Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 489

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
15.04.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Fannar Freyr Guðmundsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Örn Geirsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
Kynnt staða rekstrar fyrstu 3 mánuði ársins.
Lagt fram. Fulltrúi Viðreisnar ítrekar mikilvægi þess að fjárhagsáætlun verði áfram fastur liður á dagskrá umhverfis- og framkvæmdaráðs, enda er slík umfjöllun lykilforsenda virks eftirlits, gagnsæis og ábyrgðar í rekstri. Nauðsynlegt er að kjörnir fulltrúar hafi reglulega og raunhæfa yfirsýn yfir stöðu fjárhags, framvindu verkefna og frávik frá áætlunum, svo tryggja megi að ákvarðanataka um ráðstöfun fjármagns sé í samræmi við áætlanir og að hægt sé að bregðast tímanlega við ef þörf krefur. Fulltrúi Viðreisnar leggur því áherslu á að þessi dagskrárliður verði áfram fastur liður sem hluti af eðlilegri eftirfylgni þannig að kjörnir fulltrúar hafi skýra yfirsýn yfir ráðstöfun fjármagns og geti tryggt að verkefni á verksviði ráðsins njóti nauðsynlegs fjárhagslegs stuðnings eftir því sem þörf krefur. Fulltrúar Samfylkingarinnar taka undir bókun fulltrúa Viðreisnar.
2. 2603587 - Vorhreinsun 2026
Tekið til umræðu vorhreinsun í Hafnarfirði dagana 7-10 maí.
Tekið til umræðu.
3. 1510061 - Ásvellir, uppbygging
Lögð fram niðurstaða útboðs.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að leitað sé samninga við lægstbjóðandi, B.Ó Smiðir ehf.
4. 2602441 - Hellnahraun 4, gatnagerð
Lögð fram niðurstaða útboðs á gatnagerð.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að leitað sé samninga við lægstbjóðandi, Óskatak ehf.
5. 2604110 - Bæjarhraun bílastæðamál fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Vissa ráðgjafar fh. lóðarhafa að Bæjarhrauni 12 um fjölgun bílstæða.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
FS: Fyrirspurn um fjölgun bílastæða við Bæjarhraun 12.pdf
6. 2603503 - Strandgata 82-84, fyrirspurn
Gísli Álfgeirsson leggur 23.03.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir að setja niður færanlegar húseiningar sem hýsa gufubað og aðstöðu því tengdu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í innsent erindi um stöðuleyfi fyrir saunahús við Strandgötu og bendir á að sækja þarf um stöðuleyfi með formlegum hætti til byggingarfulltrúa. Bent er á að sækja þarf um viðeigandi leyfi fyrir starfseminni til þar til bærra aðila þ.m.t formlegt leyfi lóðarhafa.
Slippurinn - 22.03.2026.pdf
7. 2603480 - Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Ástjörn og fólkvanginn Ásfjall
Lögð fram beiðni Náttúruverndarstofnunar um tilnefningu 1-2 aðila í samstarfshóp vegna vinnu við stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið Ástjörn og fólkvanginum Ásfjall.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að Ívar Bragason bæjarlögmaður og Berglind Guðmundsdóttir verkefnastjóri sitji í samstarfshópnum fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar.
8. 2603608 - Krýsuvíkursveimar, rannsóknarleyfi umsagnarbeiðni
Lögð fram beiðni Umhverfis- og orkustofnunar um umsögn vegna umsóknar Orkuveitunnar um leyfi til rannsóknar og leitar að jarðhita á Krýsuvíkursveimum.
Lagt fram.
Krýsuvíkursveimar - rannsóknarleyfisumsókn 2026.pdf
9. 2208505 - Umhverfis- og framkvæmdaráð, tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa
Umferðamál á Hafnarsvæði tekið til umræðu að beiðni fulltrúa Samfylkingarinnar.
Tekið til umræðu.
10. 2103424 - Grænkun Valla
Tekið til umræðu.
Fulltrúi Viðreisnar leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst að fjölgun og eflingu grænna svæða í Hafnarfirði og að horft sé til fjölbreyttra lausna sem styðja við bætt vistkerfi og aukin lífsgæði íbúa. Í því samhengi er rétt að líta til þróunar í ýmsum borgum í Evrópu þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á svokölluð „villt svæði“ eða náttúrulegri gróður í almenningsrýmum, sem krefst minni umhirðu til lengri tíma, stuðla að aukinni kolefnisbindingu og skapa fjölbreyttari búsvæði fyrir plöntur og dýr. Fulltrúinn telur mikilvægt að Hafnarfjörður þróist áfram í átt að vistvænna og sjálfbærara skipulagi þar sem græn svæði gegna lykilhlutverki og að horft verði til Trjáræktarstefnu Hafnarfjarðar við áframhaldandi þróun og skipulag grænna svæða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir bókun fulltrúa Viðreisnar og leggur til að áætlun um grænkun Valla verði gerð aðgengileg íbúum í gegnum vefmiðla bæjarins.
Grænkun Valla - aðgerðarplan.pdf
11. 2604130 - Gult hjól, átak til aukins umferðaröryggis virkra vegfarenda
Lögð fram beiðni félagasamtakanna Reiðhjólabændur um að setja upp 2 gul reiðhjól í landi bæjarins við Vörðutorg og Einiberg. Hjólunum er ætlað að vekja ökumenn til vitundar um að þeir nálgast staði þar sem alvarleg slys hafa orðið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir uppsetningu á 2 reiðhjólum á umbeðnum stöðum, Vörðutorg og Einiberg.
Staðsetning Gulra Hjóla - LRH - 03-2026.pdf
Fundargerðir
12. 1510061 - Ásvellir, uppbygging
Lögð fram fundargerð 14. fundar.
14. fundur framkvæmdanefndar um uppbyggingu knatthúss á Ásvöllum 9. apríl 2026.pdf
13. 2601553 - Sorpa bs., fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. nr. 525.
Fundargerð 525. fundar stjórnar SORPU.pdf
Fylgiskjal 525. fundar.pdf
14. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. nr. 422 og 423.
Fundargerð stjórnarfundar nr 422 10032026.pdf
Fundargerð stjórnarfundar nr 423 20032026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40 

Til bakaPrenta