| |
| 1. 2509753 - Borgahella 6-8 og 6H, breyting á deiliskipulagi | | Sigríður Ólafsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 17.09.2025 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin nær til lóða nr. 6 og 8 við Borgahellu, ásamt lóð 6H fyrir spennistöð HS Veitna. Í breytingunni felst eftirfarandi: lóðirnar nr. 6 og 8 eru sameinaðar í eina lóð, lóðin er stækkuð til norðurs. Lóð nr. 6H, fyrir veitumannvirki, er færð norður fyrir lóð nr. 8. Nýtingarhlutfall verður 0,4 - 0,6. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppfærður uppdráttur hefur borist. | | |
|
| 2. 2603458 - Reykjavíkurvegur 3, breyting á deiliskipulag | | Lögð fram tillaga að breytingu á skilmálum lóðarinnar vegna leiðréttingar á fjölda eigna. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Reykjavíkurvegur 3, deiliskipulagsbreyting.pdf | | |
|
| 3. 2603451 - Skólabraut 3, breyting á deiliskipulagi | | Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, til að koma fyrir lyftu á bakhlið hússins, á norðvesturhlið þess, ásamt nýjum flóttastiga. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Skólabraut 3, breyting á deiliskipulagi_í grennd.pdf | | |
|
| 4. 2603450 - Óseyrarbraut 12B, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 18.03.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindið Kristjáns Ásgeirssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að suð-austur hlið byggingarreits lóðar Óseyrarbrautar 12B stækkar til norð-austurs. Skriflegt samþykki þess sem fékk grenndarkynninguna liggur fyrir. Ábending barst frá Veitum. Hitaveitulagnir Veitna liggja um svæðið þar sem gert er ráð fyrir stækkun á byggingarreit samkvæmt skipulagstillögunni. Veitur óska eftir góðu samráði vegna fyrirhugaðra framkvæmda. | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Vegna ábendingar Veitna er bent á að hafa þarf gott samráð við Veitur í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir.
| | slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 5. 2601475 - Norðurbraut 33, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25.02.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Garðars Snæbjörnssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að heimilt verði að rífa núverandi bílskúr og byggja nýbyggingu innan byggingarreits í hans stað. Nýbyggingin megi vera ein hæð og allt að 48 fm. Heimilt verði að breyta landhæðum í kringum skúrinn. Heimilt verði að byggja við íbúðarhús með viðbyggingu sem er allt að 41 fm að grunnfleti, hæð og kjallari ef landhæð leyfir. Eitt bílastæði heimilt á lóð. Lóð stækkar frá skráningu. Erindið var grenndarkynnt frá 02.03.2026 til 30.03.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|