Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 957

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
14.10.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Viktor Sigurðsson byggingafulltrúi,
Katrín Heiðar aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2608344 - Fluguskeið 10, byggingarleyfi, umfangsflokkur 1
Lárus Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa sækir þann 26.08.2026 um leyfi fyrir hesthús.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2608324 - Fluguskeið 10a, byggingarleyfi, umfangsflokkur 1
Lárus Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa sækir 24.08.2026 um leyfi fyrir hesthús.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2608343 - Fluguskeið 17, reyndarteikning
Sæmundur Eiríksson f.h. lóðarhafa leggur þann 26.08.2026 inn reyndarteikningar fyrir hesthús.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2609025 - Breiðhella 14, breyting
Kári Eiríksson f.h. lóðarhafa sækir 02.09.2026 um breytingar á lóð. Sótt er um að bæta við innkeyrslu á lóðina í samræmi við samþykkt deiliskipulag.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2604148 - Norðurbakki 7-9, svalalokun
Tekin fyrir að nýju umsókn Pálmars Kristmundssonar f.h. Húsfélagsins Norðurbakka 7 og 9 frá 15.04.2026 um leyfi fyrir svalalokunum. Samþykki íbúa liggur fyrir.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2610044 - Hvaleyrarbraut 39/Grandatröð 1, breyting
Jakob Emil Líndal f.h. lóðarhafa sækir þann 02.10.2026 um breytingu á innra fyrirkomulagi á 2.hæð og millifleti. Breytingar eiga einungis við um eignarhluta 0203.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2605520 - Títanhella 19, MHL.01, byggingarheimild
Þorleifur Eggertsson f.h. lóðarhafa sækir þann 26.05.2026 um að byggja geymsluhúsnæði MHL.01.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
8. 2605521 - Títanhella 19, MHL.02, byggingarheimild
Þorleifur Eggertsson f.h. lóðarhafa sækir þann 26.05.2026 um að byggja geymsluhúsnæði MHL.02.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
9. 2609114 - Tjarnarvellir 9, byggingarleyfi
Hans Orri Kristjánsson f.h. lóðarhafa sækir 08.09.2026 um að byggja þriggja hæða byggingu sem mun hýsa Heilsugæslu Hafnarfjarðar ásamt þjónustu- og verslunarrýmum sem styðja og styrkja munu þennan kjarna.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
10. 2608402 - Strandgata 75, rými 0102 og 0104, breyting
STH teiknistofa ehf f.h. lóðarhafa sækir 28.08.2026 um breytingar og lagfæringar á eignarhlutunum 0102 og 0104, sem eru staðsettir á 1. hæð hússins þ.e. í vesturhluta hússins.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
11. 2609590 - Strandgata 19, MHL.01 og 02, skráningartafla
Friðrik Friðriksson f.h. lóðarhafa leggur þann 30.09.2026 inn nýja skráningartöflu.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
B-hluti skipulagserindi
12. 2610391 - Títanhella 12-14, breyting á deiliskipulagi
Kári Eiríksson f.h. lóðarhafa sækir 14.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Lóðamörk milli lóðanna Títanhellu 12 og 14 færast til, þannig að lóð nr. 14 stækkar á kostnað lóðar nr. 12. Innkeyrsla á lóð nr. 12 færist til, og tvær innkeyrslur verða á lóð nr. 14.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Títanhella 12-14 breyting á deiliskipulagi.pdf
C-hluti tilkynningarskyldar framkvæmdir
13. 2609526 - Brekkugata 12, tilkynningarskyld framkvæmd innan lóðar
Helga Lára Þorsteinsdóttir sækir 29.09.2026 um aðgang að fráveitu fyrir skúr innan lóðar Brekkugötu 12. Fyrirhugað væri þá að tengja inn á eldri lögn sem liggur í gegnum lóðina við Suðurgötu 11.
Tekið er neikvætt í erindið, samræmist ekki ákvæðum um tilkynningarskylda framkvæmd.
D-hluti fyrirspurnir
14. 2610219 - Berghella 1, fyrirspurn
Gunnar Logi Gunnarsson f.h. lóðarhafa óskar 07.10.2026 eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess að heimilt verði að malbika að hluta helgunarsvæði við Berghellu 1.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.10.2026.
Berghella 1, umsögn skipulags.pdf
F-hluti önnur mál
15. 2609493 - Jólaþorpið 2026, stöðuleyfi, viðburður
Sunna Magnúsdóttir f.h. Hafnarfjarðarbæjar sækir 28.09.2026 um stöðuleyfi vegna Jólaþorpsins í Hafnarfirði 2026. Uppsetning hefst í byrjun nóvember. Jólaþorpið sjálft mun starfa frá 13. nóvember alla föstudaga frá 17-20, laugardaga frá 13-20 og sunnudaga frá 13-18. Jólahús verða staðsett á Thorsplani og við Strandgötu. Hjartasvellið við Ráðhústorg. Tívolí við Venusarplan. Óskað er eftir leyfi fyrir ruslagám í porti bak við Bæjarbíó sem og almenningssalernum beint aftan við Bæjarbíó.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir umbeðið stöðuleyfi vegna uppsetningu Jólaþorpsins og heimilar einnig uppsetningu skautasvells á Ráðhústorgi og Tívolí við Venusarplani ásamt ruslagámi og almenningssalernum bak við Bæjarbíó.
16. 2610327 - Krýsuvíkurbjarg, kvikmyndataka
Trausti Hafliðason f.h. Truenorth Nordic ehf. sækir 12.10.2026 um leyfi fyrir kvikmyndatöku við Krýsuvíkurbjarg sem átti sér stað 30.09.2026.
Um er að ræða bókun sem er gerð eftir að kvikmyndatakan átti sér stað, en vegna leyfisskyldra mála þarf að taka erindið fyrir. Þar sem umrætt fyrirtæki hefur ávallt uppfyllt allar reglur hvað varðar kvikmyndatökur í Krýsuvík gerir Hafnarfjarðarbær ekki athugasemdir vegna þessarar kvikmyndatöku sem átti sér stað 30.09.2026, en vill þó árétta að það þarf alltaf að sækja um leyfi áður en kvikmyndatökur hefjast. Í sumum tilfellum þarf einnig að sækja um leyfi náttúruverndarstofnunar þar sem Krýsuvíkin er innan friðlýsts fólkvangs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15 

Til bakaPrenta