Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 96

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
04.03.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Viktor Sigurðsson aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Katrín Heiðar aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Viktor Sigurðsson, aðstoðarmaður byggingarfulltrúa
Auk ofangreindra starfsmanna sat fundinn Róbert Á. Róbertsson, aðstoðarmaður byggingarfulltrúa.


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2511410 - Álhella 3, breyting
Rúnar Ólafsson fh. lóðarhafa sækir 19.11.2025 um breytingar. Milliloft er lækkað sem og gluggar, hurð og flóttastigi á vesturgafli hússins. Milliloft sem áður var skilgreint sem lager verður nýtt undir skrifstofu. Lyfta sett í húsið til að tryggja aðgengi fyrir alla að skrifstofurými á 2. hæð.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2601462 - Glimmerskarð 5, reyndarteikningar
Sigurður Unnar Sigurðsson f.h. lóðarhafa leggur 22.01.2026 inn reyndarteikningar í kjölfar lokaúttektar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2508328 - Kaplahraun 24, byggingarleyfi
Jón Ólafur Ólafsson f.h. HS-veitna sækir 21.08.2025 um leyfi fyrir aðveitustöð veitna. Byggingin er raforkudreifistöð sem sér öðrum dreifistöðvum í bæjarfélaginu fyrir raforku.
Byggingaráform samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta