| |
| 1. 2110232 - Hellnahraun, gatnakerfi | | Lögð fram til kynningar samgöngugreining fyrir tengivegi á iðnaðarsvæðinu Hellnahrauni. Skýrsluhöfundur mætir til fundarins og kynnir. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna. | | |
|
| 2. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Lögð fram tíma- og verkáætlun fjárhagsáætlunar 2027. | | Lagt fram. | | |
|
| 3. 2502467 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting borhola Krýsuvík | | Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 8. október 2025 var samþykkt samhljóða að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 og nýtt deiliskipulag vegna rannsóknarborunar í Krýsuvík. Tillögurnar voru í kynningu 9.1.-20.2.2026. Samantekt athugasemda og svör lögð fram. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins. | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsráðgjafa og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og tillögu um nýtt deiliskipulag vegna rannsóknarborunar í Krýsuvík.
Skipulags- og byggingarráð leggur auk þess til að hlutaðeigandi sveitarfélög taki upp viðræður og eyði óvissu sem ríkir um sveitarfélagamörkin í Krýsuvík.
| | Ask slóð á Skipulagsgátt.pdf | | ASK Krýsuvík_samantekt umsagna.pdf | | Aðalskipulagsbreyting_Krýsuvík-I12.pdf | | Dsk slóð á skipulagsgátt.pdf | | DSK Krýsuvík_samantekt umsagna.pdf | | Deiliskipulag í Krýsuvík-I12.pdf | | |
|
| 4. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag | | Lögð fram til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi Þorlákstúns. Tillagan gerir ráð fyrir allt að 47 íbúðum í sérbýli. | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
Stefán Már Gunnlaugsson víkur af fundi við afgreiðslu fimmta dagskrárliðar.
| | 5. 2602585 - Drangsskarð 15, Hádegisskarð 24, breyting á deiliskipulagi | | Lárus Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa sækir 24.02.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að íbúðum er fjölgað úr 7 íbúðum í 8 íbúðir þar sem fjögur hús eru með tveimur íbúðum. Byggingarmagn helst óbreytt. Bílastæðum fjölgað samkvæmt almennum skilmálum og verða 8 í stað 7. Tekið var jákvætt í fyrirspurn um málið þann 5. febrúar sl. | Meirihluti skipulags- og byggingarráðs samþykkir að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Drangsskarðs 15 og Hádegisskarðs 24 vegna fjölgunar eigna. Fulltrúi Samfylkingarinnar bendir á að umræddri lóð hefur nú þegar verið veitt heimild fyrir fjölgun um eina íbúð. Nú er verið að óska eftir fjölgun íbúða eftir að húsnæðið hefur verið byggt og heildarfjölgun fer úr 6 í 8 íbúðir. Í þessu sambandi er bent á að aðeins er gert ráð fyrir einu bílastæði á íbúð og auk þess eru gestastæði og almenningsbílastæði í götu. Nú þegar er skortur á bílastæðum í Skarðshlíð og enn frekari fjölgun íbúða eftir að hús hafa verði byggð auka töluvert á þann vanda. Af þeim ástæðum situr fulltrúi Samfylkingarinnar hjá við afgreiðslu málsins. | | -Drangsskarð 15 deiliskipulagsbreyting.pdf | | Skýringauppdráttur-1.pdf | | |
|
| 6. 2602613 - Ásvallalaug breyting á deiliskipulagi | | Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásvallalaugar. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun á byggingarreit til suðvesturs. Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásvallalaugar vegna stækkunar á byggingarreit og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn. | | 2504 - Ásvallalaug - Deiliskipulagsbreyting.pdf | | |
|
| |
| 7. 2506027 - Víkingastræti 2, fyrirspurn | | Lagðar fram til kynningar endurskoðaðar tillögur að breytingu deiliskipulags Víkingastrætis vegna fyrirspurnar sem snýr að stækkun hótelsins. Skipulagshöfundur mætir til fundarins og kynnir. | | Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. | | |
|
| 8. 2602202 - Dverghella 2, fyrirspurn | | Lögð fram fyrirspurn Páls Poulsen fh. lóðarhafa varðandi stækkun lóðar og byggingarreits þar sem fallið er frá áformum um hækkun nýtingarhlutfalls á lóðinni Dverghella 2. | | Erindi frestað. | | |
|
| 9. 2101532 - Skipulags- og byggingarráð, fyrirspurnir kjörinna fulltrúa | | Lögð fram svör við fyrirspurn fulltrúa Viðreisnar um trjágróður í skipulagi Áslands. | | Lagt fram. | | Svar við fyrirspurn fulltrúa Viðreisnar varðandi trjágróður skv. skipulagi í Ásland 3.pdf | | |
|
| 10. 2101532 - Skipulags- og byggingarráð, fyrirspurnir kjörinna fulltrúa | | Lögð fram svör við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar frá 842 fundi. | | Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör. | | Svar við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar varðandi fjölda Ask breytinga og útfærslu vaxtamarka.pdf | | |
|
| |
| 11. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð 143. fundar sem haldinn var 13. febrúar 2026. | | Lagt fram. | | Svæðisskipulagsnefnd - 143.pdf | | |
|
| 12. 2602014F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 94 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | Lagt fram. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=2Y1A24L8mUy4IejdRw3mGw1
| |
|
| 13. 2602021F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 95 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | Lagt fram. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=tqGxIiU2lUSx5C6UYmOltA1
| |
|
| 14. 2602013F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 98 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | Lagt fram. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=FV123eZJ4Eu9YV8aAOBG9g1
| |
|
| 15. 2602020F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 99 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | Lagt fram. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=fwoXiNIosUSvw9c1XuhnbA1
| |
|