| |
Halldór Ingólfsson verkefnastjóri mætir til fundarins undir fyrsta dagskrárlið.
| | 1. 2104588 - Gangstéttir, endurnýjun | | Tekið til umræðu endurnýjun hellna við Linnetsstíg og Fjarðargötu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og fagnar því að verið sé að endurnýja yfirborð. | | |
|
Hafsteinn Viktorsson fortöðumaður þjónustumiðstöðvar og Ishmael Roberto David verkefnastjóri umhverfismála mæta til fundarins undir öðrum dagskrárlið.
| | 2. 2608204 - Umhirða á bæjarlandi | | Tekin til umræðu umgengni við grenndargámastöðvar og ruslafötur í bæjarlandi | | Umhverfis- og framkvæmdaráð harmar það þjónustufall sem átti sér stað í síðustu viku og beinir því jafnframt til íbúa að ganga vel um bæjarlandið. | | |
|
| 3. 2608097 - Samgöngur og skipulag | | Lagt fram erindi Vegagerðarinnar þar sem minnt er á mikilvægi samráðs í tengslum við endurskoðun aðalskipulags og aðra skipulagsvinnu sem og lagalegar skyldur þar að lútandi. | | Lagt fram. | | 2026 Í kjölfar kosninga.pdf | | |
|
|
| 5. 2605363 - Klettahlíð, beiðni um uppsetningu öryggisgrindverks | | Lagt fram minnisblað Eflu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir niðurstöður Eflu verkfræðistofu og leggur til að hafist verði handa við hraðahamlandi aðgerðir í Klettahlíð í samræmi við niðurstöður skýrslunnar. Ekki verður sett upp vegrið að svo stöddu. | | 115082-MIN-001-V02 Klettahlíð.pdf | | |
|
| 6. 2607130 - Krafa um að fyrirhugaðar framkvæmdir í Völuskarði verði stöðvaðar | | Tekið til umræðu erindi íbúa í Völuskarði um stöðvun framkvæmda. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir minnisblað VSB og Landslags og telur framkvæmdir ekki þess eðlis að stöðva þurfi þær. | | Krafa um að fyrirhugaðar framkvæmdir í Völuskarði verði stöðvaðar.pdf | | 18160-M-2026-07-16-Yfirborðsfrágangur í Völuskarði.pdf | | |
|
| 7. 2605421 - Knatthús Hauka útboð kæra 312026 | | Lagður fram úrskurður kærunefndar úboðsmála í máli 31/2026. | | Lagt fram. | | Úrskurður í máli nr. 31-2026undirr-.pdf | | |
|
| 8. 1510061 - Ásvellir, uppbygging | | Tekin til umræðu staða útboðs 2. áfanga knatthúss. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð hafnar öllum tilboðum sem borist hafa í verkið og vísar því til sviðsins að bjóða út að nýju 2. áfanga knatthúss að Ásvöllum. | | |
|
| 9. 2012201 - Rafhlaupahjól í Hafnarfirði, umsókn um leyfi til reksturs stöðvalausra deililegu | | Tekin til umræðu endurnýjun á samstarfssamningi við Hopp Reykjavík ehf. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að gerð verði samstarfsyfirlýsing vegna reksturs á stöðvarlausri deilileigu fyrir rafskútur í Hafnarfirði við Hopp. Skoðaður verði möguleiki á að safnstæði verði gerð á völdum stöðum. | | |
|
| 10. 2208505 - Umhverfis- og framkvæmdaráð, tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa | | Lögð fram svör við fyrirspurn fulltrúa Framsóknar frá 24.6.2026. | | Lagt fram. | | Víðivangur 1-5 leiksvæði_svör við fyrirspurn.pdf | | |
|