Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3720

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
29.10.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir varaformaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Sigurður Nordal sviðsstjóri, Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Lögð fram fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans fyrir 2027 og langtímaáætlun 2028-2030. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs og Guðmundur Sverrisson rekstrarstjóri hagdeildar mæta til fundarins.
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir innan stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar ásamt greinargerð.
Bæjarráð telur nauðsynlegt að ráðast í aðgerðir sem stuðla að hagkvæmari og skilvirkari rekstri sveitarfélagsins og bæta nýtingu fjármuna og mannafla.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og greinargerð.

Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjórum að fylgja samþykktinni eftir og annast framkvæmd þeirra aðgerða sem af henni leiða í samræmi við lög, samþykktir sveitarfélagsins og gildandi stjórnunarheimildir.“

Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og mannauðsstjóra að útfæra aðgerðir og ferla sem takmarka ráðningar hjá sveitarfélaginu, meðal annars með skipan ráðningarnefndar sem samþykkja þarf allar ráðninga í störf utan grunnþjónustu. Störf sem losna verði ekki sjálfkrafa endurmönnuð og ráðningar utan grunnþjónustu verða háðar samþykki ráðningarnefndar. Áfram verði heimilt að ráða vegna eðlilegrar starfsmannaveltu í leikskólum, grunnskólum og á heimilum fyrir fatlað fólk, að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og stjórnsýslusviðs að útfæra reglur og ferla sem takmarka og skilyrða nýjar fjárfestingar til næstu tveggja ára.

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra að laun bæjarstjóra og sviðsstjóra verði fryst til næstu tveggja ára.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2028-2030 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Fw: Fundur Hafnarfjarðarbæjar og EFS.pdf
Tillaga bæjarstjóra um hagræðingu í miðlægri stjórnsýslu_LOKA.pdf
2. 2610562 - Vatnsvernd og vatnsnýting, höfuðborgarsvæðið, samráðshópur, fjárhagsáætlun 2027
Lagt fram erindi frá SSH vegna fjárhagsáætlunar samráðshóps um vatnsvernd og vatnsnýtingu fyrir árið 2027. Óskað er eftir að erindið fái viðeigandi meðferð innan sveitarfélagsins.
Fylgibréf HAF til sveitarf_stjorn ssh_634 fundur_vatnsvernd fjarhagsaetlun 2027.pdf
Minnisblað - Fjárhagsáætlun samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu árið 2027, skýringar á kostnaðarliðum.pdf
Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu - Fjárhagsáætlun 2027.pdf
3. 2605219 - Rekstrar- og þjónustusamningar
Lagðir fram þjónustusamningur við Skátafélagið Hraunbúa og rekstrarsamningur við Skátafélagið Ferðbúinn.


Á fundi fræðsluráðs þann 23. október sl. var eftirfarandi tekið fyrir og vísað áfram til bæjarráðs.

2605219 - Rekstrar- og þjónustusamningar

Samningar lagðir fram.

Samningum vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram og eiga samtal við Skátafélagið Hraunbúa.
Þjónustusamningur Hraunbúar okt26.pdf
Rekstrarsamningur við Ferðbúann okt26.pdf
4. 2106546 - Steinholt 1, 5 og 5A, endurnýjun lóðarleigusamninga
Endurnýjun lóðarleigusamnings
Bæjarráð samþykkir endurnýjun á lóðarleigusamningi.
Steinholt 1, lóðarleigusamningur, 22. október 2026 DRÖG.pdf
5. 2610502 - Hólshraun 7, stækkun lóðar, fyrirspurn
Lögð fram beiðni um lóðarstækkun.
Bæjarráð tekur undir meðfylgjandi umsögn skipulags og að skoðað verði að veita tímabundinn afnotarétt af bæjarlandi utan núverandi lóðarmarka. Bæjarráð hvetur lóðarhafa jafnframt til að ganga vel um lóð og nærliggjandi svæði.
Hólshraun 7.pdf
6. 2610137 - Drangahraun 7, breyting á stærð lóðar
Lögð fram beiðni um lóðarstækkun.
Bæjarráð tekur undir meðfylgjandi umsögn skipulags og að skoðað verði að veita tímabundinn afnotarétt af bæjarlandi utan núverandi lóðarmarka. Bæjarráð hvetur lóðarhafa jafnframt til að ganga vel um lóð og nærliggjandi svæði.
Drangahraun 7.pdf
7. 2610657 - Hellnahraun 4, Birkihella 15 og 17 umsókn um lóðavilyrði
Lögð fram beiðni Merkurhóla ehf. um vilyrði fyrir lóðunum Bikihella 15 og 17.
Bæjarráðs samþykkir fyrirliggjandi beiðni um lóðarvilyrði að það verði veitt til 10 mánaða.
Umsokn_vilyrdi_Birkihella_15_17.pdf
8. 2610661 - Skilti á bæjarlandi
Lögð fram beiðni Fjarðarfrétta um auglýsingaskilti í bæjarlandi.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.

Bókun fulltrúa Miðflokksins:

Fulltrúi Miðflokksins tekur jákvætt í erindi rekstraraðila Fjarðarfrétta og telur mikilvægt að Hafnarfjarðarbær greiði eftir föngum fyrir því að starfsemi staðbundinna fjölmiðla geti dafnað.
Á tímum þegar sífellt stærri hluti auglýsingatekna og upplýsingamiðlunar færist til erlendra samfélagsmiðla og tæknifyrirtækja er mikilvægt að standa vörð um íslenska fjölmiðlun og þá sérstaklega miðla sem sinna nærsamfélaginu.

Sjálfstæðir staðbundnir fjölmiðlar gegna jafnframt mikilvægu hlutverki í lýðræðislegri umræðu. Þeir veita sveitarstjórnum aðhald og skapa vettvang fyrir ólík sjónarmið um málefni bæjarfélagsins. Það er mikilvægt að umræða um bæjarmálin fari ekki eingöngu fram á samfélagsmiðlum eða á vettvangi stjórnmálaflokkanna sjálfra.

Fulltrúi Miðflokksins telur jafnframt að Hafnarfjarðarbær eigi, þar sem því verður við komið, í auknum mæli að beina auglýsingum og upplýsingamiðlun sinni til íslenskra fjölmiðla. Jafnframt er lagt til að Hafnarfjarðarbær sé ekki að standa í samkeppnisrekstri við einkarekna fjölmiðla, t.a.m. með útgáfu Hafnarfjarðarbæjar að sérstöku jólablaði sem gefið er út í 72.000 eintökum ár hvert.
Bref_Vissaradgjof_.pdf
9. 2610519 - Viljayfirlýsingar, samstarfssamningar, skýrar verklagsreglur, faglegt mat og gagnsæi, tillaga
Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknar.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til frekari skoðunar og úrvinnslu í vinnu HLH ehf. við úttekt á stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Tillaga um skýrar verklagsreglur.pdf
10. 2510271 - Fimleikafélagið Björk, fjármál
Lagt fram minnisblað frá Fimleikafélaginu Björk.
Bæjarráð samþykkir lánveitingu upp á 20 milljónir króna til félagsins ásamt viðauka við fjárhagsáætlun þess efnis og að hann verði lagður fram til samþykktar á næsta fundi bæjarstjórnar.
Minnisblað - Fjárþörf Fimleikafélagið Björk.docx.pdf
Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2026 til bæjarráðs - Öll skjölin.pdf
11. 2610536 - Samningskerfi Hafnarfjarðarkaupstaðar
Til umræðu.
Ágúst Þór Ragnarsson innkaupastjóri og Nils Kjartan Guðmundsson skjalastjóri mæta til fundarins undir þessum lið.

Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs er falið að vinna málið áfram í samvinnu við önnur svið.
Fundargerðir
12. 2610012F - Hafnarstjórn - 1711
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 14.október sl.
13. 2610020F - Innkauparáð - 4
Lögð fram fundargerð innkauparáðs frá 22. október sl.
14. 2610013F - Menningar- og ferðamálanefnd - 481
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 21. október sl.
15. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8.október sl.
16. 2601553 - Sorpa bs., fundargerðir 2026
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 16. og 28. september og 2. október sl.
17. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SSH frá 5.október og 19. október sl.
18. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17.september sl.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta