| |
Helga Stefánsdóttir forstöðumaður framkvæmda- og rekstrardeildar mætti til fundarins undir fyrsta dagskrárlið.
| | 1. 2609168 - Lækurinn, hjólastígur | | Kynntar hugmyndir að hjólastíg meðfram Læknum í Hafnarfirði frá Reykjanesbraut að strandlengjunni. Hönnuðir mæta til fundarins. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna. | | |
|
Helga Stefánsdóttir forstöðumaður framkvæmda- og rekstrardeildar mætti til fundarins undir öðrum dagskrárlið.
| | 2. 2512663 - Reykdalsstífla, umhverfi | | Kynntar tillögur að frágangi við stífluna. Hönnuðir mæta til fundarins. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna. | | |
|
| 3. 2606494 - Skarðshlíð deiliskipulag endurskoðun | | Farið yfir stöðu vinnu við breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar. Tillagan gerir ráð fyrir að djúpgámalóðir verði felldar út og í þeirra stað komi ýmist bílastæði eða græn svæði. | | Farið yfir stöðu vinnu við breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar og verkefnastjóra falið að vinna málið áfram. | | |
|
| 4. 2606495 - Ásland 4, deiliskipulag endurskoðun | | Farið yfir stöðu vinnu við breytingu á deiliskipulagi Áslands 4. Tillagan gerir ráð fyrir að djúpgámalóðir verði felldar út og í þeirra stað verði græn svæði eða stækkun lóða. | | Farið yfir stöðu vinnu við breytingu á deiliskipulagi Áslands 4 og verkefnastjóra falið að vinna málið áfram. | | |
|
| 6. 2607281 - Suðurbakki, þjónustuhús, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breyttu deiliskipulagi Suðurhafnar Hafnarfjarðar. Tillgan gerir ráð fyrir þjónustuhúsi Á Suðurbakka, á reit 4.1 norðan Fornubúða 5, verði ný lóð og byggingarreitur innan hennar fyrir þjónustuhús skemmtiferðaskipa. Stærð lóðarinnar er 325,2 fm. Tillagan var grenndarkynnt frá 14.08.2026 til 11.09.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma lagðr fram. | | Lagt fram og verkefnastjóra falið að taka saman svör við athugasemdum. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 7. 2503150 - Barnvænt sveitarfélag, fræðsla | | Þórunn Þórarinsdóttir verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags mætir til fundarins og kynnir stöðu innleiðingarferils. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna. | | |
|
| |
| 5. 2607231 - Blýhella 7-9, fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu | | Snorri Steinn Þórðarson f.h. lóðarhafa leggur 21.07.2026 inn fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi. Fyrirspurnin felst í að lóðirnar Blýhella 7 og 9 verða sameinaðar í eina lóð og lóðarmörk til austurs stækkuð út að grænu svæði. Byggingarreitur er sameinaður og stækkaður til austurs í hlutfalli við lóðina. Hluti vegarins Blýhellu verður lagður niður. Innkeyrslur á lóð 7 og 9 verða lagðar niður og ný innkeyrsla á sameinaða lóð verður frá Stálhellu. Gert er ráð fyrir útisvæði austan við húsið, kvöð um lagnir heldur sér í núverandi mynd. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0.77. Hæð byggingar innan byggingarreits verður allt að 14 m. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn verkefnastjóra og tekur jákvætt í fyrirspurnina með þeim fyrirvörum vegna stofnlagna sem fram koma í umsögninni og vísar fyrirspurn varðar stækkun lóðar til umsagnar bæjarráðs. | | Blýhella 7-9, umsögn 2.9.2026.pdf | | |
|
| |
| 8. 2608018F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 111 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=BhpoLv0__UuB22w3usplqQ1
| |
|
| 9. 2608016F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 118 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=wK9hqxN_nUy7NMJG29_DTA1
| |
|
| 10. 2608024F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 119 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=xuv6wdBOq0iQmYYNX7Kz5A1
| |
|