| Bæjarstjórn - 1970 |
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
11.02.2026 og hófst hann kl. 14:00 | | Fundinn sátu: Valdimar Víðisson bæjarstjóri,
Kristinn Andersen forseti,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir aðalmaður,
Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður,
Helga Ingólfsdóttir varamaður,
| | Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður | | | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2205659 - Ráð og nefndir 2022 - 2026, kosningar | | Breytingar á fulltrúa Samfylkingar í fræðsluráði. | Breytingar á fulltrúa Samfylkingar í fræðsluráði.
Aðalmaður í stað Kolbrúnar Magnúsdóttur verður Kolbrún Lára Kjartansdóttir, Arnarhrauni 21
Varamaður í stað Kolbrúnar Láru Kjartansdóttur verður Dagbjört Harðardóttir, Stuðlabergi 38
Samþykkt samhljóða. | | |
| | 2. 2601011 - Brunnás 9, umsókn um lóð | 8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 5.febrúar sl.
Lögð fram umsókn Viss verk ehf. um lóðina nr. 9 við Brunnás. Bæjarráð samþykkir umsóknina og leggur til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til félagsins. | | Samþykkt samhljóða. | | |
| | 3. 2601010 - Brunnás 11, umsókn um lóð | 9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 5.febrúar sl. Lögð fram umsókn Ívars Hauks ehf. um lóðina nr. 11 við Brunnás Bæjarráð samþykkir umsóknina og leggur til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til félagsins. | | Samþykkt samhljóða. | | |
| | 4. 2601633 - Brunnás 18, umsókn um lóð | 10.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 5.febrúar sl. Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 18 við Brunnás Bæjarráð samþykkir umsóknina og leggur til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til félagsins. | | Samþykkt samhljóða. | | |
| | 5. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni | 11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 5.febrúar sl. Lögð fram svör við fyrirspurn Samfylkingarinnar. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir að frá 1.júní næstkomandi verði endurgjaldslaust í Strætó fyrir öll hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs. Kostnaður er á yfirstandandi ári um 28 milljónir króna. Breytingar verði gerðar á gildandi fjárhagsáætlun til að fjármagna þessa réttarbót og það gert með aðhaldi og sparnaði; með sérstakri sjálfstæðri tillögu, þar sem samþykkt verður að lækka kostnað við aðkeypta þjónustu um 30 milljónir.
Bæjarráð samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarstjórnar. | Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.
Kristín Thoroddsen tekur til máls og leggur til að málinu verði vísað til stjórnar Strætó og nýstofnaðs félags um almenningssamgöngur. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur til andsvars. Kristín svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni sem Kristín svarar. Árni Rúnar kemur að stuttri athugasemd. Stefán Már kemur næst að andsvari við ræðu Kristínar.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari. Valdimar kemur til andsvars öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar. Valdimar kemur að stuttri athugasemd. Kristín kemur næst til andsvars við ræðu Guðmundar Árna.Guðmundur Árni svarar andsvari. Kristín kemur að andsvari öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar. Kristín kemur að stuttri athugasemd.
Helga Ingólfsdóttir tekur næst til máls. Einnig Jón Ingi Hákonarson. Árni Rúnar kemur til andsvars. Jón Ingi svarar andsvari. Árni Rúnar kemur til andsvars öðru sinni sem Jón Ingi svarar. Kristín kemur að andsvari.
Árni Rúnar tekur næst til máls.
Einnig Stefán Már Gunnlaugsson. Jón Ingi kemur til andsvars. Stefán Már svarar andsvari. Jón Ingi kemur til andsvars öðru sinni sem Stefán Már svarar.
Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til máls. Kristín kemur til andsvars.
Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni. Kristín kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari. Jón Ingi kemur að andsvari.
Kristín tekur til máls öðru sinni.
Guðmundur Árni tekur til máls undir fundarstjórn forseta. Það gerir einnig Árni Rúnar og Jón Ingi.
Fundarhlé kl. 16:07. Fundi framhaldið kl. 16:13.
Forseti ber næst upp framkomna tillögu Kristínar um að bæjarstjórn vísi fyrirliggjandi tillögu til umræðu í stjórn Strætó og hjá hinu nýstofnaða félagi um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem því er vísað til SSH til frekari umræðu áður en endanleg afstaða verður tekin.
Er það samþykkt með sjö atkvæðum frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.
Kristín kemur að svohljóðandi bókun:
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn lýsa yfir stuðningi við þá meginhugmynd að hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs eigi kost á gjaldfrjálsri notkun Strætó. Slík útfærsla getur stuðlað að því að ungt fólk temji sér notkun almenningssamgangna, efli sjálfstæði sitt og hafi jafnt aðgengi að skóla- og tómstundastarfi.
Á sama tíma telur meirihlutinn mikilvægt að málið sé skoðað heildstætt, með hliðsjón af fjárhagslegum áhrifum, samræmingu á höfuðborgarsvæðinu og þeim reglum og samstarfi sem gilda um almenningssamgöngur. Nauðsynlegt er að tryggja að slík ákvörðun sé tekin á traustum grunni og í samráði við þá aðila sem fara með málefni Strætó.
Meirihlutinn leggur því áherslu á að tillagan verði rædd í stjórn Strætó og hjá hinu nýstofnaða félagi um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og vísar málinu til SSH og samstarfsnefndar Strætó til frekari umræðu áður en endanleg afstaða verður tekin
Stefán Már kemur að svohljóðandi bókun:
Það vekur enn og aftur furðu að fulltrúar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skuli ekki samþykkja tillögu Samfylkingarinnar um að frítt verði í strætó fyrir 12-17 ára börn og ungmenni í Hafnarfirði. Verkfælni fulltrúa meirihlutans er slík að þeir vísa málinu frá sér með því að vísa tillögunni til umfjöllunar í stjórn Strætó og SSH. Það er sérkennilegur tafaleikur og ekkert annað en flótti frá verkefnum bæjarstjórnar. Hér er um það að ræða, að bæjarstjórn Hafnarfjarðar taki um það ákvörðun um að bæta lífskjör bæjarbúa, ekki síst ungmenna í bænum og fjölskyldna þeirra. Jafnaðarfólk í bæjarstjórn hefur lagt sambærilega tillögu fram við afgreiðslu hverrar fjárhagsáætlunar á yfirstandandi kjörtímabili, eða fjórum sinnum og meirihlutinn hefur hafnað þeim í hvert í skipti. Ungmennaráð og Foreldraráð Hafnarfjarðar hafa sömuleiðis ítrekað lagt fram sambærilegar tillögur sem bæjarstjórn hefur vísað til umfjöllunar í ráðum og nefndum stjórnsýslunnar án þess að meirihlutinn hafi nokkuð gert með tillögurnar. Það lýsir fullkomnu áhugaleysi meirihlutans á málinu.
Nú hefur meirihlutinn í Reykjavík, undir forystu Samfylkingarinnar, samþykkt tillögu um að frítt verði í Strætó fyrir börn á grunnskólaaldri í Reykjavík og borgin gengur þar á undan með góðu fordæmi. Fulltrúar Framsóknarflokksins í borgarstjórn vildu raunar útvíkka tillöguna þar þannig að hún gilti fyrir öll börn í Reykjavík eins og fyrirliggjandi tillaga Samfylkingarinnar hér gerir ráð fyrir. Því kemur það verulega á óvart að Framsóknarflokkurinn í Hafnarfirði skuli ekki einfaldlega styðja þessa tillögu Samfylkingarinnar. Samþykkt tillögunnar myndi auka notkun almenningssamgangna og létta á umferðarþunga, minnka skutl foreldra og forráðamanna og minnka kostnað hafnfirskra fjölskyldna. En meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks spilar hér tafaleiki eftir að hafa ítrekað hafnað þessari aðgerð sem bætir lífsgæði barnafjölskyldna í bænum og fjölgar möguleikum og jafnar tækifæri fyrir börn og ungmenni í bænum.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar munu ekki styðja tillögu um frestun málsins með því að vísa því í umsögn utan bæjar til stjórnar Strætó, sem verður lögð niður í haust og stjórnar SSH sem er skipuð bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu. En vekur samt athygli á því að allir talsmenn meirihlutans hafa lýst yfir almennum stuðningi við tillöguna og markmið hennar. Við munum því óska eftir málinu á dagskrá aftur að örfáum vikum liðnum.
| | |
| | 6. 2501113 - Suðurhöfn, breyting á deiliskipulagi | 2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.febrúar sl. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 8. október 2025 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhafnar vegna áforma um byggingu Tækniskóla á svæði sem afmarkast af Óseyrargötu, Fornubúðum og Cuxhavengötu. Tillagan var í kynningu 16.10-28.11.2025. Samantekt athugasemda og svör voru lögð fram á fundi skipulags- og byggingarráðs 22.1.2026. Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsdeildar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhafnar og að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög.
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna uppbyggingu Tækniskólans á Suðurhöfn sem hefur alla burði til að vera lyftistöng fyrir bæjarfélagið, efla mannlíf og verk- og tæknimenntun í landinu. Einnig orðið lykilþáttur í umbreytingu Suðurhafnar til framtíðar.
Í greinargerð deiliskipulagsins er áhersla á vistvænar samgöngur, en jafnframt gert ráð fyrir verulegri aukningu bílaumferðar eða 4.500-5.500 ökutæki á sólarhring. Þessu til viðbótar eru áform um 1300 íbúða í næsta nágrenni við Óseyrarbraut og Hvaleyrarbraut eða um 3500 íbúar. Við þetta bætist umferð vegna starfsemi fyrirtækja á hafnarsvæðinu, s.s. þungaflutningar. Núverandi gatnakerfi er nú þegar komið að þolmörkum og þær fáu hugmyndir sem nefndar hafa verið til lausnar munu ekki leysa þann vanda. Fulltrúar Samfylkingarinnar kalla ákveðið eftir því að raunhæfar og gagnlegar tillögur verði lagðar fram í samgöngumálum á svæðinu og leitað samráðs við Vegagerðina.
Þá er áréttað að enn er ósamið við þrjá lóðarhafa innan svæðis Tækniskólans sbr. fyrrspurn fulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarraáði frá 26. janúar. Hér er komin upp óvenjuleg staða þar sem skipulagið skólans er fullklárað, en samningaviðræður við lóðarhafa hafa staðið yfir í meira en 5 ár með engu árangri. Nú er nauðsynlegt að málinu verði fylgt eftir að festu svo tímaáætlanir um uppbyggingu skólans fái staðist. Í þessu sambandi minna fulltrúar Samfylkingarinnar á tillögu þess efnis að setja á fót samninganefnd þriggja kjörinna fulltrúa til þess að hraða vinnslu málsins. | Helga Ingólfsdóttir tekur til máls.
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls og leggur fyrir eftirfarandi tillögu fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu þar sem enn er ósamið við þrjá lóðarhafa innan svæðis Tækniskólans og ljóst að samgöngukerfið á svæðinu er komið að þolmörkum.
Greinargerð: Hér er lagt til að fresta afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar þar sem enn er ósamið við lóðarhafa á þremur lóðum innan svæðis Tækniskólans og vegakerfið er komið að þolmörkum.Ef deiliskipulagstillagan er samþykkt hér í dag þá er komin upp sú óvenjulega staða að skipulag vegna skólans er fullklárað áður en samningar liggja fyrir við alla lóðarhafa. Samningaviðræður við fyrrnefnda lóðarhafa hafa staðið yfir í meira en fimm ár án niðurstöðu. Og Samfylkingin telur rétt að þeim viðræðum verði lokið áður en fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga verður afgreidd í bæjarstjórn og minnir á tillögu okkar þess efnis að setja á fót samninganefnd þriggja kjörinna fulltrúa til þess að hraða vinnslu málsins en meirihlutinn hefur hafnað. Samfylkingin styður heilshugar komu Tækniskólans, en því miður hefur meirihlutinn ekki ráðið við þá hlið samkomulags, ríkis, Tækniskólans og Hafnarfjarðarbæjar um Tækniskólann, sem snýr að Hafnarfirði; að tryggja lóð undir skólann. Einnig er ljóst samkvæmt samgöngugreiningu Eflu fyrir svæðið frá janúar 2026 er umferðarkerfið þegar komið að þolmörkum sínum. Nauðsynlegt er að taka á þeim áskorunum með heildstæðum hætti, með hliðsjón af deiliskipulagi Flensborgarhafnar og fyrirhugaðri uppbyggingu við Óseyrarbraut. Um er að ræða allt að þrjú deiliskipulög sem hafa áhrif á sama samgöngukerfi og því óhjákvæmilegt að horfa á að leysa málið í heild. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja því til að fresta afgreiðslu deiliskipulagsins fyrir Suðurhöfn meðan ósamið er við lóðarhafa og þar til raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu hafa verið tryggðar.
Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Stefán Már svarar andsvari. Valdimar kemur til andsvars öðru sinni sem Stefán Már svarar.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls.
Forseti ber næst upp framkomna dagskrártillögu um að fresta afgreiðslu málsins. Er tillagan felld þar sem fjórir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með frestun málsins en sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn frestun málsins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Forseti ber næst upp málið til atkvæða og er það samþykkt þar sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði um að samþykkja afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar sitja hjá.
Stefán Már kemur að svofelldri bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna uppbyggingu Tækniskólans á Suðurhöfn sem hefur alla burði til að vera lyftistöng fyrir bæjarfélagið, efla mannlíf og verk- og tæknimenntun í landinu. Einnig orðið lykilþáttur í umbreytingu Suðurhafnar til framtíðar. Í greinargerð deiliskipulagsins er áhersla á vistvænar samgöngur, en jafnframt gert ráð fyrir verulegri aukningu bílaumferðar eða 4.500-5.500 ökutæki á sólarhring. Þessu til viðbótar eru áform um 1300 íbúða í næsta nágrenni við Óseyrarbraut og Hvaleyrarbraut eða um 3500 íbúar. Við þetta bætist umferð vegna starfsemi fyrirtækja á hafnarsvæðinu, s.s. þungaflutningar. Núverandi gatnakerfi er nú þegar komið að þolmörkum og þær fáu hugmyndir sem nefndar hafa verið til lausnar munu ekki leysa þann vanda. Fulltrúar Samfylkingarinnar kalla ákveðið eftir því að raunhæfar og gagnlegar tillögur verði lagðar fram í samgöngumálum á svæðinu og leitað samráðs við Vegagerðina. Þá er einnig ljóst að mikið verk er óunnið varðandi samningamál við lóðarhafa á svæðinu og enn er ósamið við þrjá lóðarhafa innan svæðis Tækniskólans. Upp er því komin óvenjuleg staða þar sem skipulag skólans er fullklárað, en samningaviðræður við lóðarhafa, sem hafa staðið yfir í meira en 5 ár, er enn langt í að verði lokið. Nú er nauðsynlegt að málinu verði fylgt eftir að festu svo tímaáætlanir um uppbyggingu skólans fái staðist. Í þessu sambandi minna fulltrúar Samfylkingarinnar á tillögu þess efnis að setja á fót samninganefnd þriggja kjörinna fulltrúa til þess að hraða vinnslu málsins. Í ljósi þess að tillaga Samfylkingarinnar um að fresta afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar, þar sem enn er ósamið við þrjá lóðarhafa innan svæðis Tækniskólans og vegna þessa að samgöngukerfið á svæðinu er komið að þolmörkum, var felld þá sitja bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hjá við afgreiðslu hennar.
Valdimar kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihluta koma að eftirfarandi bókun: Gengið hefur verið frá samningum á langstærstum hluta fyrirhugaðrar lóðar Tækniskólans. Viðræður eru í farvegi við þá lóðarhafa og eigendur mannvirkja á svæðinu sem enn hafa ekki gengið til samninga, þar sem áhersla af hálfu sveitarfélagsins er lögð á að samræma hagsmuni eiganda og fjárhagslega hagsmuni bæjarins. Það bætir ekki samningsstöðu Hafnarfjarðarbæjar að setja pólitíska tímapressu á undirritun samninga og því síður er pólitísk samninganefnd eins og Samfylkingin leggur til líkleg til þess að liðka fyrir samningum eða hraða þeim. Mikilvægt er að halda armslengd milli kjörinna fulltrúa og vinnu við samninga sem bærinn þarf að gera vegna uppkaupa eigna á hafnarsvæðinu. Annað samrýmist ekki góðum stjórnsýsluháttum og gæti rýrt trúverðugleika bæjarins og kjörinna fulltrúa.
| | 112003-GRG-001-V04 DSK Suðurhöfn -v Tæknisk.pdf | | D001-A Deiliskipulagsuppdráttur 16jan2026.pdf | | S001-A Deiliskipulags SKÝRINGAR -16jan2026.pdf | | D004 -A Skuggavarp 16jan2026.pdf | | D002 -A SKILMÁLASNEIÐINGAR-16jan2026.pdf | | D003-A Skuggavarp 16jan2026.pdf | | |
| | 7. 2601512 - Flensborgarhöfn, deiliskipulag | 3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.febrúar sl. Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flensborgarhafnar í samræmi við breytingu á aðalskipulagi sem nú er í auglýsingu. Breytingin felst í að heimilað verði að byggja 3 hæðir og ris á svæðinu, að fallið sé frá því að á öllum jarðhæðum svæðisins skuli vera verslun og þjónusta og að leitast skuli eftir fremsta megni að tryggja sjónræn tengsl milli hafnar og nærliggjandi byggðar með sjónlínum milli húsa. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flensborgarhafnar samhliða breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn. | Helga Ingólfsdóttir tekur til máls.
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls og leggur fram eftirfarandi tillögu fyrir hönd Samfylkingar: Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu þar sem ljóst er að samgöngukerfið á svæðinu er komið að þolmörkum.
Greinargerð: Samkvæmt samgöngugreiningu Eflu fyrir svæðið frá janúar 2026 er umferðarkerfið þegar komið að þolmörkum sínum. Nauðsynlegt er að taka á þeim áskorunum með heildstæðum hætti, með hliðsjón af deiliskipulagi Suðurhafnar og fyrirhugaðri uppbyggingu við Óseyrarbraut. Um er að ræða allt að þrjú deiliskipulög sem hafa áhrif á sama samgöngukerfi og því óhjákvæmilegt að horfa á að leysa málið í heild. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja því til að afgreiðslu deiliskipulagsins verði frestað þar til raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu hafa verið tryggðar.
Kristín Thoroddsen kemur til andsvars. Stefán Már svarar andsvari.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls.
Kristín Thoroddsen tekur til máls. Stefán Már kemur að andsvari. Kristín svarar andsvari. Stefán Már kemur að andsvari öðru sinni.
Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni.
Kristín tekur til máls undir fundarstjórn forseta. Guðmundur Árni gerir það einnig.
Forseti ber næst upp framkomna dagskrártillögu um að fresta afgreiðslu málsins. Er tillagan felld þar sem fjórir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með frestun málsins en sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn frestun málsins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Forseti ber næst upp málið til atkvæða og er það samþykkt þar sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar greiða atkvæði með því að samþykkja afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.
Stefán Már kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar: Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu tillögunnar í ljósi þess að tillaga okkar um að fresta afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar var felld af fulltrúum meirihlutans. Samfylkingin telur mikilvægt að bregðast við þeim ábendingum sem koma fram í samgöngugreiningu Eflu frá því í janúar 2026 þar sem kemur m.a. fram að umferðarkerfið á svæðinu er komið að þolmörkum. Nauðsynlegt er að taka á þeim áskorunum með heildstæðum hætti og það er hægt ef pólitískur vilji væri til staðar hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Um er að ræða allt að þrjú deiliskipulög sem hafa áhrif á samgöngur á svæðinu og jafnaðarfólk kallar eftir að málin verði leyst með heildstæðum hætti. Af þeim sökum lagði Samfylkingin til að afgreiðslunni yrði frestað þar til raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu hafa verið tryggðar.
| | 2220-deiliskipulag-01.pdf | | 2220-deiliskipulag-02.pdf | | 2220-Greinargerð-01.pdf | | |
| | 8. 2512025 - Snókalönd, breyting á deiliskipulagi | 4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.febrúar sl. Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Snókalanda auk umsagna Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness og umhverfis- og veitustjóra Hafnarfjarðarbæjar. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum byggingarreit, BR2, fyrir allt að 18 kúluhús ásamt viðbyggðu baðherbergi. Á núverandi byggingarreit, BR1, er gert ráð fyrir tveimur þjónustubyggingum til viðbótar við núverandi byggingar. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Snókalanda og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn. | Helga Ingólfsdóttir tekur til máls. Einnig Stefán Már Gunnlaugsson og Guðmundur Árni Stefánsson.
Samþykkt samhljóða. | | 25116-Snokalond-Aurora-dskbr.pdf | | Snókaland - Umsögn Heilbrigðiseftirlits - Deiliskipulagsbreyting og öflun neysluvatns.pdf | | Umsögn umhverfis- og veitustjóra.pdf | | |
| | 9. 2511390 - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi | 6.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.febrúar sl. Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 26 ásamt bókun Hafnarstjórnar frá 21.1.sl. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, aukningu nhl., hámarkshæð verði 16m, kvöð um lagnir í jörð á lóðinni aflögð, þakform verði frjálst hækkun á gólfkóta. Að öðru leyti gilda eldri skilmálar. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 26 og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar vísa til bókunar sinnar í Hafnarstjórn 21.1.2026. | Helga Ingólfsdóttir tekur til máls. Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls. Kristín Thoroddsen tekur til máls. Stefán Már kemur til andsvars. Kristín svarar andsvari. Stefán Már kemur að andavari öðru sinni sem Kristín svarar. Stefán Már kemur að stuttri athugasemd.
Samþykkt samhljóða.
Stefán Már lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar taka undir bókun Samfylkingarinnar í Hafnarstjórn frá 21. janúar, 2026, þar sem uppbyggingu á hafnarsvæðinu er fagnað en um leið bent á þann vanda sem skapast á svæðinu vegna umferðarþunga með áformum um nýjan Tækniskóla og um byggingu um 1300 íbúða í næsta nágrenni við Óseyrarbraut og Hvaleyrarbraut eða um 3500 íbúar. Núverandi gatnakerfi er komið að þolmörkum og mun ekki anna stórauknum umferðarþunga á svæðinu. Fulltrúar Samfylkingarinnar kalla ákveðið eftir því að raunhæfar tillögur verði lagðar fram í samgöngumálum á svæðinu og leitað verði samráðs við Vegagerðina.
Kristín kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar samþykkja fyrirliggjandi tillögu að því gefnu að umfang vegna stækkunar hafi ekki meiriháttar áhrif á aukna umferð vegna fyrirhugaðra framkvæmda sem áður hafa verið samþykktar og að tekið hafi verið tillit til þess í umferðargreiningu sem nú þegar er í ferli. | | Hafnarstjórn - 1697 (21.1.2026) - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi.pdf | | 25033 deiliskipulag Óseyrarbraut 26, breyting.pdf | | |
| | 10. 2005180 - Samgöngusáttmáli | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður um fyrirkomulag samgönguendurbóta á Reykjanesbraut, milli hringtorgs við Lækjargötu og meðfram Kaplakrika og þá valkosti sem liggja til grundvallar. Tillaga lögð fram. | Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar leggur áherslu á að skýrir valkostir um fyrirkomulag stórfelldra endurbóta á samgöngum á Reykjanesbraut, milli hringtorgs við Lækjargötu og meðfram Kaplakrika liggi fyrir hið fyrsta. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar telur bæjarstjórn Hafnarfjarðar að undirgöng eða jarðgöng undir Setbergshamar skili varanlegasta árangrinum til lengri tíma, enda verði þau samkeppnishæf hvað kostnað varðar, auk þess sem það verklag mun raska umferð á svæðinu minna á framkvæmdatíma. Mikilvægt er að skýr skilaboð komi frá bæjarstjórn Hafnarfjarðar og að hún beiti sér með virkum hætti í málinu enda er hér á ferðinni gríðarlegt hagsmunamál fyrir Hafnfirðinga og landsmenn alla.
Valdimar Víðisson tekur til máls.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.
Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni. Valdimar kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari.
Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni.
Forseti ber næst upp fyrirliuggjandi tillögu og er hún felld þar sem fjórir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með tillögunni en fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Guðmundur Árni Stefánsson kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Það er með ólíkindum að meirihluti bæjarstjórnar felli tillögu Samfylkingarinnar um lausnir og stefnu í stærsta verkefni næstu ára í vegamálum bæjarins, lausn á umferðarhnút á Reykjanesbraut við N1 og meðfram Kaplakrika. Það segir allt um raunverulegan vilja þeirra í málinu.
Valdimar kemur að svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn skorar á Vegagerðina að flýta vinnu við greiningu og framsetningu valkosta um samgönguendurbætur á Reykjanesbraut frá Kaplakrika að Lækjargötu eins mikið og unnt er. Mikilvægt er að skýrir valmöguleikar liggi fyrir hið fyrsta og hægt verði að taka upplýsta ákvörðun að undangenginni kynningu fyrir íbúa.
| | |
| | 11. 2505128 - Elliðavatnsvegur, Flóttamannaleið (410-02) | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður um endurbætur á veginum. Tillaga lögð fram. | Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til máls og leggur fram svohljóðanid tillögu:
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að ráðist verði í formlegar viðræður við Vegagerðina og innviðaráðuneytið um hönnun og endurbætur á Flóttamannavegi með það að markmiði að þeim verði flýtt eins og kostur er. Viðræðunefnd Hafnarfjarðarbæjar verði skipuð fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn sem bæjarráð skipar og setur erindisbréf á næsta fundi bæjarráð. Greinargerð: Ljóst er að á aðalframkvæmdatíma samgöngubóta á Reykjanesbraut frá hringtorgi við Lækjargötu og meðfram Kaplakrika þá er eina hjáleið sem völ er á um Flóttamannaveginn. Styrking hans gæti til lengri tíma verið upphaf að gerð ofanbyggðarvegar, frá Hafnarfirði og í gegnum efri byggðir Garðabæjar, Kópavogs og Reykjavíkur, sem vantar alfarið í annars ítarlegan verkefnalista Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Samfylkingin hefur ítrekað flutt tillögur um Flóttamannaveginn og leiðir til þess að flýta framkvæmdum vegna hans með aðkomu bæjarins sem ekki hafa hlotið brautargengi. Nú er hins vegar ljóst að Flóttamannavegurinn er loksins komin á dagskrá því hann er að finna í Samgönguáætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Hjá fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og VG var gert ráð fyrir því að leggja veginn af og gera hann að innanbæjarvegi í viðkomandi sveitarfélögum; Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi sem og að allar framkvæmdir yrðu kostaðar af sveitarfélögunum. Hér hefur því orðið grundvallarbreyting á málinu. Flóttamannavegur er í dag mikilvægur hlekkur í samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins og í dag fara um 4.000 ökutæki um hann á dag. Spár gera ráð fyrir því að umferð um hann muni fara ú 4.000 bílum á dag í allt að 12.000 bíla á dag á næstu árum. Samantekið er því algjörlega ljóst að vaxandi umferð, fjölgun íbúa og fyrirhugaðar framkvæmdir við Reykjanesbraut kalla á það að fari verði í hönnun og endurbætur á Flóttamannavegi til þess að tryggja öryggi og greiðari samgöngur.
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir tekur til máls og leggur til að málinu verði vísað til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Helga Ingólfsdóttir tekur til máls.
Guðmundur Árni tekur til máls.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.
Forseti ber næst upp fyrirliggjandi tillögu um að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs og er hún samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með tillögunni.Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar sitja hjá. | | |
| | 12. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður um stöðu málsins, m.a. um stöðu uppkaupa á lóðum vegna nýs Tækniskóla á Suðurhöfn. | Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Valdimar Víðisson kemur að andsvari. Guðmundur Árni svarar andsvari.
Árni Rúnar Þorvaldsson kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna uppbyggingu Tækniskólans á Suðurhöfn sem hefur alla burði til að vera lyftistöng fyrir bæjarfélagið, efla mannlíf og verk- og tæknimenntun í landinu. Nýr og glæsilegur Tækniskóli getur einnig orðið lykilþáttur í umbreytingu Suðurhafnar til framtíðar. Hins vegar er ljóst að enn er mikið verk óunnið af hálfu Hafnarfjarðarbæjar vegna undirbúnings fyrir komu Tækniskólans til bæjarins. Enn er ósamið við lóðarhafa á þremur lóðum innan væntanlegs svæðis Tækniskólans. Það þýðir að komin er upp óvenjuleg staða þar sem skipulag vegna skólans er fullklárað, en samningaviðræðum við lóðarhafa, sem hafa staðið yfir í meira en fimm ár hafa engu skilað. Nú er nauðsynlegt að þessum hluta málsins verði fylgt eftir af festu svo tímaáætlanir um uppbyggingu skólans standist. Og í þessu sambandi minna fulltrúar Samfylkingarinnar á tillögu okkar þess efnis að setja á fót samninganefnd þriggja kjörinna fulltrúa til þess að hraða vinnslu málsins.
| | |
| | 13. 2602171 - Samgöngur á hafnarsvæði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá til að ræða stöðu umferðarmála á hafnarsvæðinu í tengslum við komu Tækniskólans og uppbyggingar nýrrar íbúðabyggð m.a. út frá nýrri skýrslu Eflu um málið. Tillaga lögð fram. | Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að stofna spretthóp sem hafi það hlutverk að leita bestu mögulegra lausna á samgöngumálum á hafnarsvæðinu í samstarfi við Vegagerðina, Betri samgöngur og aðra sérfræðinga. Hópurinn verði skipaður kjörnum fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn. Bæjarráði setji hópnum erindisbréf og skipi hópinn á næsta fundi bæjarráðs. Niðurstöður úr vinnu hópsins skulu liggja fyrir 15. apríl nk. Greinargerð: Greiðar og öruggar samgöngur eru forsenda uppbyggingar og byggða á hafnarsvæðinu. Uppbygging nýs Tækniskóla og nýrrar íbúðabyggð krefst að þess að tekið verði á þessum málum af festu og þau unnin hratt. Þegar nýr Tækniskóli verður kominn á svæðið munu yfir 3.000 nemendur sækja skóla á svæðinu ásamt starfsfólki. Þar er líka gert ráð fyrir uppbyggingu nýrrar íbúðabyggðar sem mun innihalda um 1.300 íbúðir og gert ráð fyrir um 3.500 nýjum íbúum á svæðinu. Þetta felur í sér verulega aukningu umferðar á svæðinu sem er þegar komin að þolmörkum skv. samgöngugreiningum og m.a. er gert ráð fyrir verulegri aukningu bílaumferðar eða 4.500 - 5.500 ökutæki á sólarhring. Við þetta bætist umferð vegna starfsemi fyrirtækja á svæðinu s.s. þungaflutningar. Samgöngugreiningar sýna að svæðið er nú þegar komið að þolmörkum og ný greining Eflu sem kynnt var á síðasta fundi skipulags- og byggingaráðs staðfestir þann vanda sem við er að etja. Í greiningu Eflu er varpað fram hugmyndum til endurbóta sem nauðsynlegt er að rýna betur og það verkefni krefst þverpólitískrar nálgunar. Hér er ekki bara á ferðinni skipulagsmál, heldur brýnt samfélagsmál, sem varðar fjölmarga þætti hins daglega lífs í Hafnarfirði til langrar framtíðar. Þetta verður að taka föstum tökum eins og Samfylkingin hefur hamrað á síðustu árin við litlar undirtektir sitjandi meirihluta. Af þeim sökum er þessi tillaga lögð fram í bæjarstjórn svo hægt sé að vinna að raunhæfum og gagnlegum tillögum vegna umferðarmála á hafnarsvæðinu í samstarfi við Vegagerðina, Betri samgöngur og aðra sérfræðinga.
Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari.
Stefán Már Gunlaugsson tekur til máls.
Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni.
Forseti ber næst upp fyrirliggjandi tillögu og er hún felld þar sem fjórir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með tillögunni en fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Guðmundur Árni leggur fram svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Enn og aftur skilar meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins auðu þegar kemur að mikilvægum hagsmunamálum Hafnfirðinga í samgöngumálum. Fella þessa tillögu þegjandi og hljóðalaust og hafa ekkert til málanna að leggja. Það er í raun yfirskrift bæjarstjórnarfundarins í dag þegar fjöldi samgöngumála eru á dagskrá að frumkvæði Samfylkingarinnar. Meirihlutinn fellir umbótatillögur og vísar frá, en hefur enga skoðun.
Valdimar kemur að svohljóðanid bókun:
Meirihlutinn hafnar tillögu Samfylkingarinnar um stofnun spretthóps þar sem Hafnarfjarðarbær er þegar í formlegu samstarfi við Vegagerðina um samgöngumál á hafnarsvæðinu og sú vinna er í fullum gangi. Verkís vinnur nú að forvinnu og greiningu. Áhersla er lögð á að ljúka þessari vinnu hratt og faglega og að niðurstöður liggi fyrir á næstu vikum. Í framhaldinu verða lagðar fram útfærðar tillögur og raunhæfar lausnir um næstu skref í samgöngumálum á svæðinu. Það er því ekki þörf á að setja á fót sérstakan spretthóp samhliða þeirri vinnu sem þegar stendur yfir.
| | 104228-SKY-001-V03 Samgöngugreining (jan 2026) með viðaukum.pdf | | |
| | | | 14. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn | Fundargerð fjölskylduráðs frá 3.febrúar sl. Fundargerð bæjarráðs frá 5.febrúar sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 21.janúar sl. b. Fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 16.desember sl. c. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23.janúar sl. d. Fundargerð stjórnar SSH frá 19.janúar sl. e. Fundargerð stefnuráðs byggðasamlaganna frá 7.nóvember sl. f. Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 19.janúar sl. g. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 23.janúar sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.febrúar sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4.febrúar sl. a. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 23.janúar sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 4. febrúar sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 27.janúar sl. Fundargerð forsetanefndar frá 9.febrúar sl.
| | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30 |
|