Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 563

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
24.11.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður,
Hjördís Lára Hlíðberg aðalmaður,
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir varaformaður,
Fundargerð ritaði: Erna Aradóttir, ritari fjölskylduráðs
Einnig sat Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri, fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Lagt fram til umræðu.
Guðmundur Sverrisson, rekstrarstjóri hagdeildar, mætti á fundinn og fór yfir fjárhagsáætlun. Fjölskylduráð þakkar Guðmundi fyrir kynninguna.

Framsókn leggur áherslu á að vinna að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins í góðu og uppbyggilegu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk sviðsins. Til þess að slíkt samstarf skili árangri þurfa kjörnir fulltrúar hins vegar að hafa aðgang að nauðsynlegum gögnum og upplýsingum sem liggja að baki þeim tillögum og forsendum sem kynntar eru.

Framsókn lýsir því yfir áhyggjum af því að kynningar og umræður um fjárhagsáætlun fari fram án þess að fullnægjandi gögn liggi fyrir. Vilji er til staðar af hálfu flokksins til jákvæðs samstarfs og málefnalegrar vinnu við fjárhagsáætlunina, en slíkt samstarf verður að byggja á gagnsæi og því að fulltrúum séu afhent gögn fyrir fundi í ráðum svo þeir geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu með ábyrgum hætti.
2. 2611281 - Fjárhagslegur stuðningur vegna áskriftarkostnaðar
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram.
3. 2611169 - Hagræðingaraðgerðir í rekstri sveitarfélagsins, fyrirspurn
Lagt fram svar við fyrirspurn frá 10. nóvember sl.
Framsókn bendir á að skv. 28. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins eiga kjörnir fulltrúar rétt á þeim upplýsingum og gögnum sem nauðsynleg eru til að þeir geti rækt störf sín og lagt sjálfstætt mat á málum sem eru til meðferðar. Sá réttur verður ekki uppfylltur með almennri tilvísun í áður framlagða greinargerð þegar óskað hefur verið eftir afmörkuðum upplýsingum um forsendur ákvarðana, áhrif þeirra á þjónustu og þær greiningar sem fullyrðingar um óbreytt þjónustustig byggjast á.

Framsókn telur að svar við fyrirspurn sinni frá 10. nóvember sl. sé ófullnægjandi og uppfylli ekki þær kröfur um upplýsingagjöf sem leiða af 28. gr. sveitarstjórnarlaga né þær kröfur um vandaða stjórnsýslu sem gera verður þegar teknar eru ákvarðanir sem kunna að hafa áhrif á lögbundna þjónustu við börn, fjölskyldur og aðra viðkvæma hópa. Án framlagningar þeirra gagna sem óskað hefur verið eftir geta kjörnir fulltrúar ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni með fullnægjandi hætti.

Framsókn telur alvarlegt þegar stjórnsýslan bregst ekki við ítrekuðum upplýsingabeiðnum kjörinna fulltrúa. Það er forsenda lýðræðislegrar stjórnsýslu að bæjarfulltrúar hafi aðgang að nauðsynlegum upplýsingum til að geta gegnt hlutverki sínu. Þegar slík gögn liggja ekki fyrir þrátt fyrir ítrekanir verður eftirlitshlutverk sveitarstjórnar í reynd skert. Framsókn krefst þess að bæjarráð og viðkomandi svið bregðist tafarlaust við og afhendi umbeðin gögn.

Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun:

Þar sem starfsmannamál heyra ekki undir fjölskylduráð er þeim hluta fyrirspurnarinnar vísað frá. Að öðru leyti vísar meirihluti fjölskylduráðs til greinargerðar bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir og fækkun stöðugilda í stjórnsýslu Hafnarfjarðarkaupstaðar, sem lögð var fram í bæjarráði 29. október sl., sem svar við fyrirspurninni. Meirihluti fjölskylduráðs leggur áherslu á að innleiðing breytinganna fari fram með faglegum og ábyrgum hætti, með það að leiðarljósi að tryggja áfram góða og öfluga þjónustu og að standa vörð um lögbundna grunnsþjónustu.
Svar við fyrirspurn Framsóknar frá 10. nóvember 2026.pdf
Tillaga bæjarstjóra um hagræðingu í miðlægri stjórnsýslu_LOKA (1) Copy.pdf
4. 2304615 - Málefni heimilislausra
Fulltrúi Framsóknarflokksins óskar eftir málinu á dagskrá.
Lagt fram.
5. 2605082 - Samstarf Bergsins og Hafnarfjarðar
Framsókn óskar eftir upplýsingum og rökstuðningi vegna þeirrar ákvörðunar að skerða starfsemi Bergsins úr tveimur dögum í einn dag í viku.
Fyrir liggur að nýting þjónustunnar hefur verið mjög mikil og að viðtalstímar hafa verið fullsetnir. Einnig liggur fyrir að þjónustan gæti að óbreyttu verið fullnýtt að minnsta kosti þrjá daga í viku miðað við þá þörf sem fyrir er meðal barna og fjölskyldna í sveitarfélaginu.
Óskað er eftir svörum frá sviðsstjóra við eftirfarandi spurningum:
1. Hver er faglegur og fjárhagslegur rökstuðningur fyrir skerðingu þjónustunnar?
2. Hvaða gögn liggja til grundvallar ákvörðuninni?
3. Hver var nýting þjónustunnar síðustu 12 mánuði, þar á meðal fjöldi viðtala, biðlisti og nýtingarhlutfall?
4. Hvaða áhrif er gert ráð fyrir að skerðingin hafi á aðgengi barna og fjölskyldna að þjónustunni?
5. Hefur verið metið hvort skerðingin geti leitt til aukins álags á aðra þjónustu sveitarfélagsins, svo sem barnavernd, skólaþjónustu eða félagsþjónustu?
6. Hvernig samræmist ákvörðunin markmiðum bæjarins um snemmtækan stuðning og forvarnir fyrir börn og fjölskyldur?
Óskað er eftir að fjölskylduráð fái greinargerð ásamt þeim gögnum sem liggja að baki ákvörðuninni.

Greinargerð vegna skerðingar þjónustu Bergsins
Bergið hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur í Hafnarfirði með því að veita aðgengilegan, snemmtækan og einstaklingsmiðaðan stuðning. Slík þjónusta er lykilþáttur í nútíma velferðarþjónustu þar sem markmiðið er að grípa börn og fjölskyldur áður en vandi verður alvarlegri og kostnaðarsamari fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.
Sú ákvörðun að skerða starfsemi Bergsins úr tveimur dögum í einn dag í viku vekur verulegar áhyggjur. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hefur nýting þjónustunnar verið mjög góð og viðtalstímar verið fullsetnir. Ekkert bendir til þess að þörf fyrir þjónustuna hafi minnkað. Þvert á móti bendir umfang eftirspurnar til þess að þjónustan gæti verið fullnýtt að minnsta kosti þrjá daga í viku.
Skerðing á þjónustu sem þegar er fullnýtt mun óhjákvæmilega hafa áhrif á aðgengi barna og fjölskyldna að stuðningi. Afleiðingarnar geta orðið lengri biðtími, seinkun á íhlutun og auknar líkur á að vandi þróist á þann veg að þörf verði fyrir umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrræði síðar meir. Reynslan sýnir að snemmtæk íhlutun er ekki aðeins farsælust fyrir börn og fjölskyldur heldur einnig hagkvæmasta leiðin fyrir sveitarfélög til lengri tíma litið.
Á sama tíma og sífellt er lögð meiri áhersla á geðrækt barna, forvarnir og snemmtækan stuðning vekur það spurningar um forgangsröðun að dregið sé úr starfsemi þjónustu sem hefur sýnt fram á raunverulega þörf og mikla nýtingu. Slíkar aðgerðir fara illa saman við yfirlýst markmið um að styrkja þjónustu við börn og auka aðgengi að stuðningi á fyrstu stigum vanda.
Þá er rétt að benda á að skerðing á þjónustu Bergsins hefur ekki aðeins áhrif á þau börn og ungmenni sem nýta sér þjónustuna heldur einnig á aðrar stoðir velferðarþjónustunnar. Þegar snemmtæk úrræði dragast saman eykst gjarnan álag á skóla, félagsþjónustu, barnavernd og heilbrigðiskerfi. Þannig getur skammtímasparnaður leitt til aukins kostnaðar annars staðar í kerfinu.
Framsókn telur því brýnt að Fjölskylduráð fái skýran faglegan og fjárhagslegan rökstuðning fyrir ákvörðuninni ásamt þeim gögnum sem liggja henni til grundvallar. Jafnframt er mikilvægt að metið verði hvaða áhrif skerðingin hefur á þjónustu við börn og fjölskyldur og hvort ákvörðunin samræmist markmiðum Hafnarfjarðarbæjar um snemmtækan stuðning, forvarnir og velferð barna.
Börn og ungmenni eru einn mikilvægasti hópur sveitarfélagsins. Ákvarðanir sem leiða til skerðingar á þjónustu við þau verða að byggjast á skýrum faglegum forsendum, raunverulegum þörfum og heildstæðu mati á áhrifum til skemmri og lengri tíma. Í ljósi fullrar nýtingar þjónustunnar er eðlilegt að spurt sé hvort ekki væri fremur ástæða til að efla starfsemi Bergsins en að draga úr henni.
Fjölskylduráð bendir á að samstarf Bergsins og Hafnarfjarðar heyrir undir mennta- og lýðheilsusvið en sviðsstjóra er falið að afla upplýsinga um þau atriði sem snúa að fjölskylduráði og fjölskyldu- og barnamálasviði.
6. 2611418 - Mannauðsmál, fyrirspurn
Fulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi fyrirspurn:

Starfslýsing og hæfniskröfur.
Var starfslýsing deildarstjóra nýrra deilda tilbúin og samþykkt áður en ákvörðun um tilfærslurnar voru teknar?
Hvaða lágmarkskröfur og æskilegu viðmið voru sett um menntun, stjórnunarreynslu og faglega þekkingu á verkefnum deildarstjóra
Mat á hæfni fyrir tilfærslu.
Með hvaða hætti var hæfni og þekking metin við ákvörðunartöku um ráðningu og hver sá um að framkvæma það mat?
Ef mat leiddi í ljós þörf fyrir viðbótarþekkingu eða stuðning, hvernig verður brugðist við því''
Starfsmat.
Hafa nýtt/breytt deildarstjórastarf farið í formlegt starfsmat?
Ef mat liggur enn ekki fyrir, hvenær er áætlað að það fari fram?
Vinnuálag og mönnun.
Var lagt mat á vinnuálag deildarstjóra og starfsfólks áður en verkefnin voru sameinuð?
Hvernig var tekið tillit til fjölda starfsmanna sem heyra beint undir deildarstjóra hverrar deildar, fjölda og flækjustigs mála og þeirrar stjórnunar- og fagábyrgðar sem störfunum fylgja?
Hvernig verður fylgst með álagi fyrstu mánuðina og hver ber ábyrgð á að bregðast við ef álag eða biðtími eykst?
Fagleg ábyrgð og stuðningur.
Hvernig skiptist fagleg ábyrgð milli deildarstjóra og sérfræðinga í nýju skipulagi?
Hver ber ábyrgð á faglegu mati?
Hvaða faglegi stuðningur og handleiðsla verða í boði fyrir deildarstjóra og starfsfólk?
Óskað er eftir að starfslýsing og fyrirliggjandi gögn um starfsmat, hæfnismat og vinnuálag fylgi svarinu. Upplýsingar um hæfnismat verða teknar saman þannig að sjá megi hvaða viðmið voru notuð, hvernig þau voru metin og hverjar niðurstöðurnar voru, með viðeigandi trúnaði um persónuupplýsingar.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun:

Í framlagðri fyrirspurn er spurt um skipulag og einstök stöðugildi á fjölskyldu- og barnamálasviði. Í því ljósi er rétt að árétta það að ráðningarmál eru á verksviði sviðsstjóra og stjórnenda en ekki fagráða og ekki er pólitísk aðkoma að þeim ákvörðunum. Af þeim sökum telja fulltrúar meirihlutans ekki ástæðu til að svör við þessari fyrirspurn verði lögð fram í fjölskylduráði.
Fundargerðir
7. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði
Lögð fram fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá 7. október sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð 7. okt. 2026-Samráðshópur SSH um velferðarmál.pdf
8. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 40 og 41/2026.
Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.

Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 649/2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til bakaPrenta