Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 558

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
15.09.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður,
Hjördís Lára Hlíðberg aðalmaður,
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir varaformaður,
Lena Karen Andreasdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Hrafnhildur Ágústsdóttir, lögfræðingur velferðarþjónustu
Einnig sat Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri fundinn.


Dagskrá: 
Kynning
1. 2608196 - Fjölskyldu- og barnamálasvið - kynning á starfsemi
Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustuteymis og Hrönn Hilmarsdóttir, deildarstjóri þróunar og rekstur í málefnum fatlaðs fólks, mæta til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur, deildarstjóra stuðnings- og stoðþjónustuteymis og Hrönn Hilmarsdóttur, deildarstjóra þróunar og reksturs í málefnum fatlaðs fólks fyrir kynninguna.
Almenn erindi
2. 2501358 - Húsnæði fyrir fatlað fólk - uppbygging
Til umræðu
Lagt fram til kynningar.
Húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk 15.9.2026.pdf
Húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk - kynning 14.4.2026.pdf
Húsnæði fyrir fatlað fólk til 2038 - 8. apríl 2026.pdf
Husnaedi_vid_haefi_skyrsla_starfshops.pdf
3. 2512234 - Þjónustusamningur um heimsendan mat og mat í mötuneyti
Elín Ósk Baldursdóttir, deildarstjóri þjónustu- og úrræðateymis og Ágúst Þór Ragnarsson, innkaupastjóri, mæta til fundar undir þessum lið.
Lagt fram.
4. 2606576 - Þjónustusamningur um starfsendurhæfingu
Drög að samningi við Stendur starfsendurhæfingu lagður fram
Fjölskylduráð stefnir að því að afgreiða samning við Stendur starfsendurhæfingu á næsta fundi fjölskylduráðs.
Stendur - samstarfssamningur - greinargerð 15.9.2026.pdf
5. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Yfirlit yfir þau mál sem vísað hefur verið í fjárhagsáætlunargerð.
Lagt fram.
Fjárhagsáæltun 2027 - málum vísað til fjárhagsáætlunargerðar.pdf
6. 1401769 - Áfram verkefnið
Til umræðu
Fjölskylduráð óskar eftir kynningu á Áfram verkefninu á næsta fundi fjölskylduráðs.
Áfram! Lokaskýrsla 2014.pdf
7. 2304615 - Málefni heimilislausra
Fulltrúi Framsóknar óskar eftir málinu á dagskrá.
Fjölskylduráð óskar eftir því að lagt verði fram minnisblað á næsta fundi fjölskylduráðs um stöðu mála er varðar málefni heimilislausra.

Fulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi bókun:
Framsókn leggur áherslu á mikilvægi þess að verkefnið um smáhýsin á Lónsbraut komist sem fyrst til framkvæmda í ljósi þeirra brýnu þarfa sem fyrir hendi eru hjá einstaklingum í viðkvæmri stöðu. Mikilvægi þess að koma verkefninu um smáhýsin á Lónsbraut af stað er óumdeilt, sérstaklega í ljósi þeirra brýnna þarfa sem eru fyrir hendi.

Framsókn hefur frá upphafi lagt áherslu á að undirbúningur og framkvæmd verkefnisins gangi hratt og vel fyrir sig og bendir jafnframt á að smáhýsin sjálf hafa verið tilbúin um nokkurt skeið og því mikilvægt að endanleg staðsetning þeirra liggi fyrir svo hægt sé að koma þeim niður og taka þau í notkun án frekari tafa. Hver seinkun á framgangi verkefnisins hefur áhrif á möguleika til að veita fólki nauðsynlegt skjól og stuðning á þeim tíma sem þörfin er mest.
8. 2603459 - Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu
Fulltrúi Framsóknar óskar eftir málinu á dagskrá.
Fjölskylduráð óskar eftir því að lagt verði fram minnisblaði um stöðu mála er varðar samþættingu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu á næsta fundi fjölskylduráðs.

Fulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi bókun:
Framsókn leggur áherslu á mikilvægi þess að hraða vinnu við samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu enda getur slík samþætting bætt þjónustu við íbúa, aukið samfellu í þjónustu og stuðlað að hagkvæmari rekstri. Mikilvægt er að verkefnið verði sett í skýran farveg í nánu samstarfi allra hlutaðeigandi aðila.
9. 2604117 - Málefni fólks með einhverfu
Fulltrúi Framsóknar óskar eftir málinu á dagskrá.
Fjölskylduráð óskar eftir því að minnisblaði verði lagt fram á næsta fundi fjölskylduráðs um stöðu málefna fólks með einhverfu.
10. 2609183 - Tillaga um helgaropnun í Læk
Fulltrúi Framsóknar leggur fram tillögu.
Fulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi tillögu:

Tillaga um helgaropnun á Læk
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hefja reglulega helgaropnun á Læk, athvarfi fyrir einstaklinga sem glíma meðal annars við geðrænar áskoranir, félagslega einangrun og skerta virkni.
Gert verði ráð fyrir að Lækur verði opinn um helgar frá kl. 10:30 til 14:30 og að þrír starfsmenn sinni þjónustunni á opnunartíma. Við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði tryggt fjármagn til verkefnisins. Helgaropnun af þessu umfangi kallar á 0,79 viðbótarstöðugildi og er áætlaður viðbótarlaunakostnaður um 9,7 milljónir króna á ársgrundvelli.
Lækur gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu Hafnarfjarðarbæjar við fólk sem þarf á félagslegum stuðningi, virkni og öruggu samfélagi að halda. Starfsemin hefur þróast mikið frá því að Hafnarfjarðarbær tók við rekstrinum árið 2018 og hefur Lækur vaxið og orðið eftirsóknarvert úrræði.
Þjónustan er vel nýtt. Að jafnaði sækja 10 til 16 einstaklingar Læk á dag og fastagestir eru að langstærstum hluta Hafnfirðingar.
Sérstaða Lækjar felst meðal annars í því að fólk getur mætt á eigin forsendum, án sérstakrar skráningar og án þess að þurfa að boða komu sína. Fyrir viðkvæma einstaklinga getur slíkt fyrirkomulag skipt miklu máli. Á Læk fær fólk tækifæri til samveru í öruggu og fordómalausu umhverfi og getur tekið þátt í starfseminni eftir eigin getu. Fyrir suma er stórt skref eitt og sér að fara út úr húsi og vera í kringum annað fólk.
Geðsjúkdómar, einmanaleiki og félagsleg einangrun fara ekki í helgarfrí. Þörfin fyrir mannleg samskipti, öryggi, rútínu og stað til að leita á hverfur ekki síðdegis á föstudegi og birtist svo aftur á mánudagsmorgni. Þvert á móti geta helgar reynst mörgum sérstaklega erfiðar þegar önnur þjónusta dregst saman og dagleg rútína rofnar.
Starfsemi Lækjar dregur úr einangrun og getur einnig dregið úr endurteknum innlögnum og öðrum afleiddum kostnaði. Ef fólk einangrast heima geta vandamálin versnað og orðið stærri, sem síðar getur kallað á umfangsmeiri og kostnaðarsamari þjónustu. Helgaropnun er því ekki aðeins spurning um lengri opnunartíma. Hún snýst líka um forvarnir, snemmtækan stuðning og að grípa fólk áður en vandinn verður meiri.
Fyrir stóran hluta þeirra sem sækja Læk er starfsemin ein helsta og í sumum tilfellum eina reglulega virkni þeirra yfir daginn. Þar upplifir fólk að það tilheyri samfélagi, myndar tengsl og vináttusambönd og fær þjónustu og heita máltíð. Margir gestir myndu að öllum líkindum þurfa meiri þjónustu frá bænum ef Lækur væri ekki til staðar.
Helgaropnun er því eðlilegt næsta skref í þróun þjónustunnar. Með fjögurra tíma opnun og þriggja manna mönnun er um afmarkaða og hóflega aukningu að ræða. Kostnaðurinn er áætlaður um 9,7 milljónir króna á ári og stöðugildi myndu aukast úr 2,78 í 3,57.
Þegar horft er til mikilvægi þjónustunnar fyrir þann hóp sem hana sækir, áhrifa félagslegrar einangrunar á líðan fólks og þess ávinnings sem felst í því að geta gripið fyrr inn í er fullt tilefni til að stíga þetta skref.
Samfélag á að vera til staðar þegar þörfin er mest. Lækur á ekki aðeins að vera opinn þegar dagatalið sýnir virkan dag. Hann á að vera opinn þegar fólkið sem þarf á honum að halda þarf á honum að halda.

Fjölskylduráð vísar tillögunni til skoðunar og umræðu í fjárhagsáætlunarvinnu.
Fundargerðir
11. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í máli nr. 27/2026, 28/2026 og 29/2026.
Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 428/2026.
Lena Karen Andreasdóttir vék af fundi klukkan 09:58


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45 

Til bakaPrenta