| |
| 1. 2512234 - Þjónustusamningur um heimsendan mat og mat í mötuneyti | | Lagt fram minnisblað. | | Fjölskylduráð felur sviðsstjóra fjölskyldu- og barnamálasviðs að vinna málið áfram útfrá framlagðri tillögu og vísar henni jafnframt til umfjöllunar í öldungaráði. Tillagan verði lögð fram á næsta fundi fjölskylduráðs til afgreiðslu. | | |
|
| 2. 2601229 - Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjarvíkurborgar (VoR) | | Samstarf Hafnarfjarðar við Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar. Lagt fram | Fjölskylduráð samþykkir framlagt tilboð vegna samstarfs Hafnarfjarðar við Vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjarvíkurborgar líkt og samþykkt var við fjárhagsáætlun fyrir árið. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Helga Ingólfsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins. | | |
|
| 3. 2304615 - Málefni heimilislausra | | Lagt fram minnisblað um málefni heimilislausra. Elín Ósk Baldursdóttir mætir á fundinn undir þessum lið. | Fjölskylduráð þakkar framlagðar upplýsingar.
Fjölskylduráð óskar eftir því að tekið verði saman minnisblað úr framlögðum gögnum og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs mæti til næsta fundar ráðsins til að ræða útfærslu á mögulegum staðsetningum. | | |
|
| 4. 2408584 - Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks | | Reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði lagðar fram í fjölskylduráði til afgreiðslu. | | Fjölskylduráð samþykkir reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn. | | Reglur um akstursþjónustu í Hafnrafirði - greinargerð 7.4..2026.pdf | | Reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk mars 2026.pdf | | |
|
| 5. 2311460 - Ný heilsugæsla í Hafnarfirði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Farið er fram á minnisblað frá bæjarstjóra um þær viðræður sem hafa átt sér stað á undanförnum árum um uppbyggingu á heilsugæslu Vallahverfi verði lagt fram á fundinum sem og hver staða málsins er í dag. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Á fundi fjölskylduráðs þann 17. mars sl. fól fjölskylduráð bæjarstjóra að taka saman minnisblað um þær viðræður sem hafa átt sér stað á undanförnum árum um uppbyggingu heilsugæslu í Vallahverfi. Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir því að umrætt minnisblað verði lagt fram sem fyrst sem og að í því verði einnig upplýst um stöðu málsins í dag. | | |
|
| 6. 2412667 - Aðgengi fólks með fötlun að almennum vinnumarkaði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá sbr. bókun fjölskylduráðs þann 17. febrúar sl. um að tekið verði saman minnisblað um atvinnuþátttöku fólks með fötlun. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar ítreka beiðni sína um að minnisblað um atvinnuþátttöku fólks með fötlun verði tekið saman og lagt fram í fjölskylduráði, sbr. bókun ráðsins þann 17. febrúar sl.
| | |
|
| 7. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Samfylkingin óskaði eftir málinu á dagskrá þann 17. febrúar sl. og þá fór fjölskylduráð fram á að minnisblaði um málið yrði lagt fram. Farið er fram á að fyrrnefnt minnisblaði verði lagt fram á fundinum. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Samfylkingin hefur á kjörtímabilinu ítrekað sett uppbyggingu íbúða fyrir eldri íbúa á dagskrá bæjarstjórnar. Starfshópur um uppbyggingu íbúða fyrir eldri borgara var til að mynda stofnaður að tillögu Samfylkingarinnar. Í upphafi kjörtímabilsins lögðu fulltrúar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks áherslu á að vinnu við uppbyggingu íbúða fyrir eldri íbúa væri hraðað og nefndu Sólvangssvæðið sérstaklega í því sambandi. Það eru því veruleg vonbrigði að niðurstaðan af þessari áherslu meirihlutans er sú að nú við lok kjörtímabilsins skuli hefjast vinna við gerð 10 ára uppbyggingaráætlunar á grundvelli niðurstaðna fyrrnefnds starfshóps sem á að byggja á greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf, forgangsröðun byggingarreita, samspils við aðalskipulag og húsnæðisáætlun bæjarins og mögulegra samstarfs- og fjármögnunarleiða. Því er óskiljanlegt að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafi ekki samþykkt tillögu Samfylkingarinnar um að hefja undirbúning uppbyggingar lífsgæðaíbúða fyrir eldri íbúa á Sólvangssvæðinu í samræmi við tillögur starfshópsins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar ítreka einnig beiðni sína um að unnið verði minnisblað um málið og það lagt fram í fjölskylduráði, sbr. bókun ráðsins þann 17. febrúar sl. | | |
|
| 8. 2310763 - Starfshópur um framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Á fundi sínum þann 17. feb. sl. samþykkti fjölskylduráð að vísa skýrslu starfshóps um framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks til frekari úrvinnslu á fjölskyldu- og barnamálasviði. Óskað er eftir minnisblaði frá sviðsstjóra um stöðu þeirrar úrvinnslu. | | Lagt fram | | |
|
| |
| 9. 0701243 - Málskot | Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 9-10/2026.
Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar. | | |
|