Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 94

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
14.01.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2511085 - Norðurbraut 24, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 19.11.2025 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindið Ólafar Flygenring f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi.
Bætt er við heimild til að bæta við byggingarmagn um 12,5 ferm. í kjallara. Núverandi steinsteyptar kjallaratröppur og pallur verða fjarlægð og steyptur nýr kjallari og pallur á sama stað með hjólageymslu undir palli og útitröppum úr timbri. Nýtingarhlutfall fer úr 0,65 í 0,70. Álit Minjastofnunar Íslands liggur fyrir.
Erindið var grenndarkynnt frá 8.12.2025 til 12.01.2026.
Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
2. 2511061 - Hádegisskarð 20, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 27.11.2025 var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar 2. áfanga vegna Hádegisskarðs 20/Drangsskarðs 11.
Breytingin gerir ráð fyrir að í stað 7 íbúða innan lóðar verði heimilaðar 8 íbúðir. Bílastæðum fjölgar úr 7 í 8.
Erindið var grenndarkynnt frá 9.12.2025 til 13.01.2026.
Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
3. 2601109 - Stapahraun 8 og 10 og Flatahraun 27, nýtt deiliskipulag
Vissa ráðgjöf ehf. f.h. lóðarhafa sækir 08.01.2026 um deiliskipulag fyrir lóðirnar Stapahraun 8 og 10 og Flatahraun 27.
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
Deiliskipulagsuppdráttur Hraun 2026.pdf
D-hluti fyrirspurnir
4. 2512326 - Suðurholt 2, fyrirspurn
Strendingur ehf. f.h. Mílu hf. leggur þann 09.12.2025 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir að fá að reisa 16 metra háan stálstaur undir farnetssenda á milli núverandi húss á lóð og lóðarmarka í suður.
Vinna þarf áfram með tillöguna samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12.01.2026.
Suðurholt 2, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta