Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 955

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
17.09.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Viktor Sigurðsson byggingafulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2609026 - Dofrahella 10, rými 0108, reyndarteikningar
Jón Gunnar Eysteinsson f.h. lóðarhafa leggur 02.09.2026 fram reyndarteikningar vegna lokaúttektar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2608401 - Stálhella 4, MHL.01, breyting
Ívar Hauksson f.h. lóðarhafa sækir þann 28.08.2026 um breytingu á notkun, úr geymsluhúsnæði í léttan iðnað.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2608408 - Virkisás 23, breyting
Hjörleifur Sigurþórsson f.h. lóðarhafa sækir 31.08.2026 um breytingar á áður samþykktu erindi, mál 2311672. Breytingin felur í sér að bárujárn á þaki er tekið út og tvöfaldur bræddur þakpappi settur í staðinn.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2608036 - Völuskarð 3, reyndarteikningar
Ingi Gunnar Þórðarson f.h. lóðarhafa leggur þann 06.08.2026 fram reyndarteikningar vegna lokaúttektar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
B-hluti skipulagserindi
5. 2609178 - Hringhamar 43, breyting á deiliskipulagi
Hjúkrunarheimilið Hamranesi ehf. sækir þann 11.09.2026 um breytingu á skilmálum gildandi deiliskipulags fyrir hjúkrunarheimili á lóðinni Hringhamar 43. Breytingin felst í því að fjölda hjúkrunarrýma er breytt úr 96 í 100.
Erindið verður auglýst í B deild Stjórnartíðinda þegar endurskoðað aðalskipulag hefur öðlast gildi. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Hringhamar 43, breyting á greinargerð deiliskipulags.pdf
6. 2608001 - Títanhella 19, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Þorleifs Eggertssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að innkeyrslan inn á lóðina er færð um 21 m, nýtingarhlutfall helst óbreytt. Erindið var grenndarkynnt frá 18.08.2026 til 15.09.2026. Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
F-hluti önnur mál
7. 2608407 - Hringhella 6, tjald, stöðuleyfi
Gunnar Logi Gunnarsson f.h. lóðarhafa sækir 31.08.2026 um stöðuleyfi fyrir tjaldhýsi sem notað skal undir atvinnustarfsemi.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs.
Umsækjanda er bent á að sækja þarf um byggingarheimild að 12 mánuðum liðnum ef tjaldinu er ætlað að standa lengur en eitt ár.
8. 2609097 - Hellisgerði, kvikmyndagerð
Jón Lindsay f.h. Truenorth Nordic sækir 07.09.2026 um leyfi fyrir kvikmyndatöku í Hellisgerði, tímabil 24.09.2026-05.10.2026.
Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni og eins litla röskun og unnt er. Vakin skal athygli á að Hellisgerði er opið fyrir almenning og má búast við umferð fólks um garðinn. Bent er á að hafa skal samráð við staðarhaldara í Oddrúnarbæ þar sem búast má við viðburðum í tengslum við Hamingjudaga sem eru á þessum tíma. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að hljótast vegna þessara kvikmyndagerðar.
Allt rusl og drasl skal fjarlægt að kvikmyndatöku lokinni og svæðið skilið eftir í sama ástandi og fyrir tökur.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta