Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 111

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
10.06.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2509753 - Borgahella 6-8 og 6H, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 08.04.2026 var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Borgahellu 6-8 og 6H. Í breytingunni felst að lóðirnar við Borgahellu nr. 6 og 8 eru sameinaðar í eina lóð. Lóðin er stækkuð til norðurs, um u.þ.b. 4 m. Lóðin Borgahella nr. 6H, fyrir veitumannvirki, er færð
norður fyrir lóð Borgahellu nr. 8. Nýtingarhlutfall verður 0,4 - 0,6.
Tillaga var grenndarkynnt frá 06.05.2026 til 05.06.2026.
Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
2. 2606154 - Erluás 33, breyting á deiliskipulagi
Gunnar Svavarsson sækir þann 05.06.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að lóðin við Erluás 33 stækkar til suðurs. Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 12.05.2026 lóðastækkun.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Erluás 33, breyting á deiliskipulagi.pdf
3. 2604433 - Hlíðarás 20, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 29.04.2026 var samþykkt að grenndarkynna erindi Hallgríms Þórs Sigurðssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér breytingu á skipulagsskilmálum fyrir Hlíðarás 20. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,45 í 0,47. Byggingarreitur yrði stækkaður um 0,1 m til norðurs, suðurs og austurs og 1,5 m til vesturs til að rúma nýja utanhússklæðningu og skyggni/sólskála.
Erindið var grenndarkynnt frá 08.05.2026 til 09.06.2026.
Engar athugasemdir bárust en ábending barst frá Veitum um að heimlögn hitaveitu liggur hjá fyrirhugaðri stækkun byggingarreits og þarf að gæta varúðar við framkvæmdir á svæðinu. Ef það þarf að aftengja eða færa heimlögnina vegna framkvæmdanna þarf að sækja um það til Veitna með góðum fyrirvara.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Bent er á að samráð skal haft við Veitur vegna framkvæmda.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
4. 2605336 - Hvaleyrarbraut 32, breyting á deiliskipulagi
Björgunarsveit Hafnarfjarðar sækir þann 18.05.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að lóðin er stækkuð um 16,7 m til vesturs og byggingarreitur er stækkaður 28 m til vesturs. Tilefni fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar er að skapa heimild fyrir viðbyggingu við núverandi húsnæði sem ætlað er að hýsa geymslu og flugeldasölu björgunarsveitarinnar.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Hvaleyrarbraut 32 breyting á deiliskipulagi.pdf
5. 2606124 - Krýsuvík, rannsóknarborholur, breyting á deiliskipulagi
Íris Anna Karlsdóttir f.h. HS Orku sækir þann 04.06.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að færa aðkomu að rannsóknarborholusvæði til að tryggja umferðaröryggi á Krýsuvíkurvegi.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Krýsuvík, rannsóknarborholur, breyting á deiliskipulagi.pdf
6. 2606133 - Víkingastræti 1h, breyting á deiliskipulagi
Páll Poulsen f.h. HS veitna sækir þann 04.06.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í nýrri lóð fyrir dreifistöð HS Veitna við lóðarmörk Suðurgötu 18 í landi bæjarins. Aðkoma að lóð er um Víkingastræti. Stærð lóðar er 5 x 6 m og stærð byggingarreits er 3 x 4 m. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 22.04.2026 stofnun lóðar.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar gögn hafa verið uppfærð.
D-hluti fyrirspurnir
7. 2605432 - Drangsskarð 2, fyrirspurn
Jónas Heiðar Birgisson f.h. íbúa að Drangsskarði 2 leggur þann 21.05.2026 fram fyrirspurn vegna fyrirhugaðs göngustígs við lóðarmörk og beiðni um aukið bílastæði við Drangsskarð 2.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.05.2026.
Drangsskarð 2, umsögn skipulags.pdf
8. 2606007 - Klausturhvammur 28, fyrirspurn
Andri Roland Ford leggur þann 01.06.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir stækkun á afnotarétti við norðaustur hlið sem liggur meðfram göngustíg við Öldutúnsskóla. Fyrir liggur afnotaréttur um 4 m frá hlið hússins. Einnig er óskað eftir að fá að reisa grindverk við norðaustur hlið hússins.
Við norðvestur hlið Klausturhvamms 28 er óskað eftir lóðarstækkun og leyfi til að steypa vegg 120-130 cm á hæð við nýju lóðarmörkin.
Tekið er að hluta til jákvætt í fyrirspurnina og að hluta til neikvætt, samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 02.06.2026.
Klausturhvammur 28, umsögn skipulags.pdf
9. 2601433 - Reykjavíkurvegur 27, fyrirspurn
Andri Thor Birgisson leggur fram 21.01.2026 fyrirspurn varðandi skráningu á húsinu, heimildir í deiliskipulagi og göngustíg vestanmegin við húsið. Þessum spurningum hefur verið svarað í tölvupósti en hugmyndir lágu fyrir um stækkun hússins. Þann 09.06.2026 voru lagðar inn teikningar af mögulegri útfærslu sem sýna bæði lengingu hússins til norðurs og viðbyggingu út í garð aftan við húsið.
Tekið er að hluta til jákvætt í fyrirspurnina og að hluta til neikvætt, samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 09.06.2026.
Álit Minjastofnunar 26.02.2026.pdf
Reykjavíkurvegur 27, umsögn skipulags.pdf
10. 2605526 - Reykjavíkurvegur 39, fyrirspurn
Hoa Thi Nguyen leggur þann 26.05.2026 fram fyrirspurn um framkvæmdir eins og skyggni og skjól framan á húsinu.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27.05.2026.
Reykjavíkurvegur 39, umsögn skipulags.pdf
11. 2605525 - Vörðuás 15, fyrirspurn
Sveinn Aron Sveinsson óskar þann 26.05.2026 eftir heimild til að stækka hús upp í 292,3 fm og fjölga bílastæðum vinstra megin fyrir framan hús vegna auka íbúðar.
Byggingarmagn sem óskað er eftir er heimilt samkvæmt deiliskipulagi. Tekið er neikvætt í fjölgun bílastæða samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 02.06.2026.
Vörðuás 15, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta