Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 490

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
29.04.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Fannar Freyr Guðmundsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Örn Geirsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2602441 - Hellnahraun 4, gatnagerð
Tekið fyrir að nýju útboð á gatnagerð í Hellnahrauni 4. Alls bárust 5 tilboð í verkið og reyndust tvö lægstu tilboðin ekki vera gild.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að tilboði Gröfu og grjót ehf. verði tekið og felur sviðinu að ganga frá samning í samræmi við lög um opinber innkaup.
2. 2307094 - Hávaðakortlagning og aðgerðaáætlun sbr ákvæði í reglugerð nr. 1000 2005
Kynnt drög að hávaðakortlagningu og aðgerðaáætlun. Margrét Aðalsteinsdóttir hjá Eflu verkfræðistofu mætir til fundarins og kynnir.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagða tillögu og felur sviðinu að vinna tillöguna áfram.
3. 1809386 - Lífsgæðasetur St. Jó.
Verkefnastjóri Lífsgæðarsetursins, Gerður Björk Guðjónsdóttir, mætir til fundarins og kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir kynninguna.
4. 2503627 - Strandgata 34, Krydd, beiðni um afnot af bæjarlandi
Krydd veitingahús óskar eftir samþykki til áframhaldandi lokunar til fimm ára á akstursleið og stækkunar á útisvæði Krydd veitingarhúss yfir sumartímann með sama hætti og hefur verið frá 2021.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og vísar til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
5. 24011110 - Hættumat vegna jarðskjálfta og eldgosavár á höfuðborgarsvæðinu
Lagðar fram skýrslur Veðurstofu Íslands, Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi ásamt samskiptastefnu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að hefja samtal við Veðurstofuna vegna framtíðarráðstafana m.t.t. hraunflæðismats.
260421 AHS samskiptastefna_2159.pdf
Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu_20260409 (2).pdf
Skýrsla_Hraunavá á Reykjanesi_20260409 (1).pdf
6. 2208505 - Umhverfis- og framkvæmdaráð, tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa
Fulltrúi Viðreisnar óskar eftir upplýsingum í máli er varðar olíufnyk sem íbúar hafa fundið fyrir undanfarið í hverfum bæjarins, meðal annars á Holtinu og víðar. Óskað er eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi uppruna mengunarinnar og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að bæta loftgæði og draga úr mengun sem leggst yfir bæinn.
Umhverfis- og framkvæmdaráð telur mikilvægt að olíufnykurinn sem íbúar hafa orðið varir við fái skýra og heildstæða umfjöllun. Málið varðar loftgæði í bænum og hefur áhrif á lífsgæði íbúa. Samkvæmt loftslagsstefnu Hafnarfjarðar er lögð áhersla á að draga úr mengun og stuðla að heilnæmu umhverfi og því mikilvægt að brugðist sé við með markvissum aðgerðum. Nauðsynlegt er að skýra uppruna mengunarinnar og tryggja að unnið sé að lausnum sem skila raunverulegum úrbótum.

Það er því með öllu óásættanlegt að mengunarvarnarbúnaður fyrirtækja í Hafnarfirði í mengandi starfsemi fylgi ekki ítrustu kröfum og gæðastefnu sem þau hafa sett sér og er forsenda starfsleyfis þeirra. Íbúar og lífríki eiga ekki að gjalda fyrir að fyrirtæki virði ekki þær reglur sem þeim eru sett.

Colas hefur fengið fresti endurtekið, ár eftir ár vegna þessa vandamáls og eftirlitsaðilar hafa verið meðvitaðir um vandann. Umhverfis- og framkvæmdaráð vill að eftirlit sé sterkara. Auk þess mun sveitarfélagið ganga á eftir því að Umhverfisstofnun sinni skyldum sínum í þessu máli og veiti ekki endalausa fresti.

Umhverfis- og framkvæmdaráð hvetur ríkisvaldið til þess að skerpa mengunarvarnarlöggjöfina til þess að koma í veg fyrir mengunarslys.
7. 2208505 - Umhverfis- og framkvæmdaráð, tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir upplýsingum um stöðu framkvæmda við nýja bókasafnið.

1. Hvar eru framkvæmdir staddar og hvenær eru áætluð verklok?
2. Hvar stendur kostnaðurinn við framkvæmdirnar í dag?
3. Hver er áætlaður heildarkostnaður bæjarins við nýframkvæmdirnar?
Óskað er jafnframt eftir að fá að sjá kostnaðaráætlun og að svörin liggi fyrir á fundinum.
Lagt fram.
8. 2208505 - Umhverfis- og framkvæmdaráð, tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir að taka til umræðu olíublauta fugla í Hafnarfirði og víðar. Mikilvægt að fá svör við hvað veldur til þess að sporna gegn þessu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar ábendinguna og starfsmenn bæjarins hafa brugðist við og ekki hafa fundist olíublautir fuglar við lækinn né olíuleki.
Fundargerðir
9. 2601564 - Reykjanesfólkvangur, endurskoðun friðlýsingar
Lagðar fram fundargerðir 1. og 2. fundar.
Lagt fram.
Reykjanesfólkvangur fundargerð 2. fundur.pdf
Reykjanesfólkvangur fundargerð 1. fundur.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:58 

Til bakaPrenta