Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 560

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
13.10.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður,
Hjördís Lára Hlíðberg aðalmaður,
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir varaformaður,
Fundargerð ritaði: Erna Aradóttir, ritari fjölskylduráðs
Einnig sat Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri, fundinn.


Dagskrá: 
Kynning
1. 2602248 - Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
Andrea Marel, teymisstjóri Púlsins, bráða- og viðbragðsteymi höfuðborgarsvæðisins mætir til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Andreu Marel, teymisstjóra Púlsins, fyrir kynninguna.
Púlsinn - kynning á verkefninu 2026.pdf
2. 2608196 - Fjölskyldu- og barnamálasvið - kynning á starfsemi
Kolbrún Þorkelsdóttir, deildarstjóri, mætir til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Kolbrúnu fyrir kynninguna.
Almenn erindi
3. 2609524 - Stofnun tímabundins starfshóps til að yfirfara fjárhagsaðstoð
Á fundi bæjarstjórnar þ. 29.september sl. var eftirfarandi tekið fyrir:

2609524 - Stofnun tímabundins starfshóps til að yfirfara fjárhagsaðstoð

Til umræðu.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls og leggur fram tillögu um stofnun starfshóps til að yfirfara fjárhagsaðstoð.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls og leggur jafnframt til að málinu verði vísað til fjölskylduráðs til frekari umræðu og úrvinnslu. Einar Geir kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari.

Til máls tekur Viktor Pétur Finnsson. Árni Rúnar kemur að andsvari. Einar Geir kemur að andsvari.

Forseti ber upp framkomna tillögu um að vísa málinu til fjölskylduráðs og er það samþykkt með 10 atkvæðum en fulltrúi Miðflokks situr hjá.
Lagt fram.
Fjárhagsaðstoð kynning Fjölskylduráðs 13.10.2026.pdf
4. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
5. 2512234 - Þjónustusamningur um heimsendan mat og mat í mötuneyti
Lagt fram.
Lagt fram.
6. 2609196 - Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Lagt fram.
Fjölskylduráð leggur áherslu á að áður en ákvörðun um endurnýjun samnings verði tekin þá liggi fyrir fullmótuð samningsdrög, ítarlegri kostnaðargreining á framkvæmd samningsins og mat á fjárhagslegum áhrifum fyrir Hafnarfjörð. Einnig leggur fjölskylduráð áherslu á að framtíðarfyrirkomulag verkefnisins verði unnið í samráði við sveitarfélögin og með hliðsjón af ábendingum og sjónarmiðum sem sveitarfélögin hafa komið á framfæri.
Samræmd móttaka - samningur 13.10.2026.pdf
Fundargerðir
7. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði
Lögð fram fundargerð Öldungaráðs frá 28. september sl.
Lagt fram til kynningar.
Öldungaráð 50. fundur, 28.09.2026.pdf
8. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 30 og 33/2026.

Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta