Til bakaPrenta
Fræðsluráð - 583

Haldinn í Krosseyri, Linnetsstíg 3,
23.10.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
Árni Stefán Guðjónsson varaformaður,
Elín Anna Baldursdóttir aðalmaður,
Eva Rún Helgadóttir aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Hugrún Valtýsdóttir, 
Auk ofantalinna sátu fundinn:
Árný Steindóra Steindórsdóttir sviðsstjóri, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir þróunarfulltrúi leikskóla, Þorgeir Hafsteinn Jónsson rekstrarstjóri, Berglind Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Margrét Össurardóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Jóhanna Sigrún Jensdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólakennara, Logi Rafn Buchholz fulltrúi ungmennaráðs, Svanhildur Ýr Sigurþórsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna, Margrét T. L. Hallgrímsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601014 - Skóladagatal 2026 - 2027 leikskólar
Skóladagatal leikskólans Hjalla og 5 ára kjarna Barnaskóla Hjallastefnunnar lagt fram til afgreiðslu.
Samþykkt.
Foreldraráð BSK HFJ - samþykkt á breytingu leikskóladagatals 22.09.2026.pdf
Leikskóladagatal 2026-2027 - 5 ára kjarnar BSK HFJ - uppfært sept. 2026.pdf
Hjalli leikskóladagatal - með breytingum september 2026.pdf
Hjalli samþykki foreldraráðs - breyting á leikskóladagatali september 2026.pdf
2. 2610540 - Tjarnarás, áskorun foreldraráðs leikskólabarna
Áskorun foreldraráðs leikskólabarna um lagfæringar á skólalóð Tjarnaráss.
Foreldraráð leikskólabarna skora á eigendur húsnæðis Tjarnaráss að bæta úr viðhaldi á skólalóð skólans. Skortur á viðhaldi og endurnýjun á lóð er að ógna öryggi leikskólabarna á Tjarnarási. Foreldrar óska eftir að sveitarfélagið beiti sér fyrir því að leigusali verði við úrbótum sem búið er að óska eftir.
Til umræðu.
3. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Til umræðu og afgreiðslu.
Fræðsluráð vísar tillögum og bókunum vegna þeirra ásamt gjaldskrá til bæjarráðs.

Fræðsluráð leggur áherslu á að þær hagræðingaraðgerðir sem ráðist verður í vegna fjárhagsáætlunar verði útfærðar af ábyrgð og með það að leiðarljósi að þær komi ekki niður á gæðum og faglegu starfi í skólum okkar né þjónustu við börn og ungmenni.
Mikilvægt er að leita leiða til að nýta fjármagn með sem skilvirkustum hætti, endurskoða verklag og skipulag þar sem tækifæri eru til staðar og tryggja að fjármunir nýtist sem best í þágu skólastarfsins.
Hagsmunir barna og ungmenna, velferð þeirra og gæði menntunar skulu ávallt vera í forgrunni við ákvarðanatöku.


Foreldraráð Hafnarfjarðar leggur áherslu á að fyrirhuguðum hagræðingaraðgerðum í skóla- og frístundastarfi fylgi mat á áætluðum sparnaði og áhrifum á börn, fjölskyldur og gæði þjónustunnar áður en ákvarðanir eru teknar.
Mikilvægt er að horft sé til bæði skammtíma- og langtímaáhrifa, enda getur sparnaður á einum stað leitt til aukins kostnaðar eða þörf á þjónustu annars staðar. Sérstaklega þarf að gæta þess að hagræðing bitni ekki með óhóflegum hætti á börnum sem þurfa aukinn stuðning eða leiði til aukins kostnaðar fyrir fjölskyldur.
Foreldraráð gerir sér grein fyrir þröngri fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar og takmörkuðu svigrúmi til aukinna útgjalda. Ráðið telur engu að síður mikilvægt að horfa bæði til tækifæra til hagræðingar og þeirra verkefna sem brýnt er að forgangsraða í þágu barna, þótt ekki verði unnt að ráðast í þau öll á komandi ári.
Foreldraráð leggur því fram tillögur sínar vegna fjárhagsáætlunar 2027 og óskar eftir að þær verði hafðar til hliðsjónar við forgangsröðun og langtímaáætlanir bæjarins.

Foreldraráð leikskóla telur mikilvægt að hagræðingar á komandi ári muni ekki fela í sér frekari þjónustuskerðingu fyrir leikskólabörn og fjölskyldur þeirra og komi ekki niður á faglegu starfi leikskólanna.
4. 2601013 - Skóladagatal 2026 - 2027 grunnskólar
Skóladagatal Barnaskóla Hjallastefnunnar lagt fram til afgreiðslu.
Samþykkt.
Skólaráð BSK HFJ - samþykkt á breytingu skóladagatals 22.09.2026.pdf
Skóladagatal 2026-2027 - BSK HFJ - uppfært sept 2026.pdf
5. 2610329 - Fjármagn til úrbóta í öryggis- og aðgengismálum grunnskóla og tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Til umræðu.
Fræðsluráð telur mikilvægt að fylgja niðurstöðum úttektar á öryggismálum í grunnskólum Hafnarfjarðar eftir með markvissum og raunhæfum aðgerðum sem miða að því að efla öryggi nemenda og starfsfólks.
Fræðsluráð leggur áherslu á að þegar í upphafi næsta árs verði ráðist í þær úrbætur sem eru einfaldar í framkvæmd og kalla á takmarkaðan kostnað. Þar verði meðal annars horft til samræmds verklags í grunnskólum bæjarins, skýrari reglna um aðgengi og móttöku gesta, betri merkinga, nýtingar núverandi öryggisbúnaðar og yfirferðar á viðbragðsáætlunum.
Jafnframt verði unnið að forgangsröðun og kostnaðarmati stærri framkvæmda, svo sem breytinga á húsnæði, uppsetningar aðgangsstýringa og endurnýjunar öryggisbúnaðar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að leiða vinnu og leggja fram í fræðsluráði reglulega stöðu vinnunnar.
6. 2605219 - Rekstrar- og þjónustusamningar
Samningar lagðir fram.
Samningum vísað til bæjarráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15 

Til bakaPrenta