stuðning geti leitt til umfangsmeiri og dýrari úrræða til lengri tíma?

4. Raunverulegur sparnaður: Hver er áætlaður nettósparnaður árið 2027 þegar tekið hefur verið tillit til starfslokakostnaðar, afleysinga, yfirvinnu, aðkeyptrar þjónustu og mögulegra breytinga á ríkisframlögum?

5. Eftirfylgni og endurmat: Hvaða viðmið verða sett um vinnuálag, veikindafjarvistir og þjónustugæði? Hver ber ábyrgð á eftirfylgninni og hvaða frávik kalla á að verkefni, mönnun eða aðgerðir verði endurskoðuð?

6. Sala eigna: Hvaða eignum er gert ráð fyrir að selja, hvaða tekjur eru áætlaðar af sölunni og hvernig á að ráðstafa þeim? Mun sundurliðað yfirlit liggja fyrir, fyrir síðari umræðu?

Fulltrúar Framsóknar óska eftir að svör og viðeigandi gögn liggi fyrir, fyrir síðari umræðu fjárhagsáætlunar.

Orri Björnsson kemur að svohljóðandi bókun:

Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar bókar eftirfarandi:

Rekstur bæjarins hefur verið þungur á undanförnum misserum og ljóst er að þær áskoranir sem nýr meirihluti stendur frammi fyrir kalla á breyttar áherslur og markviss viðbrögð. Forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 eru að mörgu leyti aðrar en þær hafa verið á undanförnum árum og því hefur verið nauðsynlegt að horfa heildstætt á rekstur bæjarins, forgangsraða verkefnum og ráðast í hagræðingu í fjármálum hans.
Í vor var ráðist í fjármála- og stjórnsýsluúttekt á rekstri og starfsemi bæjarins. Niðurstöður þeirrar úttektar hafa verið mikilvægt innlegg í vinnu við fjárhagsáætlunina og þær hagræðingaraðgerðir sem nú eru lagðar til byggja meðal annars á þeim niðurstöðum og ábendingum sem þar komu fram.

Það er ljóst að margar þeirra hagræðingaraðgerða sem lagðar eru til eru erfiðar og munu kalla á breytingar sem geta reynst krefjandi fyrir bæði starfsfólk og íbúa. Þær eru hins vegar nauðsynlegar til að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið um bættan rekstur, aukinn fjárhagslegan stöðugleika og sjálfbærari fjármál bæjarins til framtíðar. Hagræðingaraðgerðirnar eru ekki markmið í sjálfu sér heldur nauðsynlegt skref til að tryggja að bærinn geti áfram sinnt grunnþjónustu og öðrum mikilvægum verkefnum.

Meirihluti bæjarstjórnar er staðráðinn í að snúa rekstri bæjarins við, ná betri tökum á fjármálunum og byggja upp traustan rekstrargrundvöll til framtíðar. Það verkefni krefst ábyrgðar, festu og skýrrar sýnar um sameiginlega hagsmuni bæjarfélagsins.

Það er mikilvægt að bæjarstjórn sýni ábyrgð í þessu mikilvæga verkefni. Heilbrigð fjármál og ábyrgur rekstur eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra og forsenda þess að bærinn geti áfram veitt góða þjónustu, staðið undir skuldbindingum sínum og þróast með farsælum hætti til framtíðar.

Valdimar Víðisson kemur að eftirfarandi bókun fyrir hönd Framsóknar:

Bæjarfulltrúar Framsóknar gera sér fulla grein fyrir þeirri erfiðu fjárhagsstöðu sem Hafnarfjarðarbær stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að ráðast í markvissar aðgerðir til að styrkja rekstur sveitarfélagsins til framtíðar. Staðan kallar á festu í fjármálum, skýra forgangsröðun og heildstæða framtíðarsýn.

Framsókn leggur áherslu á að fjárhagslegar aðgerðir byggi á traustum forsendum og að skýr greinarmunur sé gerður á sparnaði og raunverulegri hagræðingu. Árangur verður ekki eingöngu metinn í krónum og aurum heldur einnig út frá áhrifum á þjónustu, starfsfólk og íbúa. Mikilvægt er að staðið verði að fyrirhuguðum breytingum á stjórnsýslu með gagnsæjum hætti, skýrri upplýsingagjöf og virðingu fyrir starfsfólki. Tryggja þarf fyrirsjáanleika bæði fyrir starfsfólk og bæjarbúa og að breytingarnar leiði ekki til aukins álags, lakari þjónustu eða kostnaðarauka annars staðar í rekstrinum.

Við vinnslu fjárhagsáætlunar mun Framsókn leggja sérstaka áherslu á að standa vörð um grunnþjónustu sveitarfélagsins, viðhalda þeirri þjónustu sem þegar hefur verið byggð upp og vinna gegn auknum álögum á einstaklinga og fjölskyldur. Jafnframt þarf að gæta festu og fyrirsjáanleika í fjárfestingum og framkvæmdum, enda hefur umfangsmikil uppbygging innviða undanfarinna ára verið mikilvæg fyrir þróun og framtíð Hafnarfjarðar.

Framsókn vill horfa lengra en til einstakra niðurskurðaraðgerða og leggja áherslu á lausnir sem styrkja reksturinn til lengri tíma. Þar má meðal annars nefna einföldun verkferla, betri nýtingu fjármuna og mannauðs, aukna samvinnu sveitarfélaga og ríkis um þjónustu við börn með fjölþættan vanda og markvissar forvarnir. Með snemmtækum stuðningi, samþættri þjónustu og aðgerðum gegn einmanaleika og félagslegri einangrun má bæta lífsgæði íbúa og skapa forsendur fyrir hagkvæmari þjónustu til framtíðar.

Bæjarfulltrúar Framsóknar lýsa yfir skýrum vilja til að vinna með öllum bæjarfulltrúum að raunhæfri og ábyrgri fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Framsókn hefur þegar óskað eftir aðkomu að þeirri vinnu sem framundan er. Slíkt samstarf þarf að vera raunverulegt og hefjast á meðan enn er svigrúm til að móta tillögur og hafa áhrif á ákvarðanir. Erfið fjárhagsstaða kallar á að þekking, reynsla og hugmyndir allra bæjarfulltrúa verði nýttar í þágu sveitarfélagsins.

Framsókn mun sýna ábyrgð, leggja fram málefnalegar tillögur og styðja nauðsynlegar aðgerðir sem byggja á faglegum og fjárhagslega traustum forsendum. Um leið verður staðið vörð um hagsmuni íbúa, gæði grunnþjónustu og framtíð Hafnarfjarðar.

Hagsmunir Hafnarfjarðar og íbúa bæjarins verða ávallt að vera í fyrsta sæti.

Einar Geir Þorsteinsson kemur að svohljóðandi bókun:

Sveitarfélög á Íslandi hafa á undanförnum árum fjarlægst það hlutverk sem þeim var falið. Þeim var falið að reka leikskóla og grunnskóla, veita félagsþjónustu, halda við götum, tryggja vatn og fráveitu og hirða sorp. Þetta er það sem fólk greiðir útsvarið fyrir. Kjörnir fulltrúar þurfa að standast freistinguna að verja fjármunum í að svala hugmyndafræðilegum þorsta þeirra sem ráða hverju sinni.Hafnarfjörður á ekki að þurfa að selja eignir til að standa undir daglegum rekstri. Það á að vera sjálfsögð krafa að rekstur bæjarins standi undir sér, að skuldir lækki og að þeir fjármunir sem bæjarbúar greiða í sameiginlegan sjóð nýtist fyrst og fremst í þá þjónustu sem sveitarfélaginu ber að veita skv. lögum. Miðflokkurinn lýsir yfir vilja til að taka þátt í samstarfi við alla aðra flokka við vinnu fjárhagsáætlunar

Forseti ber þá upp tillögu um að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2028-2030 til umfjöllunar í bæjarráði sem og til síðari umræðu í bæjarstjórn. Er það samþykkt samhljóða.
Hafnarfjarðarkaupstaður - Fjárhagsáætlun 2027_ 2030_fyrri umræða - Bæjarstjórn_04_11_2026.pdf
Yfirlit 2025-2030_RR_EH_SS_Fyrri umræða_04112026.pdf
20261028_Hafnarfjarðarkaupstaður-Árangursstjórnun_stjórnendasamantekt.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:40 

Til bakaPrenta